Fjarðarpósturinn - 07.05.2009, Page 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 7. maí 2009
Komdu á æfingu!
www.haukar.is
HVERFAFUNDIR BÆJARSTJÓRA
11. – 13. MAÍ 2009
Mánudagur 11. maí kl. 20: Setberg – Hraun – Suðurbær - Miðbær
Fundarstaður: Álfafell, Íþróttahúsinu við Strandgötu
Þriðjudagur 12 .maí kl. 20: Hvaleyraholt – Vellir – Ásland
Fundarstaður: Ásvellir
Miðvikudagur 13. maí kl. 20: Norðurbær – Vesturbær
Fundarstaður: Skátaheimilið
TAKTU ÞÁTT Í UMRÆÐUNNI – KÍKTU Á FUND Í ÞÍNU HVERFI
Hverfafundir með bæjarstjóra
Bæjarstjóri boðar nú til hverfafunda í sjötta sinn en þeir hafa mælst
mjög vel fyrir hjá bæjarbúum. Á undanförnum árum hafa fjölmargir
bæjarbúar lagt leið sína á fund ina og komið þar gagnlegum ábend-
ingum á framfæri.
Bæjarbúar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðunni. Hverfa-
fundir bæjarstjóra eru góður vettvangur til að fylgjast með því sem er á
döfinni og ekki síður til að spyrja bæjarstjórann beint um þau málefni
sem brenna á íbúum.
Boðið verður upp á kaffi og með því.
Ráðist á
mann á
Smyrlahrauni
Lögreglan fór ekki út
úr bílnum
Aðfaranótt 1. maí réðust
þrír hettuklæddir menn
tilefnis laust að 59 ára manni á
Smyrlahrauni og spörkuðu í
bak hans svo hann féll á
gangstéttina. Spörkuðu þeir
þá í andlit hans og hönd en
flúðu af vettvangi er ungur
maður kom hlaupandi út úr
næsta húsi. Kallaði sá til
lögreglu. Lögrelga kom á
staðinn og voru árásar menn -
irnir á bak og burt en sá sem
ráðist var á sá aldrei framan í
þá en heyrði á tali þeirra að
þeir væru útlendingar.
Sá sem varð fyrir árásinni
var undir áhrifum áfengis og
mjög vankaður eftir höggin.
Var hann mjög óhress með að
lögreglan hafi ekki einu sinni
komið út úr bílnum og vildi
þá ekkert með þá hafa. Tók
lögregla ekki skýrslu og
hvarf af vettvangi. Maðurinn
bólgnaði mjög upp í andliti
og tennur losnuðu.
Er Fjarðarpósturinn leitaði
til lögreglu og spurði um
ástæðu þess að lögregla hafi
ekki farið út úr bílnum, og
hvort ekki væri farið eftir
einhverjum verklagsreglum
fengust eftirfarandi svör:
„Þegar menn fara í líkams -
árásarmál og gerandi er far -
inn af staðnum eru teknar
niður upplýsingar frá árásar -
þola og vitnum ef þau eru til
stað ar. Áverkar á þoland an -
um er skoðaðir með tilliti til
þess hvort nauðsynlegt sé að
kalla til sjúkrabifreið og/eða
hvort lögreglan flytur hinn
slasaða á slysadeild til skoð -
unar. Þetta er það sem er gert
að jafnaði í upphafi hvers
árásar máls. Í þessu máli er
bókað að árásarþolinn hafi
ekki viljað þiggja neina að -
stoð frá lögreglu.“
Árásarþolinn segist hafa
komist við illan leik heim og
hafi haft mikla verki eftir
spörkin sem dundu á honum.