Fjarðarpósturinn - 31.08.2000, Síða 4
4 Fjarðarpósturinn
Fimmtudaj;ur 31.8. 2000
Marion flytur um set
Gróa Guðbjartsdóttir og Sigríður Magnúsdóttir eigendur verslunarinnar Marion
Tískuverslunin Marion hefur
fært sig um set - var áður á
Reykjavíkurvegi 64 en fyrir um
hálfum mánuði opnuðu eigend-
urnir Gróa Guðbjartsdóttir og
Sigríður Magnúsdóttir stærri og
glæsilegri verslun á Strandgötu
11 - í hjarta bæjarins. Um leið
var vöruúrvalið aukið í öllum
verðflokkum en verðflokkunum
hefur Qölgað til muna og ætti
því að henta fleirum.
Heildrænn svipur tekur á móti
manni þegar inn er komið í nýja
húsnæðið á Strandgötunni. Jarð-
liturinn er allsráðandi enda að-
allitir hausts og vetrar. Sú þarfa
þjónusta verður áfram veitt að
breyta og laga fatnað eftir þörf-
um hvers og eins, viðskiptavin-
um að kostnaðarlausu.
Væntanlegar eru dragtir á næstu
dögum og margt fleira sem ætti
að gleðja ungar konur á öllum
aldri í Hafnarfirði.
Endurvinnslustöð
Miðhrauni 20
Opin virka daga
vetur: 08:00- 19:30
sumar: 08:00- 21:00
laugardaga og sunnudaga
10:00 - 18:30
Sími: 565 0820
Munið eftir debetkortinu þegar þið
komið með skilagjaldsskyldar umbúðir
Enn um Hörðuvelli
Ágœtu Hafnfirðingar
Ahugahóp um verndun Hörðuvalla barst þetta kvæði í lautarferðinni
20. ágúst sl. Og færum við höíúndi þakkir fyrir. Kvæðið er sungið
við lagið “Hvað er svo glatt”. Undirskriftarsöfnun gengur vel og eru
viðtökur mjög góðar. Urn helgina verðum við við stórmarkaði hér í
bæ og einnig verður haldið áfram við að ganga í hús. Fyrirhugað er
af hópnum að fleyta kerti á læknum fimmtudaginn 7. september nk
kl. 20.30. Vonumst við til að sjá sem flesta bæjarbúa á Hörðuvöllum
það kvöld. Alltaf er þörf fyrir fleiri hendur þannig að ef einhverjir
hafa tíma aflögu og vilja leggja málefninu lið eru þeir hvattir til að
hafa samband við einhvem af undirrituðum:
Aldísi Ingvarsdóttur, s. 565 1887
Guðfinnu Guðmundsdóttur, s. 565 0309
Jóhann Guðmundsson, s. 555 2353
Sigrid Foss, s. 565 1531.
Verjum Hörðuvelli
Hvað er svo bágt sem blindra manna vilji
er boðar Hörðuvöllum þungan dóm?
Og það er von að alþjóð ekki skilji
óráðsverk, svo deyja grös og blóm.
Nú skal steypa yfir unaðsstaðinn
sem yndi veitir jafnt í regni og sól,
gefúr hvíld og ró, af hlýleik hlaðinn
og hefúr fúglum búið öruggt skjól.
Nú tapast margt í tímans þunga straumi
og tálsýn dagsins villir góða menn.
Og fyrirhyggjan hvar í dægurdraumi
um dýrðarhallir, sem skal reisa enn.
Og þegar valdamikilir bumbur berja
og boða axaskafta fyrirheit,
þá er von að fólkið vilji verja
og vernda svona hlýjan gróðurreit.
Nú taka saman fólksins hlýju hendur
um hugsjón þá að veija þennan svörð.
Og boðskapur af heitum hug er sendur:
um Hörðuvelli skulum standa vörð!
Staðföst munum berjast allt til enda
og aldrei málstað þessum kasta á glæ.
Óforsjálum mönnum brátt skal benda
á betri leið, til heilla vorum bæ.
Ásjón
Hafnarfirði
Fjarðargata 17
Sími 520-2600
Fax 520-2601
Netfang as@as.is
Heimasíða http://www.as.is