Fjarðarpósturinn - 10.11.1994, Síða 10
10 FJARÐARPÓSTURINN
ÍÞRÓTTIR
Sundleikfimi og mæling á líkamssamsetningu
Það þarf að bleyta
upp í íslendingum
Vatnslcikfimi er tiltölulega
ung grein líkamsræktar hér á
landi þótt sjúkraþjálfarar og
fleiri hafi notað æfíngar í vatni
til endurhæfingar um langt
skeið. En nú stendur yfir fjórða
árið sem vatnsleikfími er í boði
hér í Hafnarfirði. Það eru þær
Elín Birna Guðmundsdóttir og
Guðrún H. Eiríksdóttir, báðar í-
þróttakennarar, sem sjá um
þjálfun í Suðurbæjarlaug.
Aðsókn í vatnsleikfimina er
talsverð. Um 40-50 manns, aðal-
lega konur, sækja námskeiðin sem
skipast í tvennt: vatnsleikfimi og
fitubrennslu. Aðspurðar um það
hvers vegna karlar virðist veigra
sér við því að taka þátt í líkams-
rækt af þessu tagi gefa þær Elín
Birna og Guðrún engin einhlit
svör. Þó megi rekja ástæðuna að
einhverju leyti til þess að enn hef-
ur ekki verið skipt eftir kynjum í
hópana. Ástæðurnar kunni að leyn-
ast víðar en réttast er að hver karl-
maður, sem þetta les, spyrji sjálfan
sig þessarar spurningar. Og hver
veit nema ýmsir standi hvumsa
gagnvart spursmálinu. Að minnsta
kosti á þjálfun af þessu tagi alveg
eins erindi til karla eins og kvenna.
Helstu kostir við líkamsrækt í
vatni eru þeir að líkaminn er léttari
og meðfærilegri, vatnið er hitað í
32.5 gráður og því er yfirborð húð-
arinnar fljótt að hitna og vatnið
veitir aðhald og sívirka mótstöðu.
Hér eru einungis fáir kostir taldir
en þeir helstu. Eins og að framan
er getið þá er vatnið ákjósanlegur
endurhæfingarstaður en sú líkams-
rækt, sem hér er lýst, er einmitt
það; líkamsrækt - styrkjandi og
uppbyggileg fyrir fólk sem vill
vera í góðu formi.
Þol og styrkur
Æfingamar fara þannig fram að
byrjað er á upphitun í vatninu, eins
konar þolæftngum (eróbikk). Síð-
an er farið í styrkjandi æfingar og
teygt vel á eftir. Ymsar arm-, bol-
og fótalyftuæfingar eru gerðar og
unnið allan líkamann með göngu,
hlaupum og hliðarsporum.
Áhugasamir hafa um tvennt að
velja: Vatnsleikfimi og fitu-
brennslu. Hin hefðbundna vatns-
leikfimi byggir á því að fleiri
vöðvahópar eru þjálfaðir í einu
heldur en gengur og gerist í fitu-
brennslunni. Þar er megináhersla
lögð á einn vöðvahóp í hverjum
tíma og þar er mun meira puð, ef
svo má segja.
Að sögn þeirra Birnu og Guð-
rúnu þá er töluverð ásókn í vatns-
leikfimina og nú hafi sú kenning
verið afsönnuð að um einhvers
konar tískubólu haft verið að ræða.
Hlutfall fitu
Samhliða æfingunum er þátttak-
endum geftnn kostur á líkamssam-
setningarprófum, sem hingað til
hafa raunar verið kölluð fitumæl-
ingar. Próftn eru þó mun víðtækari
en svo að í þvf orði einu og sér sé
fólgið það sem um er að ræða. Það
er Guðbjörg Jónsdóttir, íþrótta-
kennari, sem framkvæmir þessi
próf. Prófin byggja á mælingu á
svokölluðu samviðnámi rafmagns
í líkamanum.
I þeim kemur fram hvert er hlut-
fall fitu af líkamsþyngd eftir að
tekið hefur verið tillit til beina- og
vöðvabyggingar. Það er nefnilega
ekki hægt að alhæfa um kjörþyngd
hvers og eins eftir hæð og aldri.
Einnig er kannað vatnsmagn í lík-
amanum og virðist, samkvæmt
þeim mælingum, að við íslending-
ar drekkum margir hverjir alls ekki
nóg af vatni. íslendingar eru sem
sagt upp til hópa í þurrari kantinum
og þurfa sumir hverjir útvötnunar
við! Og það án gríns.
Próftn geta einstaklingamir síð-
an notað til viðmiðunar um þá
þyngd sem talin er ákjósanleg fyr-
ir hvern og einn. Með endurtekn-
ingu prófsins er hægt að fylgjast
með framförum (vonandi) við
þyngdarstjórnun.
Æfingatfmar eru eftirfarandi:
Vatnsleikfimin er á mánudögum
kl. 19:10 og miðvikudögum kl.
