Fjarðarpósturinn - 02.03.1995, Qupperneq 7
FJARÐARPÓSTURINN 7
............Umsjóii
Jéhann G. Reynisson
IÞROTTIR OG HEILSA
Körfuknattleikur - úrvalsdeild:
Framhaldið
ræðst í dag
Dugar hvorki hangs né slugs
Nokkur hagnýt atriði um heilbrigöi
Góð hreyfing eftir annasaman dag, t.d. við kyrrsetustarf, býr líkamann
undir slökun með því að nýta uppsöfnuð streituhormón. Og hreyfingin
getur verið af ýmsu tagi. T.d. segir í greininni að í þolfimi brenni 68 kg
manneskja 420 hitaeiningum á klukkustund.
1 dag, fimmtudag, ræðst hvort
Haukar fara í úrslitakcppni úr-
valsdeildarinnar í körfuknattleik.
Liðið mætir Snæfelli í kvöld í
Stykkishólmi.
„Eg geri ráð fyrir að við vinnum
Snæfell,” sagði Reynir Kristjánsson
þjálfari Hauka í samtali við Fjarðar-
póstinn en með sigri gulltryggja
Haukar sér sæti í úrslitunum.
Bandaríski körfuknattleiksmaður-
inn Mark Hadden var stigahæstur
Haukanna gegn Njarðvíkingum í síð-
asta leik. Hann kom inn í liðið þegar
nokkuð var liðið á leiktímabilið. Eins
og kunnugt er voru ekki uppi áform
um að taka inn útlending á tímabil-
inu.
„Hadden hafði samband við okkur
þegar ljóst var að hann myndi ekki
leika með KR. Við vorum með eina
útlendingslausa liðið í deildinni og
gátum tekið við honum án þess að
kosta miklu til þannig að við smellt-
Næstkomandi laugardag 4.
mars kl. 26:00 verður
sýningarsalur VIÐ HAMARINN,
Strandgötu 50 (áður Portið)
opnaður með santsýningu 12
ungra myndlistarmanna. Pessir
ungu listamenn hafa verið að
koma úr námi erlendis frá að
undanförnu, en flestir þeirra stun-
duðu nám í Myndlista og
handíðaskólanum á árunum 1989-
91.
Allir hafa þeir tekið þátt í mörgum
samsýningum, bæði hér heima og
erlendis og að auki haldið einka-
sýningar sem hafa gengið vel.
Það má segja að þama sé saman
komnir listamenn sem era verðugir
fulltrúar yngri kynslóð listamanna,
fólk sem er að hasla sér völl á
listabrautinni og sem eiga eflaust
eftir að láta að sér kveða í framtíð-
Sigríður Valdimarsdóttir var sett
inn í embætti djákna í Frfkirkjunni í
Hafnarfirði fyrir skömmu. Hér má
sjá þau Sigríði og séra Einar Eyjólfs-
son við athöfnina. í 7. tbl. Fjarðar-
um honum inn,” sagði Reynir um
þetta mál en samningurinn, sem
gerður var við Hadden, rennur út nú
um helgina.
Hefur verið tekin ákvörðun um
framhald Haddens hjá Haukum?
„Nei, það verður gert þegar ljóst
er hvort við komumst í úrslitakeppn-
ina og þá ákvörðun tek ég ekki einn
heldur í samráði við stjórn
körfuknattleiksdeildar og leikmenn-
ina.”
Ertu ánægður með frammistöðu
Haddens?
„Að vissu leyti má segja að hann
hafi aukið breiddina í liðinu. Hann er
þó enginn „súper-kani” en hefur
staðið sig þokkalega,” sagði Reynir
Kristjánsson. Hann vildi að svo
komnu máli ekki tjá sig frekar um ör-
lög Haddens. Þau ættu að liggja ljós
fyrir eftir helgina.
inni. Er vel við hæfi að sýningar-
salurinn VIÐ HAMARINN hefji
starfsemi sína með sýningu á lista-
fólki framtíðarinnar.
Þeir ssem taka þátt í sýningunni
era :
Birgir S. Birgisson
Sigtryggur Baldvinsson
Jóhann Torfason
Eva Sigurðardóttir
Ema Sigurðardóttir
Sigríður Ólafsdóttir
Ingimar Ólafsson Waage
Karl Jónsson
Freydís Kristjánsdóttir
Þorri Hringson
Halldór Baldursson og
Pétur Öm Friðriksson
Sýningarsalurinn VIÐ HAMAR-
INN er opinn alla daga nema
mánudaga kl. 14-18.
póstsins var farið rangt með nafn
Sigríðar Valdimarsdóttir. Beðist er
velvirðingar á því.
Ljósm.: Gísli Jónsson.
Nú er töluvert liðið á nýtt ár.
Sumir hafa efnt áramótaheitin sín
unt bætt heilbrigði, aðrir trassað
þau og samviskan er farin að naga
fleira en þröskuldinn...
Hvað skal taka til bragðs? Hvaða
æfingar gefa bestan árangur? Eru
megrunarkúrar gagnslausir? Og af
hverju er svona eríitt að slaka á?
