Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 13.05.2004, Page 2

Fjarðarpósturinn - 13.05.2004, Page 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. maí 2004 Útgefandi: Keilir ehf. Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Umbrot: Hönnunarhúsið, umbrot@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: íslandspóstur ISSN 1670-4169-Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is Fjölmargir flórgoðar hafa sést við Ástjömina í vor og er það mikið fagnaðarerindi og vonandi ■ að þeir verpi þar þrátt fyrir ágang manna, katta Bft og hunda. Umhverfi okkar er okkur geysilega | mikilvægt og betur þarf að tryggja samþættingu K íbúðarbyggðar og útivistarsvæðis heidur en gert I var við Astjiimina þar sem freklega var farið að HiS tjöminni úr tveimur áttum. Við eigum gott byggingarsvæði sem eflaust mun fikra sig í átt að Hvaleyrarvatni og Kaldárseli og þar em margar útivistarperlur sem fara þarf varlega um. Allt of lítið hefur verið gert af því að útbúa góða göngustíga og hreint ótrúlegt að ekki sé búið að setja bundið slitlag á Kaldárselsveginn. Það mætti halda að útivistarfólkið væri lægra sett en hestamenn, en búið er að setja slitlag á veginn til þeirra en ekki áfram að Kaldárseli svo „landnemar" og göngufólk veður í ryki. Guðni Gíslason „Kvöldin í Firúinum Tónleikar kl. 16 á sunnudag sem veitinga- og kaffihúsið Café Aroma hefur staðið fyrir í samstarfi við Kristjönu Stefáns- dóttur söngkonu og Agnar Má Magnússon píanista. Gestir maímánaðar verðasöng- hópurinn „REYKJAVÍK 5“ en hann skipa þau: Hera Björk Þórhallsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Aðal- heiður Þorsteinsdóttir, Gísli Magnason og Þorvaldur Þor- valdsson ásamt 4 manna hljóm- sveit en hana skipa þeir: Agnar Már Magnússon á píanó, Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Róbert Þórhallsson á bassa og Erik Qvick á trommur. Munu þau flytja útsetningar sönghópa á borð við Manhattan Transfer og New York Voices. Tónleikamir em á sunnudag- inn og heíjast kl 16 í Veislu- salnum Tuminum á 7. hæð í verslunarmiðstöðinni Firði. Forsala aðgöngumiða er á veitingahúsinu Café Aroma. Víðistaðakirkja Sunnudaginn 16. maíkl. 14 Guðsþjónusta meö vísnasöng Kór Víöistaðasóknar syngur undir stjórn Úlriks Ólasonar Aðalsafnaðarfundur verður haldinn í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar. Sóknarnefnd og sóknarprestur www.vidistadakirkja.is Koramút eldri borgara Kóramót eldir borgara fer fram í Víðistaðakirkju á laugardaginn kl. 17. Þar koma fram kóramir; Vorboðinn í Mosfellsbæ, Eldey á Suðurnesjum, Hljómur á Akranesi, Hörpukórinn í Árborg auk Gaflarakórsins í Hafnarfirði. Auk eigin dagskrár syngja kóramir, alls um 210 manns, 5 lög saman. Vophátíð í Engidalsskúla Vorhátíð foreldrafélags Engidalsskóla verður haldin á laugardaginn kl. 12-15. Skemmtidagskrá verður um alla skóla- lóð fyrir böm og fullorðna. Kaffihlaðborð og pylsur, selt á vægu verði á staðnum. Sýningar í Bæjarbíúi Laugardaginn 15. maí kl. 16 sýnir Kvikmyndasafn íslands japönsku kvik- myndina Ikiru eftir Akira Kurosawa. Þetta er breyting á áður auglýstri dag- skrá en ekki tókst að útvega sýningar- eintak af Dodeskaden sem til stóð að sýna. Þriðjudaginn 18. maí kl. 20 verður sýnd sænska kvikmyndin Ole dole doff eftir Jan Troell. Lokahátíð eldri flokka FH Á morgun, föstudag er lokahátið eldri flokka FH í handbolta; mfl. ka/kv, 2.fl ka., unglingafl. kv. stjóm Muggs og hkd., og stuðningsmanna í Kaplakrika. Húsið verður opnað kl. 20 og borðhald hefst kl. 21. Aðgangseyrir er 1.500 kr. Viður- kenningar veittar og margt annað til skemmtunar. Fjölmennum. Uppskeruhábð yngri flokka FH Á laugardaginn kl. 13-15 er uppskeru- hátíð yngri flokka FH í handbolta í Kaplakrika. Viðurkenningar verða veitt- ar og pítsa og kók, kaffi og kökur úr glæsilegu kökuhlaðborði þar sem hvert heimili kemur með eina köku. Afar og ömmur sérstaklega velkomin. Gerum þetta að góðum fjölskyldudegi. Ólöí Erla sýnir í Hafnarborg A laugardaginn kl. 15 verður opnuð í Hafnarborg sýning á leirmunum Ólafar Erlu Bjarnadóttur. Um sýninguna í Hafnarborg segir listakonan m.a.: „Lófi lagður í læk, fylltur vatni og borinn upp að vörunum til að drekka af. Plastpoki undir vömr eða rusl. Leirskál til augnayndis eða undiróborg- aða reikninga. Bakki úr leir fyrir brauð og ólivur. Ólöf Eria útskrifaðist