Fjarðarpósturinn - 07.05.2009, Qupperneq 7
Leikfélag
Hafnafjarðar -
kirkju?
Mikill áhugi er á meðal
starfsfólks Hafna fjarðar -
kirkju að stofna leikfélag
kirkjunnar og setja upp
verð ugt söng- eða leik -
verk á haustmánuðum.
Vonir standa til að hægt
verði að stilla saman
strengi ýmissa starfs -
greina kirkjunnar í þessu
verkefni. Unnið verður að
málinu í sumar.
Foreldra -
morgnar á
fimmtu -
dögum
Foreldramorgnar Hafn -
ar fjarðarkirkju eru alla
fimmtudagsmorgna frá
kl. 10 til 12. Hittast for -
eldrar með ungbörn sín í
salnum Vonarhöfn, en
gengið er inn í hann frá
Suður götu.
„Við hittumst og spjöll -
um saman á léttu nótun -
um yfir kaffibolla á með -
an börnin ýmist sofa eða
leika sér. Öll aðstaða er
fyrir hendi,“ segir Lína
Guðnadóttir. Leikföng og
barnastólar eru á staðn -
um, skiptiaðstaða og að -
gangur er að eldhúsi ef
sjóða þarf vatn eða hita
pela. Einnig er hægt að
hafa vagnana beint fyrir
utan salinn í góðu skjóli.
Einu sinni til tvisvar
sinnum í mánuði fær hóp -
ur inn heimsókn þar sem
gesturinn fræðir hópinn
um einhvert spenn andi
efni. Fræðsla hefur verið
um matarræði barna,
slysa varnir, svefn og
fleira í þeim dúr.
„Foreldramorgnar eru
kjörið tækifæri til þess að
koma sér út úr húsi og
kynnast nýju fólki á
góðum stað. Allir for -
eldrar eru hjartanlega vel -
komnir með börn sín. Við
fögnum öllum nýjum
andlit um,“ segir Lína að
lokum.
Gospelhátíð
Eins og síðstliðið sumar
verður gospelhátíð haldin
í Hafnarfirði í júní. Kirkj -
urnar í bænum munu
bjóða upp á dagskrá og
viðburðir verða í Hell is -
gerði. Opið hús verð ur í
Hafna fjarðar kirkju laug -
ar daginn 20. júní og
sunnu daginn 21. verður
messa með mikilli tónlist.
Orgeltónleikar verða
einn ig í kirkjunni þessa
helgi. Dagskráin verður
nánar auglýst síðar og
hana verður að finna á
www.gospelhatidin.com.
Hafnarfjarðarkirkja 7Fimmtudagur 7. maí 2009
Biskup Íslands skal aug lýsa laust em -
bætti sókn ar prests og prests í Lög -
birtingablaði og á öðr um opinberum
vett vangi og skal umsóknar frest ur ekki
vera skemmri en fjórar vikur frá út -
gáfu degi blaðsins.
Að liðnum umsóknarfresti sendir
biskup valnefnd umsóknir þeirra er sótt
hafa.
Valnefnd velur sóknarprest og prest.
Hún skal skipuð viðkomandi prófasti,
sem jafnframt er formaður nefndar inn -
ar og níu fulltrúum prestakalls. Full -
trúar prestakalls og jafnmargir vara -
menn þeirra eru valdir til setu í val -
nefnd til fjögurra ára á sóknarnefndar -
fundi.
Við mat á hæfni umsækjenda skal
valnefnd m.a. líta til menntunar þeirra,
starfsaldurs, starfsreynslu og starfs fer -
ils, svo og hæfni til samskipta. Við val
sam kvæmt ofanskráðu skal gæta
ákvæða laga um jafna stöðu og jafnan
rétt kvenna og karla. Fundir valnefndar
eru lokaðir.
Biskup skipar þann umsækjanda í
em bætti sem valnefnd hefur náð sam -
stöðu um.
Hvernig sóknarprestar og prestar
eru valdir til starfa í prestaköllum
Biskup Íslands hefur
kallað sr. Gunnþór Þ.
Inga son til að taka við em -
bætti sérþjónustu prests á
Biskupsstofu á sviði helgi -
halds og þjóð menn ingar.
Sr. Gunnþór, sem er
sérmenntaður í keltneskri
kristni og guðfræði mun
m.a. sinna rannsóknum á
kelt neskri kristni og
menn ingu og áhrifum
þeirra á íslenska kristni og
mann líf. Hann mun taka
þátt í starfsþjálfun guð -
fræði nema og sjá um
verk efni á vegum helgi -
siðanefndar Þjóðkirkj unn -
ar m.a. ann ast helgihald á
Þing völl um.
Sr. Gunnþór veitir þjón -
ustu við Hafnar fjarðar -
kirkju fram í endaðan
júní mánuð. Hann mun
kveðja söfn uð sinn og
kirkju við messu á kom -
anda hausti.
Sr. Gunnþór kallaður til
nýrra starfa á Biskupsstofu
Sr. Gunnþór Þ. Ingason
Barrok orgel Hafnarfjarðarkirkju sem verður vígt 20. september
við hátíðarmessu kl. 11 en uppsetning orgelsins hefst í lok ágúst.
Jafnframt verða hátíðartónleikar á vígsludeginum kl. 17 þar sem
fram kemur hin heimsþekkta alt söngkona Britta Schwarz. Hún er
eiginkona orgelsmiðsins, Kristians Wegscheiders. Orgelið er
smíðað í Dresden í Þýskalandi.
Nýtt barrok orgel vígt í haust
Prjónakaffi Kvenfélagsins í Vonarhöfn
Fjör í barnastarfinu.Náttfatapartý.
Frá héraðsfundi.
Á fermingarnámskeiði.
L
jó
s
m
.:
H
a
fn
a
rf
ja
rð
a
rk
ir
k
ja