Fjarðarpósturinn - 08.12.1994, Blaðsíða 2

Fjarðarpósturinn - 08.12.1994, Blaðsíða 2
2 FJARÐARPÓSTURINN STJÖRNUSPÁ Gildir frá fimmtudegi 8. desember til miðvikudags 14. desember. Vatnsberinn (20. jan. - 18. feb.) Þessi helgi virðist ætla að verða eitt- hvað ruglingsleg. Einhver gengur hart að þér að takast á við skuldbindingar, en þú ert ekki alveg tilbúin(n). Þú ert á mótþróaskeiði. Notaðu miðvikudaginn til að versla. Fiskarnir (19. feb. - 20. mars) í þessari viku er upplagt að gera þær kröfur og heimtingar sem þér ber með réttu. Láttu alla í kringum þig vita um óskir þínar. Og vegna tillitsemi þinnar almennt er engin hætta á að þú gangir of langt. Hamraðu jámið meðan það er heitt. Hrúturinn (21. mars - 19. apr.) Það er með ólíkindum hvað allt gengur upp, þessa dagana. Þetta nýja tímabil ætlar að verða þér heillavænlegt. Gerðu lista yfir allt sem þú óskar þér og sjáðu hvað skeður á jólunum. Nautið (20. apr. - 20. maí) Þú ert að ganga inn í tímabil mikilla framfara og getur orðið frumkvöðull á þínu sviði, ef þú leggur þig fram. Lumarðu ekki á góðri hugmynd? Ein- hver í ljónsmerkinu hvetur þig og dáir. Tvíburinn (21. mai - 20. júní) Þvílíkt laugardagskvöld sem þú átt í vændum! Þú stendur á tímamótum í lífi þínu og getur valið um að endur- bæta það sem fyrir er eða taka upp nýja stefnu, ný áform, eða nýja ást. Þessu nýja tímabili fylgir líka ný ábyrgð. Krabbinn (21. júní - 22. júlí) Óvenjulegar aðstæður koma upp um helgina sem valda breyttum heimilis- högum. Breytingar eru oftast til hins betra. Það er gleði í kring um þig og samskiptaörðuleikar fuðra upp af sjálfu sér. Ljónið (23. júlí - 22. ágúst) Þinn besti vinur og ráðgjafi er sá eða sú sem stendur þér næst. Svo "líttu þér nær". Þér hættir enn til að vera á und- an áætlun. Gott mál er að plana fyrir framtíðina en það er "núið" sem skipt- ir öllu máli. Meyjan (23. ágúst - 22. sept.) I byrjun næstu viku og fram til 16. des. er besti tíminn til að hlúa að fjarstödd- um ættingjum og vinum. Þú virðist í góðu líkamlegu og andlegu jafnvægi. Þér farnast vel og það er heill yfir þér. Vogin (23. sept. - 22. okt.) Einhver sem hefur átt erfítt undanfarið þarfnast þín. Hafðu endilega samband. Svo þarft þú að átta þig á því hvort þú átt tíma aflögu í sjálfboðastarf. Sýndu á þér betri hliðina á sunnudag. Og brostu. Sporðdrekinn (23. okt. - 21. nóv.) Það virðist einhver pirringur í fólkinu þínu og ef þú sýnir kærleik og vænt um þykju í stað þess að fara f fýlu, verður allt gott. Þú hefur sterkari áhrif á fólk en þú gerir þér grein fyrir. Bogmaðurinn (22. nóv. - 21. des.) Þú ert einstaklega fær um að láta öðr- um líða vel í kringum þig. Sannkallað- ur gleðigjafi! Gleymdu samt ekki að hlúa að þínum eigin tilfinningum. Ast- in mun sigra óttann. Steingeitin (22. des. - 19. jan.) Þér finnst þessir dýru og umdeildu tölvuleikir, sem jólagjafir, fyrir yngri kynslóðina, alveg út í hött. Þú vilt frek- ar fjárfesta í góðum bókum sem bera heilbrigðan og þroskandi boðskað. Mundu eftir litlu