Fjarðarpósturinn - 14.12.2006, Side 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 14. desember 2006
Fiðluleikarinn er fjórða ljóða-
bókin, sem Árni Grétar Finns-
son, hæstaréttarlögmaður og fv.
forseti bæjarstjórnar sendir frá
sér. Áður eru útkomnar ljóða-
bækurnar Leikur að orðum 1982,
Skiptir það máli 1989 og Sept-
emberrós 1997. Góðar viðtökur
við fyrri bókum hafa verið
höfundi mikil hvatning og því
lítur Fiðluleikarinn nú dagsins
ljós.
Á sama hátt og efni fyrri
ljóðabóka Árna Grétars, er efni
ljóða Fiðluleikarans fjölbreytt.
Ljóðin fjalla meðal annars um
tímann, mannsævina frá æsku til
elli, hverfulleikann, samtímann,
ástina og margt fleira. Meirihluti
ljóðanna er ortur undir hefð-
bundnum bragarháttum, en í
bókinni eru einnig allmörg
óhefðbundin ljóð og þó oft að
hluta með hljóðstöfum. Sjónar-
hornin eru margbreytileg og
tónninn í Fiðluleikaranum er
næmur eins og í fyrri bókum
höfundar.
Bókin er rúmlega 100 blað-
síður og skemmtilega mynd-
skreytt af Gunnari Karlssyni.
Fiðluleikarinn
Fjórða ljóðabók Árna Grétars Finnssonar
Áfangastaður við Suðurhöfn-
ina í Hafnarfirði var tilnefndur til
sænsku arkitektúrverðlaunanna
„Forum AID prize“ i flokknum
arkitektúr fyrir árið 2006.
Verkið var tilnefnt til verð-
launanna af alþjóðlegri dóm-
nefnd, þrátt fyrir að íslensk dóm-
nefnd hefði ekki séð ástæðu til
þess. Það þykir mikill heiður að
hljóta tilnefningu til þessara
verðlauna.
Áfangastaðurinn var hannaður
af Alark arkitektum ehf.,
Kristjáni Ásgeirssyni, Jakobi
Líndal og Sigurbergi Árnasyni.
Tilnefndur til
arkitektúrverðlauna
Áfangastaður við Suðurhöfnina
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Hafnarfjarðardeild Rauða
kross Íslands afhenti fyrir
skömmu Mæðrastyrksnefnd
Hafnarfjarðar 500.000 kr. fram-
lag til jólaaðstoðar í ár.
Úthlutun nefndarinnar fyrir
þessi jól fer fram dagana 14. og
19. desember. Hægt er að sækja
um aðstoð á skrifstofu Rauða
krossins Strandgötu 24 (gengið
inn frá Fjarðargötu) alla virka
daga frá 9-15 en til 20 á fimmtu-
dögum. Rauði krossinn sér um
fataúthlutun en hún fer fram að
Gjótuhrauni 7 alla miðvikudaga
frá 9-14.
Færði Mæðrastyrksnefnd
hálfa milljón króna
Úthlutun fer fram í dag og 19. desember
Elísabet Valgeirsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar tekur við
framlagi Rauða krossins frá Áshildi Linnet framkvæmdastjóra.
Þeir blakta nú næstum hlið við
hlið grænfánarnir í Álftanesskóla
og í Krakkakoti en Jónína Bjart-
marz afhenti náttúruleikskólan-
um Krakkakoti sinn fyrsta græn-
fána sem staðfestingu á góðu
starfi að umhverfismálum í
skólanum. Þetta var í fyrsta sinn
sem ráðherrann afhendir græn-
fánann í starfi sínu.
Það var mikil hátíð í Krakka-
koti 1. desember þegar fáninn
var afhentur, haldnar voru ræður,
boðið var upp á grænfánatertu og
bæjarstjórinn gaf skólanum tvær
moltutunnur.
Grænfáninn í Krakkakot
Umhverfisvænir nágrannar okkar í náttúruleikskóla
Jónína Bjartmarz og Hjördís G. Ólafsdóttir leikskólastjóri með börnunum.
Lj
ós
m
.:
S
m
ár
i G
uð
na
so
n
Sóknarbörn í Ástjarnarsókn
sýndu tillögu safnaðarnefndar
um að auglýsa stöðu prests lausa
til umsóknar lítinn áhuga en
aðeins 22 mættu til að taka
afstöðu til tillögunnar og aðeins
4 greiddu atkvæði með henni.
Staðan er því sú að Kálfatjarnar-
sókn vill auglýsa en Ástjarnar-
sókn ekki, en sóknirnar deila
með sér presti.
Málið fer nú í hendur Úrskurð-
arnefndar sókna og enn óvíst
hvort auglýst verður.
Vilja ekki auglýsa
preststöðuna
Jólasveinn í Sívertsenshúsi.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n