frá Myndlista og - handíðaskóla íslands, keramikdeild 1982. Hún hefur tekið þátt í sam- sýningum víða. Árið 2000 var hún valin listamaður Kópavogs og fékk starfslaun myndlistarmanna árið 2002. Hún er rekstraraðili að versluninni Kirsuberja- trénu í Reykjavík. Þetta er áttunda einkasýning Ólafar Eriu. Sýningin er opin alla daga nema þriðju- daga kl. 11-17 og henni lýkur 7. júní. Arngunnur Ýr sýnir málverk í Á laugardaginn kl. 15 verður opnuð í Hafnarbprg sýning á málverkum Am- gunnar Ýr. Verkin enr öll unnin í olfu á striga á árunum 2002 til 2004. Á sýningunni verða þrjár myndraðir sem listakonan nefnir ,Allt og ekkerf, „Mirabilia" og „Rerplexus", en f þeim fjallar hún um óstöðugleika tilverunnar, sem kemur fram á ýmsan hátt. Óvissan er í fyrir- rúmi og verkin vekja spumingar um sannleika og mikilvægi myndefnisins sjálfs. Amgunnur Ýr nam myndlist á íslandi og við San Fransisco Art Institute. Hún hefur haldið fjölmargar sýningar, bæði hér á landi og vestanhafs. Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari, Ás- hildur Haraldsdóttir flautuleikari og Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari flytja tónlist á opnuninni kl. 15.30. Sýningin er opin alla daga nema þriðju- daga kl. 11-17 og henni lýkur 7. júní. Fríkirkjunni Á sunnudaginn verður kvöldvaka í Fríkirkjunni og hefst hún kl. 20. Eins og venjulega mun hljómsveit kirkjunnar og kórinn leiða fallega tónlist og söng sem tengist vorinu og hækkandi sól. Sérstakur gestur á kvöldvökunni verður Ómar Ragnarsson fréttamaður og gleðigjafi sem spjallar við kirkjugesti um ferð sína til Afríku. Það verður án efa áhugavert að heyra af upplifun Ómars og eru allir hvattir til þess að gefa sér stund og líta við. Vorhátíð foreldrafélags Öldutúnsskúla Vorhátíðin foreldrafélags Öldutúnsskóla hefst á víðavangshlaupi kl. 16 á miðvikudaginn. Þar verður mikið fjör og margt að gera, m.a. kaffihús í skólanum, veltíbílinn verður á staðnum, reiðhjólaþrautir, hestar og and- litsmálning. Allir foreldrar og aðstandendur nem- endanna velkomnir. Fríkirkjan * Omar Ragnarsson mætir á kvöldvöku á sunnudag kl. 20. Hljómsveit og kór kirkjunnar leiðir tónlist og söng. www.frikirkja.is Úr fundargeröum.. 1. Öldutúnsskóli • umsóknir Lagðar fram umsóknir um stöðu skólastjóra Öldutúnsskóla Eftirtaldir sækja um stöðuna: Ema Ingibjörg Pálsdóttir Guðmundur Olafur Ásmundsson Guðmundur Skúli Stefánsson Guðrún Pétursdóttir Guðrún Snorradóttir Hallfríður Erla Guðjónsdóttir Helgi J. Hauksson Kristinn Svavarsson Kristrún Lind Birgisdóttir Páll Leó Jónsson Sveinn Alfreðsson Formanni fræðsluráðs, Hafrúnu Dóru Júlíusdóttur, Haraldi Ólasyni og fræðslustjóra var falið að ræða við umsækjendur og gera tillögu um ráðningu á næsta fundi fræðsluráðs. Stekkjarás - umsóknir Lagðar fram umsóknir um stöð- ur aðstoðarleikskólastjóra og rekstrarfulltrúa: Eftirtaldir sækja um stöðu aðstoð- arskólastjóra: Áslaug Reynisdóttir Fjóla Þorvaldsdóttir Guðmundína M. Heimannsdóttir Guðný Anna Þóreyjardóttir Guðríður Hrund Helgadóttir Kristbjörg Jónsdóttir Sigríður Ólafsdóttir Eftirtaldir sækja um stöðu rekstrarfulltrúa: Ásta Benediktsdóttir Ingibjörg Kristjánsdóttir Jóna G. Jóhannsdóttir Sigríður Kristín Sigurðardóttir Þórey Hallbergsdóttir Fræðsluráð óskar eftir tillögu leikskólastjóra um ráðningar í störfin á næsta fundi. e. Fordómafræðsla í Ijósi ábendinga úr skýrslu Rannsóknar og greiningar um lífstíl ungs fólks í Hafnarfirði þar sem fram koma vísbendingar um fordóma i garð innflytjenda og í Ijósi reynslu Vinnuskóla Reykja- víkur og Alþjóðahúss felur forvamanefnd forvamafulltrúa að ræða við Vinnuskóla Hafnarfjarðar og Alþjóðahús um verkefni sem miða að því að draga úr fordóm- um. 6. Ferð til Fredriksberg Forvamafulltrúi gerði grein fyrir náms- og kynnisferð ÍTH til vinarbæjar okkar Fredriksberg og Kaupmannahafnar. Sérstaka athygli vakti vegleg félagsmiðstöð þar sem ungt fólk hafði aðstöðu til að sinna fjölbreyttum áhuga- málum sínum. Vinnuaðferðir lögreglunnar í Kaupmannahöfn völdu einnig sér- staka athygli en þar vinna þeir markvisst í því að finna ungt fólk i áhættuhópi og bjóða því upp á félagstarf sem lögreglan sjálf rekur sem forvarnarverkefni. Verkefnið hefur staðið yfir í ein 50 ár og þykir að þeirra mati hafa skilað verulegum árangri. Auglýsingar: 565 3066

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.