Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 13.05.2004, Qupperneq 4

Fjarðarpósturinn - 13.05.2004, Qupperneq 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. maí 2004 listdansskóli Hafnarflarðar 10 ára Glæsileg sýning í Borgarleikhúsinu Hátt í 200 stunda listdans hjá Listdansskóla Hafnarfjarðar sem verður 10 ára í ár. Skólinn er til húsa í Iþróttahúsinu við Strand- götu í litla salnum þar. Starfið hefur verið mjög blóm- legt og krakkar á öllum aldri taka þátt og spreyta sig í hinum ýmsu formum listdans. Skólinn var með glæsilegar sýningar í Borgarleikhúsinu á laugardag en meðfylgjandi myndir voru teknar á síðustu æf- ingu fyrir sýningu. Guðbjörg Arnardóttir er skólastjóri Listdansskólans. Fataflokkun Rauða krossins flytur í Hafnarfjörð Fataflokkun Rauða kross Islands hefur nú flutt starfsemi sína að Gjótuhrauni 7, hér í bæ. Húsið var formlega tekið í notkun sl. miðvikudag. Þar afhenti Öm Ragnarsson formað- ur stjómar fataflokkunar Sigrúnu Arnadóttur framkvæmdastjóra Rauða krossins fimm milljónir króna, sem er hagnaður verk- efnisins á áiinu 2003. Upphæðin rennur öll til alþjóðlegs hjálpar- starfs Rauða krossins. Uthlutun á fatnaði fer fram alla miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14. Deildir Rauða krossins um allt land safna notuðum fatnaði sem allur nýtist til hjálparstarfs. Á höfuðborgarsvæðinu er Rauði krossinn í samstarfi við Sorpu um söfnun og flokkun fatnaðar. Samstarf Sorpu og Rauða kross- ins leiðir til aukins hagræðis þannig að afgangsfatnaður nýtist betur, skjólstæðingum Rauða krossins til hagsbóta. Aðrir góðir samstarfsaðilar Rauða krossins vegna fatamála em Samskip og Reykj avíkurhöfn. Fatnaður sem Rauði krossinn fær nýtist þannig: • hann er flokkaður og gefinn þurfandi hér á landi • hann er flokkaður og gefinn þurfandi erlendis • hann er flokkaður og seldur í Rauða kross búðinni L12 að Laugavegi 12 • hann er seldur beint til útlanda og ágóðinn rennur í Hjálpar- sjóð Rauða krossins. Það sem ekki er nýtt beint til hjálparstarfa er selt. Þetta er mikilvæg tekjuöflun Rauða krossins sem skilar sér beint í al- þjóðlega neyðaraðstoð. Þó að allt komi að notum, lfka skór og tuskur, þá er hreinn og heillegur fatnaður, sem vel er gengið frá, sérstaklega verðmæt- ur. Á síðustu ámm hefur fatnaður frá Islandi veitt þúsundum manna kærkomna hlýju í lönd- um eins og Rússlandi, Usbe- kistan, Lesótó og Gambíu. Vetr- arföt em send á köld svæði en léttari fatnaður til hlýrri svæða. Alls söfnuðust um 660 tonn af fatnaði á síðasta ári og fóm um 4 tonn af fatnaði í aðstoð hér innanlands. Um 600 ijölskyldur með yfir 1.000 böm á framfæri sínu fengu aðstoð frá fataflokk- un. Um 8.200 vinnustundir sjálf- boðaliða fóm í verkefnið. Við þurfum ávalt fleiri sjálfboðaliða til að vinna við þetta gefandi starf. Fataflokkun er samstarfs- verkefni deilda Rauða kross Islands á höfuðborgarsvæðinu. Áhugasamnir sjálfboðaliðar geta haft samband við svæðis- skrifstofu RKI, Lindu Ósk í síma 565 2425. meö osti, gúrku, lauk, papriku iceberg og BBQsósu + FRANSKAR & KÓK kr. 845 meö bacon, osti, gúrku, lauk, papriku iceberg og sósu + FRANSKAR & KÓK kr. 1.095.- 0PIÐTIL 23:30 ALLA DAGA

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.