Fjarðarpósturinn - 07.05.2009, Síða 5
Hafnarfjarðarkirkja 5Fimmtudagur 7. maí 2009
Sr. Gunn þór Þ. Inga son sem
verið hefur sóknarprestur við
Hafnarfjarðarkirkju frá 1977
lætur brátt af störf um til að taka
við starfi á Biskups stofu þar sem
hann mun m.a. sinna rann sókn um
á keltneskri kristni og menn ingu
og áhrifum þeirra á íslenska
kristni og mannlíf en sr. Gunnþór
hefur sérmenntað sig á þessu
sviði. Á næstunni verð ur auglýst
eftir nýjum sókn ar presti við
kirkjuna .
Sóknarprestar kirkjunnar hafa
einungis verið þrír frá vígslu
kirkjunnar 20. desember 1914,
sr. Árni Björnsson sem kjörinn
hafði verið sóknarprestur Garða -
sóknar árið áður en sóknin hét
Garðasókn til ársins 1966, hann
gegndi starfinu til dauða dags, 26.
mars 1932, sr. Garðar Þor steins -
son sem var vígður til starfa
23. júní 1932 og sr. Gunnþór Þ.
Ingason frá 5. júní 1977. Hafði
sr. Friðrik Friðriks son sinnt starfi
sókn ar prests frá láti sr. Árna þar
til sr. Garðar tók til starfs.
Við kirkjuna starfa tveir prest -
ar, sóknarprestur og prestur en
sr. Þórhallur Heimisson gegn ir
síðari stöðunni og hefur gert frá
9. júní 1996. Fyrrihluta þessa árs
hefur sr. Kjartan Jónsson, hér -
aðs prestur sinnt störfum sr. Þór -
halls á meðan sr. Þórhallur hef ur
sinnt fræðslustarfi fyrir Kjalar -
ness pró fast dæmi og afleysingar -
skyld um embættisins. Sr. Þór -
hall ur snýr aftur til starfa 1. júlí
nk.
Sr. Þórhildur Ólafs vígðist til
kirkjunnar 16. október 1988 og
starfaði síðan sem safnaðar -
prestur til júní 2003.
2. tbl. 30. árg. — Útgefandi: Hönnunarhúsið ehf. fyrir Hafnarfjarðarkirkju — Ábm.: Gunnþór Þ. Ingason — 7. maí 2009
Prestaskipti eftir 32 ár
Sr. Gunnþór Þ. Ingason hverfur til nýrri starfa á Biskupsstofu
Einn fermingarhópa kirkjunnar ásamt prestunum sr. Kjartani og sr. Gunnþóri.
Kyrrðar -
stund
með kristinni
íhugun
þriðjudaginn
12. maí
kl. 17.30-18.30
Kirkjan er opin
frá kl. 17
Nú fer skemmtilegu vetr ar -
starfi barna- og unglingakórs
senn að ljúka. Í vetur hafa um 60
börn og unglingar tekið þátt í
starfi kórsins og hefur kórinn
verið með fjöl breytta dagskrá.
Má þar nefna tónleika í Hall -
grímskirkju, æfingabúðir í Kald -
ár seli, kóramót í Víði staðakirkju,
nátt fata partý, sungið hefur verið
í fjöl skyldu guðþjónustum og
margt fleira. Í apríl tók ungl -
ingakórinn þátt í vel heppn uðu
kóramóti ís lenskra barnakóra
sem að þessu sinni var haldið í
Seljaskóla. Kórarnir eru ný -
komn ir úr sín um árlegu óvissu -
ferð um. Ungl ingakórinn fór á
hinn geysi vinsæla söng leik
Mamma Mia sem sýndur var í
Garða skóla á dögunum en barna -
kórinn fór á hestbak og heimsótti
Skógrækt Hafnarfjarðar.
Vor tónleikar kóranna verða
næst komandi mánu dag 11. maí
kl. 18 í Hafnarfjarðarkirkju og
eru allir hjartanlega vel komn ir.
Vortónleikar mánudaginn 11. maí
Barna- og unglingakór kirkjunnar syngja – allir velkomnir
Glæsilegir kórfélagar á tónleikum í Hallgrímskirkju.