20:05 en fitubrennsla á þriðjudög-
um og fimmtudögum, báða dagana
klukkan 19:10.
DEKKIÐ
Reykjavíkurvegur 56
Sími 51538
NÚ ER TÍMIVETRARDEKKJANNA !
Bókhaldsdömur bæjarins taka nokkrar teygjuæflngar með morgunkaff-
inu en gáfu sér engu að síður tíma til myndatöku. Þær eru hér f.v.: Jak-
obína Sigurrós Sigurðardóttir, Jóna Sigursteinsdóttir, Arnbjörg Sveins-
dóttir og Helga Björk Guðmundsdóttir.
Höfum líka okkar
eigin heilsueflingu!
Rætt við þær Jónu Sigursteins-
dóttur og Arnbjörgu Sveinsdóttur
Þær Jóna Sigursteinsdóttir og
Arnbjörg Sveinsdóttir eru komnar
vel á veg í þátttöku sinni í Heilsu-
eflingunni þegar Fjarðarpósturinn
knýr dyra. Þær starfa við bókhald
bæjarins og þar eru einnig þær
Helga Björk Guðmundsdóttir og
Jakobína Sigurrós Sigurðardóttir.
Hinar tvær síðarnefndu eru hins
vegar ekki byrjaðar að sækja nám-
skeiðin, eru í öðrum hópi þar sem
ekki má loka skrifstofunni meðan
námskeið standa yflr.
Spurt er að þeim kostum sem
fylgja átakinu. Að mati þeirra stallna
þá eru þeir ýmsir.
„Eg sá það til dæmis þegar ég fór í
þolprófið hjá Páli Ólafssyni að ég er
ekki í nógu góðu formi og lakara en
ég hélt," segir Ambjörg. Að öðru
leyti reyndist líkamlegt ástand hennar
gott, bæði þyngd og blóðþrýstingur.
Teygjuæfingar
„Þátttaka í þessum námskeiðum
hefur að mínu mati fyrst og fremst
þau áhrif að við erum meðvitaðri um
lífsstíl og reynum að bæta okkur á
ýmsum sviðum," segir Jóna.
Það kemur hins vegar í ljós að
heilsuefling er ekki beinlínis nýtt fyr-
irbrigði þama á bókhaldsskrifstofun-
um. Á hverjum degi taka þær stöllur
sig saman, rétt fyrir morgunkaffið, og
verja fimm til tíu mínútum í teygju-
æftngar. Það ku vera skringilegt upp-
lit á ýmsum sem rekast þar inn á þeim
tíma. En framtakið er lofsvert og
mættu fleiri taka sér bókhaldsdömur
bæjarins til fyrirmyndar að þessu
leyti.
Heilsusamt
Þær segjast ánægðar með þá að-
stöðu sem þeim er sköffuð til vinn-
unnar. Sjúkraþjálfaramir hafi síðan
bent þeim á ýmsar úrbætur varðandi
ýmis dagleg störf, bæði í vinnu og
heima. „Þó geti orðið erfitt að breyta
úr því að skúra svona," segir Jóna og
sýnir með tilþrifum hefðbundnar
skúringahreyfingar, „heldur svona,"
bætir hún síðan við eftir að hafa rétt
úr bakinu en beygt hné. Þær telja
samt sem áður að ýmislegt eigi eftir
að „síast inn" og hreyfitæknin batni
verulega eftir að þær haft fengið
þessa tilsögn.
Jóna og Ambjörg segja mjög at-
hyglisvert að lausnir við hnökrum í
heilbriginu þurfi ekki endilega að
vera svo flóknar. Þannig þurfi oft
ekki annað en góðan göngutúr til
þess að koma líkamanum í þokkalegt
ástand. „Og ég er byrjuð á því," seg-
ir Ambjörg.
Bjóðum úrval af nýjum dekkjum,
ásamt sóluðum NORDEKK
FLJÓT
OG GÓÐ
ÞJÓNUSTA
VANIR
MENN
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
Berglind með
bestan árangur
I frétt Fjarðarpóstsins af ár-
angri Hafnflrðinga á opna al-
þjóðlega dansmótinu sem haldið
var nýlega í bænum, var ekki
greint frá besta árangri bæjar-
búa en það var fyrsta sæti Berg-
lindar Ingvarsdóttur og Bene-
dikts Einarssonar í bæði latin-
og standard dönsum í flokki 12-
13 ára.
Berglind er Hafnfírðingur í húð
og hár en ekki sást af úrslitunum
að hún væri úr bænum þar sem
uppruni pars var miðaður við karl-
manninn og þau því skráð sem par
frá Garðabæ.
Þau Berglind og Benedikt hafa
náð góðum árangri í íþrótt sinni
og má í því sambandi nefna að
þau urðu alþjóðlegir meistarar í
flokki 11 ára og yngri á móti í
Englandi. I næsta mánuði munu
þau keppa fyrir íslands hönd á
Norðurlandamótinu í Oðinsvé.