Fjarðarpósturinn - 09.02.1995, Síða 2
2 FJARÐARPÓSTURINN
STJOPIHIfiPá
Gildir frá fimmtudegi 9. febrúar til mið-
vikudags 15. febrúar.
Vatnsberinn (20. jan. -18. feb.)
Þú verður óvænt sammála og sátt við
einhvern sem þú umgengst og hefur
ekki haft mikið álit á og þú skilur ekki
í raun, þessa hugarfarsbreytingu. Það
er ekki ráðlegt að vera of háður öðr-
um, hvorki tilfinningalega, fjárhags-
lega né félagslega.
Fiskarnir (19. feb. - 20. mars)
Einhver í vogamerkinu heimtar sam-
starf á jafnréttisgrundvelli. Því betur
sem þú agar þig, því traustara verður
þetta samstarf. Ef vinnan er að draga
þig í þunglyndi, skaltu fresta öllu því
sem þú mögulega getur til morguns.
Nýr dagur - ný viðhorf.
Hrúturinn (21. mars -19. apr.)
Reyndu að ganga frá ókláruðu verki,
svo þú getir byrjað á nýju. Það er svo
mikil væntumþykja, gleði, rómantík,
velgegni og óblífandi samheldni í
kringum þig. Njóttu vel því staðan er
einstök.
Nautið (20. apr. - 20. maí)
Þú ert í miklu uppáhaldi og áliti hjá
fjölskyldu og vinum þessa viku. Þeim
finnst þú “toppurinn" og ekkert sem þú
gerir er rangt. Það er engin hætta að
þér stígi þessi upphefð til höfuðs því
þú veist ekki af þessu. Eins manns
missir verður þinn gróði.
Tvíburinn (21. mai - 20. júní)
Ja, hérna, Það skyldi þó ekki vera að
þú sért ástfangin(n). Varstu búin(n) að
gleyma hvernig þetta var? Farðu nú
ekki að flækja þessa sælu með göml-
um sárum minningum sem ættu að
vera löngu dauðar. Sumir hafa á orði
að það sem þú snertir verður að gulli.
Krabbinn (21. júní - 22. júlí)
Fjölskyldan kemur saman um helgina
og þar verður mikil og einlæg sam-
heldni. Innilegt ástarsamband magn-
ast og þér finnst þetta allt meir en ó-
trúleg upplifun. Einlægnin ein blífur
þessa dagana.
Ljónið (23. júlí - 22. ágúst)
Fortíðin er eitthvað að angra þig um
helgina og til að fá frelsi þarf sátt. Því
veröur ekki breytt. Opnaðu allar gáttir
og tjáðu þínar skoðanir. Láttu svo
vaða á ókönnuð mið. Þú veist alveg
hvað þú vilt.
Meyjan (23. ágúst - 22. sept.)
Farðu þér bara rólega þessa viku en
stattu þó á þínu striki. Þú vinnur ó-
hemju mikið á þögninni og þolinmæð-
inni, þótt þér finnist svo ekki vera.
Ræktaðu samband við góðan vin sem
er á andlega sviðinu. Þú færð nú
stundum skilaboð, taktu eftir þeim.
Vogin (23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur einstaklega virðulegan orðs-
týr og á honum tekst þér að fleyta þér
vel áfram í samskiptum við aðra og í
viðskiptum. Þér er sjaldan neitað.
Leitaðu sannleikanns með því að
spyrja þá sem vita svörin. Tíminn leið-
ir “allt" í Ijós.
Sporðdrekinn (23. okt. - 21. nóv.)
Vonir gærdagsins fljóta nú upp á yfir-
borðinu, ekki aldeilis gleymdar. Núna
er þér rétt tækifærið upp í hendurnar.
Ekki eru allir svona lánsamir. Ósk-
hyggja kemur oft hjólinu til að snúast
og hvetur mann til framkvæmda.
Bogmaðurinn (22. nóv. - 21. des.)
Hugur þinn er reikandi um þessar
mundir, og sjálfur ertu farin(n) að ferð-
ast um heimsins höf. Þú virðist eitt-
hvað í leit að gömlum góðum stund-
um og gömlum hefðum sem í minn-
ingu þinni veitti þér áður hamingju.
Vinur minn, líttu þér nær.
Steingeitin (22. des. -19. jan.)
Kynntu þér alla málavexti vel, því
þessi slóttuga gagnrýni, sem skellur á
eins og skrattinn úr sauðaleggnum, er
vel undirbúin. Vert þú undirbúin(n).
