Fjarðarpósturinn - 08.12.1994, Qupperneq 7
FJARÐARPÓSTURINN 7
Ljóst er að sáralitlar eða nær engar nýframkvæmdir verða á næsta ári.
stæðisflokks og Alþýðubandalags
sem mynda meirihlutann um álagn-
ingu fyrrgreindra gjalda. "Við teljum
okkur vera á góðri leið með þessi mál
því við munum ekki minnka þjónustu
við bæjarbúa," segir Magnús Jón.
Bókanir í bæjarráði
Tillaga meirihlutans um álagningu
gjalda var lögð fram á síðasta bæjar-
ráðsfundi. I framhaldi af því óskuðu
bæjarráðsmenn Alþýðuflokksins
bókað að þeir..."lýsa sig algerlega
andvíga þeim gríðarlegu skattahækk-
unum á bæjarbúa, sem felast í tillög-
um meirihluta Alþýðubandalags og
Sjálfstæðisflokks en munu gera nán-
ari grein fyrir afstöðu sinni við af-
greiðslu málsins í bæjarstjóm."
A móti óskuðu fulltrúar meirihlut-
ans að bókað yrði að: "Tillögur
meirihluta bæjarráðs um álagningu
gjalda fyrir árið 1995 eru bein afleið-
ing af óhóflegri umframeyðslu og
skelfdegri skuldasöfnun meirihluta
Alþýðuflokks undanfarin ár. Um-
frameyðslan nemur á árinu 1994 ein
sér hátt í milljarð króna. Hún er á á-
byrgð fyrri meirihluta og undan þeirri
ábyrgð geta þeir ekki vikist."
Þá óskuðu bæjarráðsmenn Al-
þýðuflokksins eftir skriflegum svör-
um við nokkrum spumingum. Þær
em í fyrsta lagi hvemig lántöku upp á
1.300 milljónir kr. hefur verið varið
miðað við þann 1. desember s.l.?
Hvað líður bókuðum skuldbreyting-
um meirihlutans á eldri óhagstæðum
lánum bæjarsjóðs? Og hvaða lán hafa
verið greidd upp og á hvaða kjörum
voru þau lán og hversu miklu hag-
stæðari em þau nýju lán sem tekin
hafa verið?
Ómar Smári Ármannsson.
stæður. Undanfarin ár hafa bæjaryfir-
völd lagt áherslu á að halda uppi háu
atvinnustigi í bænum miðað við hið
slæma ástand á landsvísu. Nú hallar
undan fæti vegna þess að núverandi
meirihluti hefur ekki haft dug í sér til
að taka á nauðsynlegum málefnum
líðandi stundar. Þetta dugleysi ætlar
að reynast bæjarbúum dýrkeypt.
Málsvari verkafólks, kommarnir,
hafa reynst því verri en enginn og
málsvarar fyrirtækja, íhaldið, hefur
ekki einu sinni haft dug í sér til að
framkvæma tillögur um eflingu at-
vinnulífs í bænum, þvert á móti. Með
markvissum aðgerðum á að vera til-
tölulega auðvelt að koma aftur á
jafnvægi í fjármálum bæjarins. Til
þess þarf fólk, sem vill og getur.
Tugir þúsunda
Með hækkun skatta og gjalda
aukast álögur á fjölskyldur í bænum
um tugi þúsunda á ári. Á sama tíma
er ólíklegt að laun þeirra hækki að
nokkru marki. Erfiðleikamir aukast
enn hjá allmörgum og líklegt er að
einhverjum verði gert ómögulegt að
sjá sér og sínum farborða. Enginn í
núverandi meirihluta virðist hafa á-
hyggjur af því. Laun þeirra allra
megast teljast vel viðunandi.
Það er lágmarkskrafa að kjömir
fulltrúar standi við þau loforð, sem
þeir gefa. Fólkið hlítur að gera þá
kröfu - það er réttur þess. Nú reynir á
að þetta sama fólk láti í sér heyra og
krefjist réttar síns. Það á ekki að
sætta sig fyrir afsakanir eða rangar
fullyrðingar. Fólkið á rétt að komið
sé fram við það af heiðarleika og
sanngimi. Það hafa fúlltrúar íhalds
og komma svo sannarlega ekki gert.
Brunavarnarátak Landssambands slökkviliðsmanna
Grunnskólar heimsóttir
Hið árlega brunavarnarátak
Landssambands slökkviliðs-
manna cr nú hafið og heimsótti
slökkviliðið í HafnarFirði alla
grunnskóla bæjarins í upphafi
vikunnar til að kynna átakið.
Þetta átak hefur verið árlegur
viðburður fyrir jólin og áramótin
frá árinu 1985.1 ár verður átak-
ið m.a. í formi "Eldvarnardags"
og var hann á s.l. mánudag um
land allt.
I frétt frá LSS kemur fram að á
2. þingi sambandsins sem haldið
var í vor kom til umfjöllunnar sú
hugmynd að LSS beitti sér fyrir því
með hagsmunaaðilum að komið
yrði á umræðu um bættar eldvamir
í öllum sveitarfélögum landsins.