hlutunum. MUNIÐ AÐ BROSA Rokkskóli stofnaður í Hafnarfirði Nýjung f tónlistar- kennslu hérlendis -segir Stefán Hjörleifsson skólastjóri Rokkskólans Stefán Hjörleifsson: Kennt verður á öll helstu hljóðfæri rokktóniistar. Um áramótin mun nýr tónlistar- skóli taka til starfa í Hafnarfirði. Stefán Hjörleifsson verður skóla- stjóri og segir hann að um nýjung í tónlistarkcnnslu sé að ræða hér- lendis þar sem kennslan fer að mestu fram í gegnum rokk- og popptónlist þó tækniæfíngar og tónfræðikennsla verði á svipuðum nótum og í hefðbundnum tónlist- arskólum. ''Rokkskólinn verður einskonar farandskóli að því leytinu að sama kennslan fer fram á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu," segir Stefán. "Grunnhugmyndin er sú að í stað þess að nemendur þurfi að sækja kennslu langa leið koma kennararnir til þeirra.” I máli Stefáns kemur fram að kennt verður á öll helstu hljóðfæri rokktónlistar og til að byrja með verður kennt á rafmagns- og kassagítar, trommur, bassa og söng. "Auk þess munu nemendur sækja tónfræðikennslu og samspil verður stór þáttur hjá lengra komnum nem- endum," segir Stefán. "Við munum halda tónleika og nemendum gefst kostur á að fara í hljóðver." Þekktir kennarar Meðal kennara rokkskólans verða nokkrir af þekktustu tónlistarmönn- um landsins og má nefna auk Stefáns þau Andreu Gylfadóttur söngkonu, Guðmund Pétursson gítarleikara, Gunnlaug Briem og Olaf Hólm trommuleikara og Eið Arnarsson bassaleikara. Kennslan fer fram í Vitanum og að Dalshrauni 22 og er í námskeiða- formi og er hver önn tíu vikur. Nám- ið verður sniðið að þröfum hvers og eins og taka allir nemendur stöðu- próf. Stefán segir að öll reynsla verði metin og nemendum raðað í deildir eftir getu þeirra í grunndeild, milli- deild og framhaldsdeild. Byrjenda- kennsla fer fram í þriggja rnanna hópum og verður ódýrari en kennsla í milli- og framhaldsdeild sem fer fram í einkatímum. Frá Hafnarfirði til Hollywood Stefán Hjörleifsson hefur spilað með hljómsveitinni Ný dönsk á und- anförnum árum. Hann er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði og hann lauk stúdentsprófi frá Verslunarskólanum 1984. Eftir það innritaðist hann í tón- listarskóla FÍH og lauk þaðan prófi 1987. Að þessu loknu fór hann til Hollywood í framhaldsnám í tónlist. Áður en hann hélt utan var Stefán meðlimur í hljómsveitinni Bítlavina- félagið. A síðustu fjórum árum hefur hann spilað með hljómsveitinni Ný dönsk og kennt við tónlistarskóla FIH sam- hliða. Aðspurður um rokkskólann segir Stefán að með þeirri nýjung gefist þeim sem vilja kostur á að læra tón- list á fræðilegum nótum í gegnum þá tónlist sem þeir hafa áhuga á. "Stór hluti nemenda mun fá hljóðfæratíma, tónfræði og samspilskennsku auk þess að fá að spila í hljóðveri og á tónleikum," segir Stefán. KOMPAN Pappírsflóð inn um bréfalúgur Áætla má að rúmlega kíló af pappír hafi streymt inn um bréfalúgur bæjarbúa um síðustu helgi. Þetta árlega pappírsfargan er stöðugt að aukast en margir telja það ntjög