Fjarðarpósturinn - 04.01.2007, Síða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 4. janúar 2007
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 681175-0329
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Sunnudaginn 7. janúar
Guðþjónusta kl. 11
Prestur: sr. Gunnþór Þ. Ingason
Sunnudagaskóli
á sama tíma í Hvaleyrarskóla og í Strandbergi
Barnastarf
10-12 ára barnastarf þriðjudaga kl.17-18.30.
7-9 ára barnastarf fimmtudaga kl. 17- 18.15
Ungbarnamorgnar fimmtudaga kl. 10-12.
Æskulýðsfélagið
Æskó, 8. bekkur mánud. kl. 19.30- 20.30
Æskó, 9.-10. b. mánud. kl. 20.30-22.
www.hafnarf jardark i rkja. is
Ljúflingslög í hádeginu í dag
Hjörleifur Valsson, hafnfirski fiðlu-
leikarinn landskunni verður gestur
Antoníu Hevesi á hádegistónleikum
Hafnarborgar í dag, fimmtudag kl.
12. Þar munu þau flytja þekkt íslensk
sönglög í útsetningu Atla Heimis
Sveinssonar ásamt ljúflingslögum
eftir Vivaldi og Mozart. Flytjendur
segja verkin á efnisskránni vera hvort
tveggja í senn mjög afslappandi en
um leið ákaflega tilfinningarík.
Aðgangur er ókeypis.
Sýningar Kvikmyndasafnsins
hefjast á ný eftir jólafrí
Á þriðjudaginn kl. 20 verður sýnd
myndin Au revoir enfants ('87) í
leikstjórn Louis Malle.
Myndin gerist í Frakklandi á árum
seinni heimstyrjaldarinnar og sögu-
sviðið er heimavistarskóli í sveit sem
kaþólskir prestar reka. Malle beinir
stúdíu sinni að Helförinni, æsku-
vináttuböndum og óviljandi upp-
ljóstrun; atburðum sem eiga sér rætur
í persónulegri reynslu hans sjálfs sem
nemanda í heimavistarskóla á stríðs-
árunum. Raunveruleg illmenni mynd-
arinnar eru gjarnan Frakkar og með
því móti beinir Malle athyglinni að
fordómum og því að kúgun er ekki
bundin við eina þjóð eða þjóðflokk.
Sýningar Kvikmyndasafnsins eru í
Bæjarbíói, Strandgötu 6.
Þrettándagleði á Ásvöllum
Laugardaginn 6. janúar verða jólin
kvödd með dansi og söng á þrett-
ándahátíð kl. 17.30. Verður safnast
saman á svæðinu framan við
Íþróttamiðstöðina þar sem fram fer
skemmtidagskrá, söngur glens og
gaman. Álfar, púkar og jólasveinar
verða á svæðinu og taka þátt í gleð-
inni.
Dagskránni lýkur kl. 19 með veglegri
flugeldasýningu í boði Landsbankans.
Haukar í samstarfi við Hafnarfjarð-
arbæ standa að skemmtuninni.
Gleðilegt ár!
Hvað skyldi verða gleðilegt við árið sem nú er
gengið í garð? Ein leiðin er að bíða og sjá hvað
það beri í skauti sér en erum við þá ekki búin að
afsala okkur möguleikanum til að hafa áhrif á líf
okkar? Margir hófu árið með kampavínsskál og
gleðilátum en lögðust svo til hvílu, þreyttir eftir
hátíð jóla og áramóta. Gleði er ekki sjálfgefin og
á undanförnum misserum höfum við verið minnt
á að fjölmargir eiga í erfiðleikum með að sjá
gleðina í lífi sínu. Slíkir erfiðleikar fara ekki í manngreiningarálit og
peningaleg gæði hjálpa þar lítið. Ýmislegt hefur verið gert til að
koma til móts við þarfir þeirra sem glíma við þunglyndi sem
gjarnan leggst á þegar skammdegið hvílir yfir eins og svartnætti.
Miklu munar um að við sem einstaklingar, vinir, foreldrar, systkini
eða skyldmenni tökum eftir því hvernig næsta manni líður og látum
okkur það skipta máli. Það þarf enga sérfræðikunnáttu til að ljá öxl
sína og brosið er sólskin sem vermir allt, eins og segir í kvæðinu.
Þó má ekki vanmeta þörfina á að aðgangur að sérfræðiaðstoð þarf
að vera aðgengilegur, en oft má engan tíma missa.