Slíkt átak væri jafnframt vel til þess
fallið að stuðla að frekari kynningu
á starfsemi slökkviliðsins á hverj-
um stað.
I framhaldi af þessu ákvað stjóm
LSS að komið yrði á fót sérstökum
"Eldvamardegi" um land allt og
verður hann fyrsti mánudagur í
desember.
Fyrirkomulagið á mánudaginn
var með þeim hætti að slökkviliðs-
menn heimsóttu grunnskólana og
dvöldu um hálftíma á hverjum stað.
Meðal þess sem gert var í þessum
heimsóknum var kynning á getraun
um brunavamir sem öllum grunn-
skólanemum stendur til boða að
taka þátt í en vegleg verðlaun eru í
boði fyrir rétt svör við spumingun-
um í henni. Fjarðarpósturinn birtir
þessa getraun hér en skilafrestur í
henni er til 6. janúar á næsta ári og
verður dregið úr réttum lausnum
þann 17.janúar.
Vfsbendingar
um hvernig rétt er að svara spurningum
Vísbending við spurningu 1.
Meirihluti allra dauðsfalla í
brunum í heimahúsum verða að
næturlagi þegar fólk er í fasta-
svefni.
Það kemur þér kannski á óvart
að sofandi maður frnnur ekki reykj-
arlykt. Eitraðar lofttegundir sem
myndast við bmna deyfa lyktar-
skynjun jafnhliða því að slæva
meðvitund svo hann sefur ennþá
fastar.
Vísbending við spurningu 2.
Reykskynjari sem er í ólagi
tryggir ekki öryggi þitt.
Líf þitt og fjölskyidu þinnar gæti
verið undir því komið að gerð sé
mánaðarleg prófun á hverjum reyk-
skynjara.
Hafðu það fyrir reglu að skipta
um rafhlöðu í reykskynjaranum ár
hvert t.d. í desembermánuði.
Vísbending við spurningu 3.
Mikil aukning hefur orðið á raf-
magnstækjaeign heimilanna svo
sem á heimilistölvum, síðastliðin
ár.
Gífurleg aukning hefur orðið á
sjónvarpstækjaeign landsmanna.
Þannig er orðið algengt að sjón-
varpstæki séu einnig staðsett í
svefnherbergjum.
Vísbending við spurningu 4.
Reykskynjari endist ekki að ei-
lífú, rannsóknir sýna að tíu ára
gamall reykskynjari er farinn að
missa nauðsynlegan næmleika sinn
til viðvörunar.
Þú skalt því endurnýja reyk-
skynjara þinn, sé hann orðinn tíu
ára eða eldri.
Vísbending við spurningu 5.
Vertu þess viss að allir þekki
hljóðið í reykskynjaranum. Það
þarf að vera til áætlun um tvær
mögulegar útgönguleiðir úr svefn-
herbergjunum ef kviknar í.
Vertu fullviss um að allir geri sér
grein fyrir því að húsnæðið skuli
yfírgefið þegar í stað.
Mikilvægt er að koma sér saman
um sameiginlegan stað utandyra
þar sem allir eiga að safnast saman
eftir að tekist hefur að flýja elds-
voðann.
Leggðu á ráðin og æfðu neyðar-
útgöngu sjálfur í þínu umhverfi.
Vísbending við spurningu 6.
Helstu björgunaraðilar eru lög-
regla, slökkvilið, þeir sem annast
sjúkraflutninga og björgunarsveitir.
Kynntu þér hvemig og hvenær á
að hringja í neyðarsímanúmer í
þinni heimabyggð.
Vísbending við spurningu 7.
Ástæða er til að benda á nokkur
grundvallaratriði sem gætu komið í
veg fyrir m.a. augnslys bama og
unglinga um áramót:
*Lestu vel meðfylgjandi leið-
beiningar um flugelda og blys.
*Hafðu undirstöðu skotelds
trygga.
*Gættu þess að við notkun hand-
blysa hafi böm ávallt hanska á
höndum.
*Láttu aldrei lítil böm bera eld
að flugeldum og blysum.
BRUNAVARNAÁTAK LSS 1994
1. Er reykskynjari á þínu heimili ? Já Nei
2. Er hann í lagi ? Já Nei
3. Er þörf fyrir fleiri en einn reykskynjara
í venjulega íbúð ? Já Nei
4. Hveð endist reykskynjari í um það bil
mörg ár ?
3-5 ár 5 - 7 ár 7-10ár 10- 15 ár
5. Er gert ráð fyrir neyðarútgönguleið heima
hjá þér og í skólanum þínum ef eldur
kemur upp? Já Nei
6. Þekkir þú neyðarsímanúmer í
þínu byggðarlagi ? Lögregla Slökkvilið
7. Er notkun flugelda, blysa og hvellhetta
algengasta orsök augnslysa um áramót?
(Við slys á augum er ávallt rétta að
leita læknis !) Já Nei
Svör sendist til Landssambands slökkviliós-
manna. pósthólf 4023 og þarf að póstleggja
þau fyrir miðnætti 6. janúar 1995.
Dregið verður úr innsendum svörum
17. janúar n.k.
X -----------------
Nafn.
Heimili.
. Póstnr.
Millifyrirsagnir eru blaðsins