Fjarðarpósturinn - 14.12.2006, Blaðsíða 15
www.fjardarposturinn.is 15Fimmtudagur 14. desember 2006
Handbolti
Úrvalsdeild karla:
Akureyri - Haukar: 27-27
1. deild karla:
Grótta - FH: 28-27
Haukar 2 - Afturelding: 21-29
Bikarkeppni karla:
FH - Haukar: Miðv.dag
Körfubolti
Úrvalsdeild kvenna:
Hamar - Haukar: 22-105
Evrópukeppni kvenna:
Haukar - Montpellier: 27-104
Næstu leikir:
Handbolti
10. des. kl. 16, Akureyri
Akureyri - Haukar
(úrvalsdeild karla)
10. des. kl. 20, Ásvellir
Haukar 2 - Afurelding
(1. deild karla)
Körfubolti
17. des. kl. 19.15, Ásvellir
Haukar - UMFN
(Eúrvalsdeild karla)
17. des. kl. 17, Keflavík
Keflavík - Haukar
(úrvalsdeils kvenna)
21. des. kl. 19.15, Ásvellir
Haukar - UMFG
(úrvalsdeild kvenna)
29. des. kl. 19.15, Hveragerði
Hamar/Selfoss - Haukar
(úrvalsdeild karla)
ÍþróttirStarex 4x4 til sölu
Frábær, vel með farinn fjölskyldubíll,
fjórhjóladrifinn og flottur í snjóinn. Snúningssæti
og gott pláss fyrir 7. Ekinn aðeins 100 þ. km.
Nýskráður í júlí 2000. Verð kr. 1490 þúsund.
Upplýsingar í síma 896 4613
Gefðu heilsu
í jólagjöf
Heilsuklúbbur
Rakelar og Sindra
869 7090, 861 7080
www.kolbrunrakel.is
GEYMDU AUGLÝSINGUNA
Nú er tímabært að panta í vinsælu þorláksmessuskötuna hjá okkur,
pöntunarsíminn er 565-1213.
Þorláksmessuskatan
Okkar rómaða og glæsilega jólahlaðborð er í Fjörugarðinum og svo er það
St
af
ræ
na
p
re
nt
sm
ið
ja
n
Jólahlaðborð
Í ræðu formanns Samfylk-
ingarinnar fyrir skömmu kom
fram að henni svíður mjög að
þingflokkur Samfylk-
ingarinnar skuli ekki
njóta trausts meðal
þjóðarinnar og á Al-
þingi. Hér í Hafnar-
firði hefur flokkurinn
þó fengið brautar-
gengi, setið við meiri-
hlutavöld í rúmlega 4
ár og fékk s.l. vor end-
urnýjað umboð. Þenn-
an tíma hafa álögur á
bæjarbúa farið stöðugt hækk-
andi, stjórnkerfið orðið flóknara
og dýrara og er mál að linni.
Frumvarp til fjárhagsáætlunar
Hafnarfjarðar fyrir árið 2007 var
lögð fram til fyrri umræðu á
fundi bæjarstjórnar s.l. þriðjudag
12. desember. Ekki kom á óvart
að Samfylkingin er enn að
tryggja sinn sess sem methafi í
skattaálögum.
Þannig er boðað að hámarks-
útsvar 13,03% verði lagt á
bæjarbúa meðan flest önnur
bæjarfélög í kjördæmi okkar
nýta ekki heimildina til fulls.
Garðabær leggur t.d. á 12,46 %
og munar um minna.
Samfylkingin leggur til að
áfram verði fasteignaskattur á
íbúðir verði 0,27% af fasteigna-
mati meðan öll sveitarfélögin í
SV kjördæmi eru lægri t.d.
0,24% á Seltjarnarnesi og
0,225% í Mosfellsbæ. Vegna
hækkunar á mati verður veruleg
krónutöluhækkun milli áranna
2006 og 2007.
Vatnsskattur og holræsa-
gjald eru líka í hámarki auk þess
sem Samfylkingin hyggst greiða
samtals 65 milljón
króna arð af vatns-
veitu og fráveitu inn í
aðalsjóð til að fegra
útkomuna þar eða
réttara sagt til að auka
enn á útgjöldin. Rétt
væri hins vegar að
lækka þessi gjöld enda
ekki í samræmi við
ákvæði sveitarstjórn-
arlaga að leggja á
þjónustugjöld umfram það sem
þjónustan og uppbygging hennar
kostar.
Sumir talsmenn Samfylkingar
tala digurbarkalega um sérstaka
umhyggju fyrir hag eldri borgara
og öryrkja en hverjar eru stað-
reyndirnar? Jú, Hafnarfjörður
býður þessum þegnum sínum
lökustu afsláttarkjör af fasteigna-
gjöldum sem þekkjast í Suð
vestur kjördæmi..
Afstaða bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins.
Stefna Sjálfstæðisflokksins
bæði á landsvísu og í sveit-
arstjórnum er að halda álögum á
íbúa í lágmarki. Bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins munu því
flytja tillögur um lækkun skatta á
Hafnfirðinga og um leið lækkun
útgjalda bæjarfélagsins á móti.
Hafnfirðingar eru hvattir til að
fylgjast vel með tillögum okkar
sjálfstæðismanna og bera saman
við þær ákvarðanir sem Sam-
fylkingin tekur.
Höfundur er bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks
Hver verður jólagjöfin
frá Samfylkingunni?
Skattakóngar Samfylkingar
Almar
Grímsson
Kæst Þorláksmessuskata
mild – sterk – söltuð
Mæðrastyrksnefnd
úthlutar
Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar verður með
árlegu úthlutun sína 14.og 19. desember.
Einungis er úthlutað eftir umsóknum sem hægt er að útfylla hjá
Rauða krossinum, Félagsþjónustunni og kirkjunum.
Einnig má hafa samband við stjórnarkonur en nöfn þeirra fást
uppgefin hjá fyrrgreindum aðilum.
Jólasveinn í Sívertsenshúsi
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n