Þetta líöur þó yfir og gleymist, bara
enn einn liður á þroskabrautinni. Af-
greitt mál!
Munið að brosa.
Helmingur nýrra djálkna kemur úr Hafnarfirði
Starf djálkna er
ómótað hérlendis
segir Sigríður Valdimarsdóttir, ein
þeirra er útskrifaðist um síðustu helgi
Djálknar voru í fyrsta sinn út-
skrifaðir frá Háskóla Islands um
síðustu helgi. Af þcim sex sem út-
skrifuðust var heimingur úr Hafn-
arfirði, allt konur. Þetta eru þær
Sigríður Valdimarsdóttir, Rósa
Kristjánsdóttir og Brynhildur Osk
Sigurðardóttir. Sigríður segir að
starf djálkna hérlendis sé ómótað
en hún hafí farið í þetta nám til að
ná sér í meiri þekkingu til að geta
sinnt betur kristnifræðikennslu
sem hún telur vanrækta hérlendis.
Sigríður Valdimarsdóttir hefur
starfað sem kennari við Lækjarskóla
frá árinu 1987. Hún segir að hún hafi
fengið launað orlof til að stunda
Vitinn og Æskulýðsráð munu
standa fyrir borðtennismóti og
spurningakeppni fyrir unglinga-
limra
Sigurður T. Sigurðsson sendi
Fjarðarpóstinum eftirfarandi
limru sem hann samdi þegar
gauragangurinn var sem mestur
út af skuldamálum bæjarins.
Til bæjarstjómar Hafnarfjarðar:
Ykkar stóru glappaskota bæjar-
sjóður geldur
undir geðillsku og skítkast er
hann ofurseldur
svo mikill fnykur er
af fundum hér
að fólk sem gengur um götur
grípur um nef og heldur.
djálknanámið þegar það bauðst. “Ég
hef alltaf starfað í Frfkirkjunni, við
barna- og unglingastarfið þar, og
mun verða vígð þangað sem djálkni
nú þann 12. febrúar” segir Sigríður.
Vígslan fer fram í Dómkirkjunni og
mun Brynhildur vígjast til Víðistaða-
kirkju en Rósa til ríkisspítalanna.
Aðspurð um djálknanámið segir
Sigríður að þær hafi setið í tímum
með öðrum guðfræðinemendum Há-
skólans en námið stóð í þrjár annir.
“Til að fara í þetta nám þarf ákveðna
grunnmenntun, ég er kennari en þær
Rósa og Brynhildur eru hjúkmnar-
fræðingar,” segir Sigríður. “Auk þess
deildir grunnskólanna nú í febrú-
ar. Borðtennismótið hefst í kvöld,
fímmtudag, kl. 20 og verður svo
framhaldiö föstudaginn 17. febrú-
ar kl. 16. Úrslitakvöldið í spurn-
ingakeppninni verður á miðviku-
daginn 15. fcbrúar.
Hver skóli má senda þrjá kepp-
endur á borðtennismótið og verður
keppt á þremur borðum. Keppt er
um nafnbótina grunnskólameistari
og þeim sem ná titlinum gefst síðan
kostur á að keppa á Reykjanesmót-
inu í borðtennis auk þess að ýmis
verðlaun verða í boði.
Hin árvissa spumingakeppni er
hafin og kepptu Setbergsskóli og
Hvaleyrarskólj í gærkvöldi, 8 feb, en
Lækjarskóli, Öldutúnsskóli og Víði-
staðaskóli þann 3. feb. s.l. Úrslita-
kvöldið er síðan á miðvikudag eins
og fyrr greinir og verður því útvarp-
að á FM 91,7.
Sigríður Valdimarsdóttir
að sitja með guðfræðingum í tímum
og taka próf með þeim að hluta vor-
um við í fagi sem heitir djálknafræði.
I þessu námi lærðum við meðal ann-
ars gömlu og nýju testamentisfræðin,
játningarnar, kirkjusögu og fleira.”
Hvað varðar starf djálkna segir
Sigríður að það felist einkum í
fræðslu- og líknarþjónustu innan
kirkjunnar og á stofnunum. Einnig er
djálknum ætlað að aðstoða presta við
guðsþjónustur með því að lesa ritn-
ingargreinar, aðstoða við sakrament-
ið og fleira.
