Fjarðarpósturinn - 06.04.1995, Side 3
FJARÐARPÓSTURINN 3
Lokafundur Hraunprýðiskvenna
Mikil hátíð f íþróttahúsinu
við Standgötu 11. aprfl
Það verður ábyggilega líf og fjör hjá þeim
konunum í Slysavarnardeildinni Hraunprýði á
þriðjudagskvöld, en þá halda þær vorfund sinn
og hafa opið hús í Iþróttahúsinu við Strand-
götu.
Já, þær bjóða alla velkomna og ætla að bjóða
upp á fjölbreytta skemmtidagskrá með söng og
gleði. Að sjálfsögðu verður tískusýning og verður
sýndur fatnaður frá verslunni Emblu. Þá verður
myndarlegt happdrætti og ekki má gleyma kaffi-
veitingunum. Ef að líkum lætur og ef við þekkjum
Hraunprýðiskonur rétt, þá ætti enginn að fara
svangur heim. Það er því óhætt að hvetja Hafnfirð-
inga til að fjölmenna á þessa hátíð.
Það er gott til þess að vita og alltof sjaldan vak-
in athygli á því mikla sjálfboðastarfi sem víða er
unnið og ekki hvað síst í deildum Slysavamarfé-
lags íslands. Það er mörg krónan sem kvennadeild-
imar hafa lagt til uppbygginga slysavamarstarf-
seminnar í landinu. Allir eru þakklátir fyrir björg-
unarstörfm, þegar á þarf að halda. En oft vill
gleymast það mikla starf sem að baki liggur.
í nóvember s.l. héldu þær fjölskyldubingó og
ágóðanum hafa þær varið þannig að þær gáfu 100
þúsund krónur til kaupa á snjóbíl á Reykhólum og
200 þúsund krónur fór til félaga þeirra í Fiskakletti
til að kaupa vél í björgunarslöngubát deildarinnar.
Hraunprýðiskonurnar Kristín Gunnbjörns-
dóttir og Fríða Pálína Vilhjálmsdóttir komu á
ritstjórn Fjarðarpóstins og afhentu Fjarðar-
póstinum viðurkenningarskjal fyrir veittan
stuðning. Við erum stollt yfir því að vera í hópi
þeirra fyrirtækja sem þær hafa verið að færa
slíka viðurkenningu.
Fjarðar-
pósturinn
í Miðbæ
Hefur þú verið í
Fjarðarpóstinum
Á morgun, föstudag og á
laugardag mun Fjarðarpósturinn
verða með kynningu á útgáfu
blaðsins í verslunarmiðstöðinni
Miðbæ. Sýndar verða myndir úr
myndasafninu, en mikiíl tjöldi
Hafnfirðinga hefur birst á síðum
blaðsins í gegnum árin. Mynda-
getraun verður í gangi báða dag-
ana og verða þrjár myndir af
þekktum Hafnfirðingum merkt-
ar með númerum og á fólk að
þekkja þá og merkja við á þar til
gerðum svarseðlum. Dregið
verður úr réttum lausnum á
staðnum kl. 19:00 á föstudag og
kl. 16:00 á laugardag.
MIÐBÆR VERSLANAMIÐSTOÐ
BUSAHOLD & GJAFAVORUR
Fallegar vörur
r
Miðbæ - 565 5660
HerrA
HAFNARFJÖRÐUR
Miðbæ
sími 565 0073
Tískuverslun
ungu
dömunnar
Fermingarföt
íurvali
N Ý J A R
V Ö R U R
í M Y N D
Miðbæ sími 565 5655
Heilbrigðir fætur hafa áhrif
á allan líkamann
10 % afsláttur
á Scholl fótavörum
1.-30. apríl
Hafnarfjarðarapótek
Miðbæ
Opið 9-19 Laugard. 10-16
og annan hvern sunnudag
lÉiLfjlliLrsAplM
Fyrir
ferminguna:
^yrtivöruversluo/’
/
íse
Miðbæ
sími: 555 1664
Kynning um helgina
, KOSNINGASKRIFSTOFAN ER.I
SJALFSTÆÐISHUSINU STRANDGOTU 29
Verið velkomin í kosningakaffið á kjördag!
Sjálfboðaliða vantar til starfa á kjördag, hafið samband
við Halldór í síma 565 1055
Bílaþjónusta í síma 565 5762
Kjósum XD Kjósum XD