Fjarðarpósturinn - 10.11.1994, Page 11

Fjarðarpósturinn - 10.11.1994, Page 11
FJARÐARPÓSTURINN 11 Umsjón Jóhann G. Reynisson Handboltamenn framtfðarinnar í Hafnarfirði HEPPINN Hátt f þúsund strákar kepptu á risamótinu Eitt fjölmennasta íþróttamót, sem haldið hefur verið í Hafnar- fírði, fór hér fram um síðastliðna helgi. Þetta var fyrsta fjölliðamótið af þremur sem gefur handknatt- leiksliðum í 6. og 7. flokkum stig til þátttöku í úrslitum. Skráð voru 85 lið til þátttöku og leiknir 223 leikir en tvö lið mættu ekki. Ef gert er ráð fyrir að meðalfjöldi í liði sé um 10 strákar þá hafa, rúmt reiknað, um 850 keppendur mætt í Fjörð- inn til að spila handbolta. Þá eru ótaldir foreldrar og aðrir á- horfendur sem mættu til að hvetja sína menn, þjálfarar, dómarar, ritarar, tímaverðir, skipuleggjendur og annað starfslið sem kemur að svo stóru móti. Það er ekki út í hött að segja að hátt á annað þúsund manns hafi kom- ið að framkvæmd og keppni í mót- inu. Slík tala gefur góða mynd af um- fangi þess. Keppt var í öllum stærri íþrótta- húsum Hafnarfjarðar. Skipulagning var með miklum ágætum og þótti strákunum t.a.m. mikil upphefð fólg- in í því að sjá úrslit og leikjafyrir- komulag tölvukeyrt og prentað út reglulega. Mörg þeirra félaga, sem sendu stráka í keppnina, sendu fleiri en eitt lið; a, b, og c lið og jafnvel nokkur í hvem þessara flokka. Úrslitin Þeir eru kappsfullir þessir ungu menn sem skipa c-lið FH og Hauka í sjö- unda flokki. Myndin var tekin á Hafnarfjarðarmótinu sem var fyrsta mótið af þremur sem gefa stig til þátttökuréttar í úrslitum íslandsmeist- aramótsins. Hátt í þúsund strákar kepptu á mótinu sem fram fór í öllum AÐ EIGIN VALI AÐ UPPHÆÐ KR. 25.000 Héöan í frá veröur FJARÐARPOSTURINN seldur í áskrift og lausasölu. Um leiö og viö þökkum bæjarbúum frábærar móttökur sem blaöiö hefur fengiö þá viljum viö bjóöa þér lesandi góöur aö gerast áskrifandi. | Nöfn allra áskrifenda, eldri og nýrra, sem byrja áskrift fyri 10. desember fara í pott sem dregiö veröur úr og birtist nafn hins heppna í blaöinu sem kemur út 15. desembi j-sssari. áhverjum fimmtudeg. ognafniöþittverftur í pottinunn desember ð <r- Vilt þú nýtt útlit á bílinn Komdu með bílinn til okkar og hann verður sem nýr Bón - Þvottur - Þrif að innan Djúphreinsun á sætum og teppum Mössun - Lakkhreinsun - Vélarþvottur Skreyting - Lagfæring á lakkskemmdum NÝJA BÓNSTÖÐIN Trönuhraun 2,220 Hafnarfjörður Sími: 652544 SÆKJUM - SENDUM Árangur liðanna var misjafn eins og gengur en Haukar og FH náðu á- gætum árangri. Það skal tekið fram að engir milliriðlar voru leiknir á mótinu þannig að eftir að riðlaum- ferðin hafði farið fram þá var strax leikið um sæti. Annars var árangur þannig: I 7. flokki a-liða urðu FH-ingar í fjórða sæti og Haukar í sjöunda; í b- liðum var FH í fjórða og Haukar í sjöunda; í c-Iiðum urðu Haukar í fjórða og FH í sjöunda. I 6. flokki a-liða varð FH í fimmta og Haukar í sjötta sæti en varpað var hlutkesti um röðunina þannig að í raun voru liðin jöfn; í b-liðum urðu Haukar í öðru sæti og FH í fjórða og í c- liðum sigruðu Haukar-2 og FH- ingar urðu í öðru sæti. Frábærir íþróttamenn Þótt ungir séu að árum þá fóru hin- ir ungu handknattleiksmenn á kost- um í kappsfullum leikjum sínum. Skyttur stukku upp fyrir utan punkta- línu og létu þrumuskotin dynja á mörkunum, í markvörðunum eða í netinu. Hornamenn og leikstjómend- ur „fittuðu" með tilþrifum, bmtust í gegn og boltinn fór sömu leið og hjá skyttunum. Öflugir línumenn vom aðsópsmiklir inni í kröftugum vam- arleik andstæðinga sinna og mark- verðimir, sem taldir em fómfúsustu og ósérhlífnustu leikmenn handknatt- leiksins (stundum rætt um sérþjóð- flokk í því sambandi) stóðu átrúnað- argoðum sínum fyllilega á sporði með listilegum tilþrifum. Raunar er stórskemmtilegt að fylgjast með þessum ungu köppum á vellinum því taktamir em snemma famir að segja verulega til sín. Þeir, sem kepptu á þessu móti, vom allt að níu ára. En ungur aldur var samt sem áður ekki það sem vakti mesta at- hygli heldur faglegir tilburðir og í- þróttamannsleg framkoma. Ljóst er að þama em á ferðinni frábærir í- þróttamenn og mörg landsliðsmanna- efni framtíðarinnar. Þá var einnig gaman að fá nokkra pilta úr 7. flokki til þess að koma saman fyrir mynda- töku; bæði FH og Hauka. Og það stóð ekki á viðbrögðunum þegar spurt var við myndatökuna hverjir væm bestir. Haukar og FH hljómaði örugglega um gervallt suðvestur- homið og mátti ekki greina hvorir væm raddsterkari! AUGLYSINGASÍMI FJARÐARPÓSTSINS ER 651745 j ólbarðþ j ónusta Hjalta Hjallahraun4 220 Hf. V> Sími - 652121 Nýir og sólaðir hjólbarðar á góöu verði 10 % stgr. afsláttur af hjólbörðum og þjónustu 20 % stgr. afsláttur af þjónustu fyrir ellilífeyrisþega Láttu okkur geyma sumar / vetrar hjólbaröanna og losnaðu við allt það umstang og þann óþrifnað sem fylgir hjólbörðum fyrir vægt geymslugjald STYBKJUM landgrœðslu LJllí Örugglega feti framar

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.