Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 06.06.2002, Side 11

Fjarðarpósturinn - 06.06.2002, Side 11
Fimmtudagur 6. júní 2002 www.fjardarposturinn.is 11 Skóhöiiin Sjö lausar stofur fiytur í við Setbergsskóla Fjörð Skóhöllin sem verið hefur á Bæjarhrauninu opnar í dag á 2. hæð í Firði þar sem Ungir jafnaðarmenn voru með kosn- ingaskrifstofu og Samfylkingin fagnaði sigri sínum, en annars hefur þetta glæsilega húsnæði staðið autt frá upphafi. Olöf Bjamadóttir er versl- unarstjóri í bamseignarfn Lám Ólafsdóttur sem er viðskipta- vinum Skóhallarinnar að góðu kunn. Rekstrarstjóri er Linda DeL'Etoile. Skómarkaður verður í gamla húsnæðinu á Bæjarhrauninu út júní. 2% vildu ópólitískan bæjarstióra Skv. heimildum blaðsins vildu aðeins 2% bæjarbúa ópólitískan bæjarstjóra skv. könnun Gallups sem gerð var rétt fyrir kosningar. Um helmingur var alveg sama eða neituðu að svara en um 20% nefndu hvom um sig, Magnús Gunnarsson og Lúðvík Geirsson þó heldur hafi hallað á Lúðvík. Úrtakið var 1200 manns og spurt um leið og spurt var um fýlgi við flokkanna. Skv. tillögum fráfarandi meiri- hluta á að kaupa 2 lausar stofur umfram þá einu sem gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Verða þá 7 lausar stofur við skólann og með þessum aðgerðum á að vera hægt að einsetja skólann í haust. Til að þetta verði unnt þarf að hagræða í bekkjum en einnig er búist við fækkun í L, 2. og 5 bekkjum skólans. Jafnframt er gert ráð fyrir að keyptar verði 2 lausar stofur við Víðistaðaskóla til viðbótar við þær 2 sem fyrir em og þannig verði unnt að einsetja skólann í haust. Ekki er talið að pólitískur ágreiningur sé um bráðalausnir en menn undrast vinnubrögðin og Lúðvík Geirsson segir að frá- farandi umboðslaus meirihluti sé að reyna að taka til á lokametr- unum, verkefni sem hefði mátt ljúka miklu fyrr. Afgreiða á málin á bæjar- ráðsfundi í dag. Vtð Víðistaðaskóla eru 2 lausar kennslustofur nú hegar. Vtð Setbergsskóla eru 4 lausar kennslustofur nú þegar. Björgvin Halldórsson heiðraóur Björgvin Halldórsson tónlistarmaður hlaut viðurkenningu Minningarsjóðs um hjónin Sverri Magnússon og Ingibjörgu Sigurjónsdóttur árið 2002. Var viðurkenningin afhent við hátíðlegt tækifæri í Hafnarborg sl. laugardag. Minningarsjóður um hjónin Sverri Magnússon og Ingibjörgu Siguijónsdóttur frumkvöðla að stofnun Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar, varstofnaður 1. júní 1993. Tilgangur sjóðsins er að minnast þeirra hjóna með því að veita táknræna viðurkenningu, í formi listaverka, fyrir framlag til menningar og lista í Hafnarfirði. Ný f ramsókn í Haf narfirði Tómas Meyer, formaður Félags ungra framsóknarmanna Hafnarfirði: Áður en ég byija á mínu efhi vil ég óska Lúðvík Geirssyni og samflokksmönnum til hamingju með kosn- ingarsigurinn 25. maí sl. Þar sem við fram- sóknarmenn biðum mikinn ósigur koma upp allskonar skýringar hvers vegna flokkurinn tapaði svona miklu fylgi frá kosningum 1998. Greinilegt er að það fylgi sem fór, fór að mestum hluta til Sam- fylkingar enda tileinka báðir flokkar sér félagshyggju, Sam- fylking á formi jafnaðarmennsku og við framsóknarmenn á formi frjálslyndar miðjustefnu. Þessar stefnur skilgreini ég oftast svo að jafnaðarmenskan heldur í, er lítið fyrir nýjungar og breytingar ( þó svo að Alþýðuflokkurinn sálugi hafi oft sótt vel fram í lands- pólitík). Frjálslynd miðjustefna sem við framsóknarmenn för- um eftir vinnur á stöð- ugum umbótum á samfélaginu og nýj- ungum sem era þjóð- félaginu fýrir bestu og að manngildið sé ofar auðgildi. Framsóknarflokkurinn í Hafn- arfirði þarf núna að fara í algjöra andlitlyftingu, hreinsa þarf vera- lega til enda kom það bersýnilega í ljós í ný liðnum kosningum að menn sem þóttust vera að vinna