Fjarðarpósturinn - 05.02.2009, Qupperneq 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 5. febrúar 2009
Fulltrúar Landsnets og sérfræðingar, sem vinna að matinu á vegum
fyrirtækisins, kynna verkefnið og svara fyrirspurnum.
Verkefnið, sem fengið hefur vinnuheitið Suðvesturlínur, tekur til
endurnýjunar á raforkuflutningskerfinu frá Hellisheiði að Geithálsi og
Hafnarfirði og áfram út á Reykjanes.
Frekari upplýsingar um Suðvesturlínur er að finna á
sudvesturlinur.is sérstakri heimasíðu verkefnisins.
landsnet.is heimasíðu Landsnets.
efla.is heimasíðu EFLU verkfræðistofu.
skipulag.is heimasíðu Skipulagsstofnunar.
Suðvesturlínur verða líka kynntar í opnu húsi á Suðurnesjum:
í Virkjun á Vallarheiði í Reykjanesbæ föstudaginn 6. febrúar kl. 15:00-19:00
og í Stóru-Vogaskóla í Vogum laugardaginn 7. febrúar kl. 15:00-19:00.
Opið hús
um Suðvesturlínur
í íþróttamiðstöðinni
Ásvöllum
Landsnet kynnir tillögu að áætlun um mat á
umhverfisáhrifum Suðvesturlína í opnu húsi í
íþróttamiðstöðinni Ásvöllum
(Haukahúsinu) í Hafnarfirði á sunnudaginn
kemur, 8. febrúar, frá kl. 15:00 til 19:00.
A
T
H
Y
G
L
I
Fyrir stuttu var haldinn um 1800
manna borgarafundur í Íþrótta -
húsinu við Strandgötu und ir heitinu
„Stöndum vörð um St. Jósefs -
spítala“. Fund urinn var
haldinn í kjölfar
ákvörð unar þáverandi
heilbrigðis ráð herra, í
ríkisstjórn Sjálfstæðis -
flokks og Sam fylk -
ingar, um að loka
spítal anum, færa þjón -
ustuna á sjúkra húsið í
Reykja nesbæ og á
Lands spítalann og
koma upp öldrunar þjón ustu þess í
stað. Ákvörðunin var tekin í
miklum flýti og án samráðs við
hags muna aðila. Þingmenn heyrðu
fyrst af henni í fjölmiðlum og
Hafnar fjarðarbær var ekki hafð ur
með í ráðum. Á borgara fund inum
reyndi ráðherra án árangurs að
færa rök fyrir ákvörðun sinni.
Lífsgæði
Ásta Möller, formaður heil -
brigðisnefndar, hefur einnig opin -
berlega reynt að réttlæta lok un
með þeim rökum að hús næði
spítalans sé illa farið. Í þar síðustu
viku skoðaði ég spítalann í fylgd
Dórotheu Sigur jóns dóttur, hjúkr -
unarstjóra og sá þá að slíkar
yfirlýsingar eru úr öllu sam hengi.
Aðkall andi er að klæða gafl í
göngu deildar eining unni en slíkt
viðhald er eðli legur hluti af rekstri
stofnana. Bæði á borgara fund -
inum og í viðræðum við starfsfólk
skurðdeildar spítal ans komu fram
mikilvægar upplýs ingar um starf -
semi hans. Til dæmis um s.k.
grindar botns teymi sem sérhæfir
sig í meðferð á grindarbotns -
vanda málum kvenna. Teym ið er
það eina sinnar teg -
undar í landinu og hef -
ur bætt lífs gæði fjöl -
margra kvenna.
Gegnheil samstaða
Hafnfirðingar hafa
staðið vörð um spítal -
ann bæði árið 1991 og
nú árið 2009 með und -
ir skriftasöfnun. Hef ur
Bandalag kvenna í
Hafnar firði (BKH) að öðrum
ólöst uðum verið í forystu varð -
stöð unnar eins og fram kom í
góðri ræðu Kristínar Gunn björns -
dóttur, for manns BKH, á borgara -
fundinum. Mörg félög í Hafn -
arfirði hafa ásamt félögum allra
stjórn málaflokka í bænum álykt -
að gegn ákvörðun um lokun St.
Jósefs spítala. Samstaða Hafn -
firðinga í þessu máli er því gegn -
heil. Þann 14. janúar s.l. bauð
aðgerðarhópur „Stöndum vörð
um St. Jósefs spítala“ þing mönn -
um Suðvestur kjördæmis til
fundar um lokunar áform ráð -
herra. Á þeim fundi mátti heyra
að nokkrir þingmenn höfðu efa -
semdir um réttmæti ákvörð unar
ráðherra. Ögmundur Jónas son,
nýr heilbrigðis ráðherra, sótti
fundinn og þekkir því ágæt lega til
málsins. Af þeim sökum er því
rétt að spyrja núna Hvað nú
Ömmi?
Höfunundur er alþingismaður.
Hvað nú Ömmi?
Siv Friðleifsdóttir
Iron Dog vélsleðakeppnin í
Alaska er lengsta og sennilega
erfiðasta vélsleðakeppni í heimi
og hefur verið haldin síðan 1984.
Langflestir keppendur eru frá
Alaska. Keppt er í tveimur
flokkum „Pro“ flokki og „Recre -
ational“ flokki eða skemmti flokki
sem hjónin Sigurjón Pét urs son og
Þóra Hrönn Njálsdóttir taka þátt í.
Að sögn Sigurjóns er mikill
undir búningur fyrir svona ferð og
hafa margir lagt hönd á plóg. Þau
hjónin héldu út fyrir um 10
dögum síðan og hafa verið við
æf ing ar síðustu daga. Aðstæður
geta verið mjög erfiðar -30° til
-45°C. Með þeim í liði eru
bræðurnir Will og Wally Smith
frá Alaska.
Ferðin hefst í Wasilla, sem er
norður af borginni Anchorage.
Þaðan liggur leiðin í norð-austur
til Nome við Barentshaf, á ám og
eftir opnum sífrerasléttum og
gegnum þéttvaxna skóga en
keppn inni lýkur svo í Fairbanks
inni í landi.
Miklar kröfur eru gerðar til
búnað ar keppenda og öryggis -
kröf ur strangar. Í þeirra flokki
koma allir keppendur í hús á
kvöldin en í „Pro“ flokknum er
keppt á tíma og hver ekur eins og
hann lifandi getur og hvílist
aðeins eftir þörfum.
Sigurjón og Þóra Hrönn keppa
á sérbúnum keppnissleðum af
gerðinni Artic Cat F6 Sno Pro en
fjaðrabúnaður þeirra hefur verið
styrktur sérstaklega fyrir keppn -
ina. Þóra Hrönn er ein þriggja
kvenna sem taka þátt en hinar
tvær eru frá Alaska.
Keppnin hefst á morgun en
„Pro“ flokkurinn leggur af stað á
sunnudag en samt er búist við að
keppendur í þeim flokki fari fram
úr fólkinu í skemmtihópnum á
leiðinni. Sjálfvirkur staðsetn ing -
ar búnað ur er á sleðum keppenda
og hægt verður að fylgjast með
þeim Sigurjóni og Þóru Hrönn á
síðunni www.icelandalaska.com
Sigurjón, sem er vanur vél -
sleða maður segir keppnina mik ið
ævintýri sem þau hjónin hlakki
mikið til að taka þátt í.
Taka þátt í erfiðri 3172 km
vélsleðakeppni í Alaska
Sigurjón Pétursson og Þóra Hrönn Njálsdóttir hefja keppni á morgun
Sigurjón og Þóra Hrönn við æfingar í Wasilla í Alaska.