Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 06.06.2002, Blaðsíða 8

Fjarðarpósturinn - 06.06.2002, Blaðsíða 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 6. júní 2002 Það var húsíyllir í Víðistaða- kirkju á skólaslitum Tónlistar- skólans. Nemendur glöddu eyru gesta með gullfallegum tónlistar- flutningi og þeir voru ijölmargir sem fengu stigspróf sín afhent eins og þeir sem sjást á myndinni hér að neðan. Starf skólans er í miklum blóma en ekki er hægt að taka við öllum þeim sem vilja hefja nám í hljóðfæraleik. Vel gekk að vinna upp glataðan tíma vegna langs verkfalls tónlistarkennara og virðist verkfallið ekki hafa komið niður á tjölda þeirra sem tóku stigspróf. Fjölmenni við skólaslit Tónlistarskólans glæsilegur tónlistarflutningur æskufólksins Opinn fulltrúaráðsfundur sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði Fimmtudaginn 13. júní lýkur vetrarstarfi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði með opnum fulltrúaráðsfundi sem hefst í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu 29, kl. 20. Þátttakendur úr kosningastarfinu og aðrir stuðningsmenn eru velkomnir. 1. Magnús Gunnarsson ræðir niðurstöður kosninganna og bæjarmálastarfið framundan. 2. Önnur mál. Veitingar verða á boðstólum og umræður að lokinni formlegri dagskrá. Sjálfstæðisfélögin þakka stuðningsfólki liðsinnið í nýliðnum kosningum og horfa til ánægjulegs samstarfs áfram. Dagskrá: Helena Sverrísdóttir (14), Pálína María Gunnlaugsdóttir (15), Bára Sigurjónsdóttir (15) og Hrefna Stefánsdóttir (15)._____________ Fjórar stúlkur úr Haukum í unglingalandsliðið Safna fyrir ferð með liðinu til Möltu Körfuknattleiksstúlkur úr Haukum stóðu sig vel í vetur og hömpuðu mörgum bikurum og hafa 4 ungar stúlkur verið valdar í unglingalandsliðið sem fer til Möltu í lok mánaðarins. Stúlkumar þurfa sjálfar að standa straum af ferðakostnaði og hyggjast því leita til hafn- firskra íyrirtækja um stuðning. Stúlkumar sem kíktu við á rit- stjóm Fjarðarpóstsins vonast til þess að vel verði tekið á móti þeim. Stúlkumar em allar úr 10. flokki Hauka. Björgunar- sveitin flytur Rauð skal gamla slökkvistöðin vera Björgunarsveit Hafnarfjarðar hefur fengið gömlu slökkvistöð- ina við Flatahraun til umráða næstu árin. Það var sérstakt að sjá að loksins þegar slökkvilið flutti úr húsinu var húsið málað rautt. A sama tíma „ók“ gamla skátaheimilið framhjá en Björg- unarsveitin varð til við samein- ingu Björgunarsveitarinnar Fiskakletts og Hjálparsveitar skáta í Hafnarfirði. Björgunarsveitarmenn em ánægðir með nýja húsnæðið sem hentar ágætlega undir starf- semina uns nýtt hús verður byggt innan fárra ára. Könnun Fjarðarpóstsins nr. 23 Vilt þú jarðgera heima fyrir ef það lækkaöi sorphirðugjöldin? Kíktu á nýja könnun á www.fjardarposturinn.is

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.