Lítum fyrst á svolitla töflu (frá
Mætti - Ól.Sæm.) þar sem gefnar eru
brennslutölur hitaeininga á klukku-
stund miðað við tiltekna þjálfun. I
töflunni eru eftirtaldar greinar sem
hafa verið vinsælar meðal almenn-
ings: Kraftaþjálfun, sund, þolfimi,
hjólreiðar, hlaup og ganga. Þegar
greinunum er skipt upp eftir því
hversu mörgum hitaeiningum maður
brennir á klukkustund í hverri þeirra
þá er hlaup árangursríkast og síðan
koll af kolli. Taflan gerir ráð fyrir 68
kg manneskju:
1. Hlaup
550 he brennt á klst.
2. Sund
520 he brennt á klst.
3. Þolftmi
420 he brennt á klst.
4. Hjólreiðar
400 he brennt á klst.
5. Ganga
330 he brennt á klst.
6. Kraftaþjálfun
240 he brennt á klst.
Auðvitað skiptir einnig máli
hvernig æfingarnar eru framkvæmd-
ar. Dugir þá ekkert hangs eða slugs.
Það er til dæmis ekki sérlega
vænlegt til árangurs að hjóla
ofan af Holti og niður í bæ og
taka strætó til baka! Gott er að
halda jöfnu álagi meginhluta
þess tíma sem varið er til
hreyfmgarinnar. Auka álagið
síðan og draga úr því reglu-
lega eftir þörfum og auknu
þoli. Ofþjálfun ber að varast
því hún eykur hættu á meiðsl-
um og getur valdið áhuga-
missi. Betra er að fara hægar í
sakimar en skynsamlega til að
byrja með.
Hugarfarið hefur að þessu
leyti mikið að segja og mikil-
vægt að einbeitingin sé í lagi
og athyglin á æftngunni og til-
gangi hennar. Þannig má bæta
árangurinn verulega.
Mataræðið "
Mörgum reynast hefð-
bundnir megrunarkúrar ekkert
sérlega vel og sú gagnrýni
hefur heyrst að þeir skili litlu
því kílóin komi jafnharðan og
kúmum sleppi. Því er til að
svara að engar eilífðarlausnir
era til aðrar en okkar eigin
ætlanir og staðfesta. Ef þú
ætlar að grennast þá geturðu
það.
Aðalatriðin eru einkum
þessi: Annars vegar að borða ekki of
mikið. Það hefur meira að segja gef-
ið ágæta raun að fara ekki í neinn sér-
stakan kúr. Með því að minnka vera-
lega skammtinn í hvert sinn, borða til
dæmis helmingi minna en reglulega,
s.s. með þriggja tíma millibili, má
ganga veralega á aukakílóin. En ekki
borða of lítið. Ltkaminn verður að fá
þá næringu sem hann þarfnast fyrir
vöðvastaifsemina. Það eldsneyti eru
mjög mikilvægt og skortur á því get-
ur valdið vanlíðan á líkama og sál.
Hins vegar er samsetning máltíð-
arinnar og fæðuval. í fyrrgreindri
heimild segir að æskilegt hlutfall
orkuefna í fæðu sé:
- 50-60% kolvetni
- ekki meira en 35% fitu
- 10-15% prótín.
Til að ftnna þessi hlutföll þarftu
ekki að vigta ofan í þig allan mat.
Greinargóðar upplýsingar um hlut-
fall næringarefna era yfirleitt á um-
búðum matvæla. Og eins og sjá má
af tölunum hlaupa þær á tugum. Það
gefur vísbendingu um að nákvæm
samsetning upp á gramm sé ekki
nauðsynleg.
Einnig má nefna algenga orku-
þörf. Miðað er við konur og karla á
aldrinum 23-50 ára:
- Konur: 1600-2400 hitaeiningar á
dag (kcal)
- Karlar: 2300-3100 hitaeiningar á
dag.
Takið eftir sveigjanleikanum sem
gefur vísbendingu um það hversu
einstaklingsbundin næringarþörfin
er. Og það gildir um velflest sem lýt-
ur að heilbrigði. Því þarf hver og
einn að finna sér sitt eigið
mynstur; að velja fyrir sig
þá lifnaðarhætti sem henta
best í hverju tilviki fyrir
sig.
Hreyfing-
streita-slökun
Hreyfingin er nauðsynleg,
bæði til þess að brenna fitu
og fyrir útrásar sakir. Lík-
aminn framleiðir nefnilega
streituhormón eins og
adrenalín og fleiri sem búa
hann undir átök. Ef horm-
ónin safnast fyrir án þess
að þau séu nýtt eins og eðli
þeirra gerir ráð fyrir geta
þau valdið verulegum ó-
þægindum, jafnvel sjúk-
dómum. Einhver besta for-
vamaraðferðin er þar af
leiðandi hreyfing.
Þessu tengd er slökunin
því ef líkaminn er spenntur
af völdum streituhormóna
getur verið mjög erfitt að
slaka á. En eftir að líkam-
inn hefur fengið útrás og
notað hormónin þá er hann
vel undir slökunina búinn.
Upphaf slökunar er þ.a.l.
yfirleitt ekki fólgið í því að
setjast fyrir framan sjón-
varpið, einkum ef þú ert í kyrrsetu-
starfi, heldur hefst hún með hreyf-
ingu. Síðan geturðu flatmagað. Próf-
aðu bara...
4Ö
■■-
INNRÖMMUN
Falleg mynd
í fallegri umgjörð
er góð jólagjöf
Sími: 565 2892
Erum flutt í Miðvang 41
Við Hamarinn
opnar á laugardag
Leiðrétting
Hvernig myndirðu „fíla” þig svona?!