Við eigum sjálf mikinn þátt í að árið verði gleðiríkt og þó menn
takist á um stækkun álvers, val á þingmönnum eða leggi hart að sér
í vinnu þarf það ekki að draga úr gleði í lífi okkar. Við getum með
hverju því sem við gerum ákveðið hvort við gleðjumst eða aukum
á áhyggjur okkar. Tryggvi Þorsteinsson, skátaforingi frá Akureyri
sagði í kvæði sínu: „Þú leitar oft gæfunnar langt yfir skammt, þú
leitar í fjarlægð, en átt hana samt. Nei – vel skal þess gæta; hún
oftast nær er, í umhverfi þínu hið næsta þér.“
Gleðilegt ár!
Guðni Gíslason
Víðistaðakirkja
Sunnudagurinn 7. janúar
Fjölskylduhátíð kl. 11:00
Sunnudagaskólinn og fjölskylduguðsþjónustan
saman í einni stórri fjölskylduhátíð.
Barnakórinn og Unglingakórinn syngja
undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttir
8-9 ára starf á mánudögum kl. 16:30
10-12 ára starf (TTT) á þriðjudögum kl. 17:00
Unglingastarf á þriðjudögum kl. 19:30
Kyrrðarstundir
á miðvikudögum kl. 12:00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Opið hús fyrir eldri borgara á
miðvikudögum kl. 13:00
Spil, spjall og kaffiveitingar
Foreldrastundir
á fimmtudögum kl. 13:00
Gefandi samvera fyrir heimavinnandi foreldra.
www.vidistadakirkja.is
Verið velkomin
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
1. Samstarfssamningur Glitnis
við Byggðasafn Hafnarfjarðar
og Hafnarborg.
Björn Pétursson mætti til fund-
arins og kynnti drög að samningi á
milli Byggðasafns Hafnarfjarðar
og Hafnarborgar annars vegar og
Glitnis hins vegar. Menningar- og
ferðamálanefnd er samþykk því
að í framhaldinu verði aðgangs-
eyrir að Byggðasafninu felldur
niður og vísar ákvörðun þar um til
bæjarráðs.
1. Íbúalýðræði/kosning.
Lögð fram drög að máls-
meðferðarreglum um almennar
atkvæðagreiðslur í Hafnarfirði
ásamt greinargerð frá Gunnari
Helga Kristinssyni, prófessor í
stjórnmálafræði. Meirihlutinn í lýð-
ræðis- og jafnréttisnefnd sam-
þykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar
þeim til bæjarráðs til kynningar og
afgreiðslu. Fulltrúi Vinstri grænna
óskar bókað: „Undirrituð sam-
þykkir ekki drögin og gerir einnig
athugasemd við 4. gr.“
Hjartað elskar fisk
Álverið í Straumsvík
Samkomulag
um raforkuverð
Rannveig Rist og Friðrik
Sophusson undirrituðu 15.
desember sl. samkomulag sem
framlengir fram á mitt næsta ár
viljayfirlýsingu Alcan og Lands-
virkjunar um gerð raforku-
samnings til stækkunar álversins
í Straumsvík.
Þetta samkomulag felur einnig
í sér formlega staðfestingu á að
samninganefndir fyrirtækjanna
hafi náð samkomulagi um raf-
magnsverð. Ætlunin er að leggja
rafmagnssamninginn fyrir stjórnir
Alcan Inc. og Landsvirkjunar til
samþykktar á nýju ári.
Þá undirrituðu Rannveig og
Friðrik einnig samning milli
Alcan og Landsvirkjunar um
skiptingu kostnaðar vegna næsta
skrefs í undirbúningi virkjana í
Neðri-Þjórsá. Stjórn Landsvirkj-
unar samþykkti á fundi sínum í
morgun að heimila að ráðist
verði í útboð á hönnun virkjan-
anna í Neðri-Þjórsá. Þetta er gert
svo unnt verði að standa við
orkuafhendingu á tilsettum tíma
en ráðgert er að stækkun álvers-
ins í Straumsvík geti komist í
fullan rekstur í ársbyrjun 2011 ef
núverandi áform ganga eftir.
Orkukaup Alcan af Landsvirkjun
til stækkunarinnar munu nema
um 2.300 GWh á ári.
Samkvæmt samningi Alcan og
Landsvirkjunar greiðir Alcan 2/3
af kostnaði vegna þessa undir-
búnings. Alcan fær þennan
kostnað að fullu endurgreiddan
ef af stækkun verður en að öðr-
um kosti á fyrirtækið tak-
markaðan endurgreiðslurétt ef
rafmagnið úr þessum virkjunum
verður selt öðrum innan ákveð-
ins tímafrests.