Árnað heilla
Hann á afmæli 13. feb. hann Jó-
hann Indriði, einn af sölumönnum
Fjarðarpóstsins. Við hér á blaðinu
óskum honum til hamingju með
tíu ára afmælisdaginn.
Vitinn og Æskulýðsráð
Borðtennismót og
spurningakeppni
Fjórar
kristniboðs-
samkomur
Fjórar kristniboðssamkom-
ur verða haldnar í húsi KFUM
og K að Hverfísgötu 15 frá og
nteð kvöldinu í kvöld, fímmtu-
dag. Samkomurnar hefjast kl.
20.30 og eru allir velkonmir. Á
þeini verða myndasýningar og
sagt verður frá starfi íslenskra
kristniboða í Eþíópíu og
Kenýa. Einnig verða hugvekj-
ur og einsöngur á hverri sam-
kornu.
Á fyrstu samkomunni í kvöld
segir Gréta Bachmann fyrrum
forstöðukona frá ferð sinni til
Kenýa, sr. Frank M. Halldórsson
prestur í Neskirkju flytur hug-
leiðingu og Bylgja Dís Gunnars-
dóttir úr Njarðvík syngur ein-
söng.
I fréttatilkynningu frá Kristni-
boðssambandinu kemur m.a.
fram að þrír menn vinna við boð-
un og kynningu hér heirna á veg-
um sambandsins. Fjárþörfin er
mikil, um 20 milljónir króna á
þessu ári, og er fjárhagurinn al-
farið háður framlögum vina og
velunnara. Á samkomunum í
húsi KFUM og K gefst fólki
kostur á að styrkja starfið.
Hann verður 12. ára 11. feb.
hann, Bjarni Símonarsson, sölu-
ntaður Fjarðarpóstsins. Við hér á
blaðinu óskum honurn til ham-
ingju með daginn.
GfliUM VIKUNIiBt
Vinnufíkn
Fullt nafn? Þórarinn Jón
Magnússon.
Fæðingardagur? 3.1. 1952.
Fjölskylduhagir? Kvæntur Odd-
fríði Steindórsdóttur, leikskólaken-
nara, og á Huldu (20 ára) og Steindór
(15).
Bifreið? Toyota Carina E, árg. 1993
og Daihatsu Charade ‘92.
Starf? Ritstjóri.
Fyrri störf? Fréttamaður á Vísi.
Helsti veikleiki? Vinnufíkn.
Helstu kostur? Jafnaðargeð.
Uppáhaldsmatur? Allur matur, þó
helst blóðug nautasteik (mesta
frostið úr).
Versti matur? Mér þykir jafnvel
vondur matur góður...
Uppáhaldstónlist? Jazz, rokk og
ljúf klassík.
Úppáhaldsíþróttamaður?
Vikingurinn Siggi Sveins.
Uppáhaldsstjórnmálamaður?
Fyrrum bæjarstjóri í Carmel, Clint
Eastwood.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Fréttir
og vandaðar kvikmyndir.
Leiðinlegasta sjónvarpsefni?
Sápu-óperur.
Uppáhaldssjónvarpsmaður?
Bjami Hafþór Helgason.
Uppáhaldsútvarpsmaður? Broddi
Broddason.
Uppáhaldsleikari? Robert De Niro.
Besta leikrit sem þú hefur séð? Ég
er hættur, farinn. tek ekki þátt í þessu
leikriti.
Besta kvikmynd sem þú hefur séð?
Gaukshreiðrið.
Hvað gerirðu í frístundum? Fer í
kvikmyndahús.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Svarti skógur í
Þýskalandi.
Hvað metur þú mest í fari
annarra? Einlæga og frjálslega
framkomu.
Hvað metur þú síst í fari annarra?
Vanefndir og undirferli.
Hvern vildirðu helst hitta? Mick
Jagger.
Hvað vildirðu helst í afmælisgjöf?
Hreint veðbókavottorð.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir 2
milljónir í happdrætti? Heimsækja
Jónu á Skattinum og Þór í
Sparisjóðnum.
Hvað myndirðu gera ef þú værir
bæjarstjóri í einn dag? Gera Cindy
Crawford að heiðursborgara í
Hafnarfirði.
Uppáhalds Hafriarfjarðarbrandarinn
þinn? Það er þá helst þessi um
Hafnfírðinginn sem þekkti ekki hes-
tana sína í sundur fyrr en hann
uppgötvaði að sá brúni var meri!