fyrir flokkinn vora alls ekki að gera það. Ungir framsóknarmenn í Hafn- arfirði era alls ekki af baki dottnir þó svo að flokkurinn sé ofan í frystikistu næstu fjögur árin hvað varðar bæjarmálin. Forysta félags ungra ffamsókn- armanna tók við félagi ungra framsóknarmannaí byrjun árs eftir mörg mjög dauf ár í starfi þess oggetumviðveriðstoltiraf okkar verki sem komið er. Félag ungra framsóknarmanna mun fylgjast grant með störfum bæjarstjómar og get ég fullyrt að ungir framsóknarmenn verða sýnilegir á komandi kjörtímabili, því Samfylkingin mun fá að svara ef þeir halda sig ekki við stefnuskrá sína. Samt finnst mér skrýtið að Hafnfirðingar hafi hafnað þeim meirihluta sem var, því ég efast um að slíkt framfara og uppbygg- ingarskeið eigi eftir að koma á meðan að núverandi meirihluti er við stjóm eða hvað? Ný ffamsókn í fjörðinn ekkert annað kemur til greina enda setur Framsóknarflokkurinn manninn og velferð hans í öndvegi hvar sem er á landinu líka í Hafn- arfirði. Mat á umhverfisáhrifum vegna Reykjanesbrautar Hafnarfjarðarbær skili umsögn Skipulagsstofnun sendi Hafn- arfjarðarbæ skýrslur um mat á umhverfisáhrifum tvöföldunar Reykjanesbrautar frá Fífu- hvammsvegi að Álftanesvegi og um Hafnarfjörð, frá Álftanesvegi að Ásbraut. Óskað er eftir um- sögn Hafnarfjarðarbæjar um skýrsluna eigi síðar en 14. júm' nk. Einnig sendi hún skýrslu um mat á umhverfisáhrifum tvöföld- unar Reykjanesbrautar um Hafn- arfjörð, frá Álftanesvegi að Ás- braut. Bæjarráð hefur falið skipu- lagsstjóra að gera drög að um- sögn en skýrslan um mat á um- hverfisáhrifum tvöföldunar Reykjanesbrautar um Hafnar- fjörð, frá Álftanesvegi að Ás- braut liggur frammi til kynningar fyrir almenning á skrifstofu Hafnarfj arðarbæjar til 5. júlí 2002. Fjarðarpósturinn besti auglýsingamiðillinn fyrir Hafnarfjörð! www.fjardarposturinn.is Hjólreiðakeppni hefst í Hafnarfirði Bláalónskeppnin 2002 hefst á laugardag, enn möguleiki á að vera með Bláalónskeppnin 2002 hefst á laugardaginn kl 10. Keppnin, sem er fjallahjólakeppni, er haldin af Hjólreiðafélagi Reykjavíkur og er ein stærsta hjólreiðakeppni landsins. Keppt hefur verið undanfarin fimm ár og þátttaka aukist ár frá ári. I lýrra luku um 50 manns keppni, og nú er stefnt á að fá 100 þátttak- endur. Hjólaðir era tæpir 60 km frá kirkjugarð- inum í Hafnarfirði, um Krýsuvíkurveg, Djúpavatnsleið, gegnum Grindavík og endað í Bláa lóninu. Leiðin er að hluta á bundnu slitlagi og er ekki mjög torfær. Keppnin er opin öllu hjólreiða- fólki, konum og körlum, 16 ára og eldri. Veitt verða verðlaun fyrir 3 fýrstu sæti í hveijum aldursflokki karla og kvenna en alls verða 5 flokkar. Allir þátttakendur fá bol merktan keppninni, frítt í Bláa lóninu eftir keppnina og aðgang að happdrætti með Jamis-Dakar hjól í verðlaun en mótsgjald er aðeins 1.000 kr. Björgunasveit Hafnarfjarðar sérum sjúkragæslu, tværdty'kkj- arstöðvar er á leiðinni og mögu- leiki á flutningi á keppendum og hjólum til baka eftir keppnina. Keppnin er haldin í samstarfi við Æskulýðs- og tómstundastarf Hafnarfjarðar. Nánari upplýsingar era á heimasíðunni: http://hfr.vortex.is. Samræmd vísitala neysluverðs Lækkaði minnst á íslandi og verðbólga hæst Samræmd vísitala neysluverðs í EES ríkjum var 111,2 stig (1996=100) í apríl sl. og hækkaði um 0,5% frá mars. Á sama tíma lækkaði samræmda vísitalan fýrir Island um 0,1%. Frá apríl 2001 til jafnlengdar árið 2002 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,2% að meðaltali í ríkjum EES, 2,4% í Evra ríkjum og 7,7% á íslandi. Mesta verðbólga á evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var á Islandi 7,7% og á írlandi 5,0%. Verðbólgan var minnst, -0,1% í Noregi og 1,5% í Bretlandi.

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.