hvimleitt. Um er að ræða allskonar auglýs- ingapésa, jólagjafahandbækur, sparihefti heimilanna og svo framvegis. Það er spuming hvort þeir sem senda þennan pappír út hafi erindi sem erfiði því hætt er við að hjá mörgum fari þetta "dót" beint í ruslatunnuna ólesið. Mikill áhugi á bensín- stöövum I kjölfar áhuga Irving Oil á að korna upp bensínstöðvum á höf- uðbogarsvæðinu þar á meðal í Hafnarfirði hafa íslensku olíufé- lögin þrjú sýnt því mikinn áhuga að koma upp fleiri bensínstöðv- unt hér í bænum. Hið sama er upp á teningnum í Reykjavík en þar sverja forráðamenn olíufé- laganna af sér að eitthvert sam- hengi sé á milli þessa áhuga þeirra nú og fyrirætlana Irving Oil. Herra Með kveðju Hafnarfjarðarbrandarar leyn- ast víða og hér er ein saga af bréfaskriftum íslendings við er- lent fyrirtæki. Hann sendi fyrir- tækinu bréf með ákveðnu erindi og skrifaði undir það "Með kveðju" eins og kurteisi þykir. Þegar hann fékk svarbréf frá erlenda fyrirtækinu hófst það á þessa leið: "Dear mister Með kveðju..." GAFLARI VIKUNNAR Á leið til byggða Riiiing, Hver er á línunni? Stekkjastaur. Hvenær átt þú afmæli? Hvenær? Eg veit það ekki, Jú, ég á afmæli einu sinni á ári. Hvar áttu heinta? I Esjunni. Áttu börn? Já, Já, ég á öll góð börn. Áttu sleða? Já ég á sleðann sem hann pabbi minn, hann Leppalúði smíðaði héma um árið. Fínn sleði það. Starf? Jólasveinn. Helsti veikleiki? Hvað ég er latur á milli jólanna. Helsti kostur? Hvað ég er duglegur á jólunum. Uppáhaldsmatur? Hangiket. Versti matur? Eg þori ekki að segja það. Hún Grýla, mamma, gæti séð þetta. Uppáhaldstónlist? Auðvitað "Jóla- sveinar einn og átta." Uppáhaldstónlistarmaður? Hann Giljagaur. Hann syngur svo vel jóla- lögin. Uppáhaldsíþróttamaður? Hann Gáttaþefur. Hann hleypur svo hratt þegar hann finnur lykt af góðum mat. Uppáhaldssjónvarpsefnið? Barna- tíminn á jólunum. Leiðinlegasta sjónvarpsefnið? Allt sem ekki er fyrir börn. Uppáhalds útvarps-og sjónvarps- maður? Við jólasveinamir. Uppáhaldsleikari? Hann Kertasník- ir. Hann leikur svo vel þegar hann er að sníkja kerti. Besta kvikmynd sem þú hefur séð? Eitthvað Kraftaverk á 54 stræti í henni Ameríku. Hvað gerir þú í frístundum þín- um? Leik mér með bræðrum mín- um. Fallegasti staður sem þú hefur koniið á? Fjallið mitt, auðvitað. Hvað metur þú mest í fari ann- arra? Að vera góðir við bömin. Hvað metur þú síst í fari krakka? Óþekkt. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Platjólasveina í öðrum löndum. Hvað ntyndir þú vilja í afmælis- gjöf? Nýjan jólasveinabúning. Fal- lega rauðan. Hvað rnyndir þú gera ef þú ynnir 2 ntillj. í happadrætti? Kaupa mat handa aumingja litlu krökkunum sem fá ekkert að borða Hvað myndir þú gera ef þú værir bæjarstjóri í einn dag? Gera Hafn- arfjörð að jólasveinabæ. Uppáhalds Hafnarfjarðarbrand- arinn þinn? Hefurðu heyrt um jóla- sveinana sem þorðu ekki yfir hring- torgið í Hafnarfirði? Þeir vom svo hræddur um að verða hringavitlausir.

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.