Fjarðarpósturinn - 27.08.2009, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 27. ágúst 2009
Barna– og
unglingakór
Hafnarfjarðarkirkju
Í vetur verður boðið upp á kórastarf
fyrir börn og unglinga
á aldrinum 4-16 ára
Innritun og fyrsta æfing kóranna
verður mánudaginn 31. ágúst
Barnakór, 4-6 ára kl. 16.45 -17.30
Eldri barnakór, 7-9 ára kl. 17.15-18
Unglingakór, 10-16 ára kl.18-19
Einnig æfir unglingakórinn á fimmtudögum
kl. 17.30-19
Allir eru velkomnir til að vera með !
Stjórnendur kóranna eru Helga Loftsdóttir kórstjóri og
Anna Magnúsdóttir píanóleikari
Allar nánari upplýsingar eru í síma 695 9584 eða á
helga.loftsdottir@gmail.com
BREAKDANS - HIPHOP DANS - STREET DANS - POPPING
Viltu læra ALVÖRU BREAKDANS eða HIPHOP DANS?
Þá ertu búin að finna rétta kennarann til að kenna þér!!
Natasha Royal kom frá New York fyrir meira en 10 árum síðan og ákvað
að kenna Íslendingum ALVÖRU BREAK & HIPHOP DANS en dansarnir
eru upprunalega frá Bandaríkjunum. Hún er með mikla þekkingu og reynslu
í kennslu en með hverju ári eykst áhugi Íslendinga.
Lærðu alvöru dansa, tæknina, framkomu, stílinn
og auðvitað flottustu sporin við bestu tónlistina!!
Skemmtileg námskeið fyrir allan aldur.
Ný námskeið að byrja í september.
Nánari upplýsingar og skráning í
síma 822 6325 www.NATASHA.is
Eva Rut Reynisdóttir og
Anita Aradóttir heldu tómbólu í
Firði og fyrir utan heima hjá
sér, sem og söfnuðu dósum til
styrktar Rauða krossinum í
sumar. Þær söfnuðu 4.380 kr.
sem þær færðu Hafnar fjarðar -
deild Rauða krossins.
Hildur Una Gísladóttir, Þóra
Margrét Karlsdóttir og Brynja
Björt Óskardóttir héldu tom -
bólu við Fjarðarkaup fimmtu -
daginn 13. ágúst og söfnuðu
þar 7.130 kr. sem þær færðu
Rauða krossinum.
Er þeirra framlag allra vel
þegið og fá krakkarnir hrós
fyrir að vilja leggja bágstödd -
um lið.
Söfnuðu fyrir Rauða krossinn
Aníta Aradóttir og Eva Rut
Reynisdóttir.
Þóra Margrét, Hildur Una og Brynja Björt.
Adrenalín á Úlfljótsvatni
Ferð Vinnuskóla Álftaness á Úlfljótsvatn
Miðvikudaginn 12. ágúst
héldu nemendur Vinnuskóla
Álftaness af stað í einnar nætur
skemmtiferð. Lagt var af stað
snemma morguns og ferðinni
heitið á Úlfljótsvatn.
Á Úlfljóts vatni fékk adrena -
línið að njóta sín í blíðskapar -
veðri. Unglingarnir spreyttu sig
á klifri og sigi í 10 metra háum
klifurturni. Þeir prófuðu kanóa
og hjólabáta og þeir allra
hugrökkuðustu tóku sundsprett
í ísköldu vatninu! Vatnasafaríið
sló einnig í gegn og leðju -
slagurinn verður lengi í minn -
um hafður. Þegar rökkva tók
var kveiktur varðeldur og hóp -
ur inn gæddi sér á grilluðum
sykur púðum og söng sig inn í
nóttina.
Andorra er ein af eldri versl -
unum bæjarins og þar hefur
verið gerð bylting til að bjóða
konum ódýrar vandaðar snyrti -
vörur. Segir Helga Sæunn
Árnadóttir, eigandi, að konur
noti enn snyrtivörur þó það sé
kreppa.
„Við verðum að horfa í budd -
una sérstaklega á tímum sem
þessum og ákvað ég því að
bjóða Signature of nature í
Andorru þar sem það eru fag -
aðilar við inn flutning og
áhersla er lögð á að innihalds -
efni, gæði og verð skili sér til
viðskiptavina. Það eru engin
kemísk efni í vörunum og í
boði er allt frá líkamsskrúbbum
í hárnæringar og sápubar frá
Signature of nature sem er
nýjung hjá okkur í Andorru.“
Helga er búin að snúa búð -
inni við og breyta henni í takt
við breytta tíma og býður nú
t.d. krem á 1490 - 2990 kr.
Boð ið er upp á fjölbreytta
gjafa vöru í bjartri versluninni.
Þá hefur verið bætt við
augnhára- og háralenginum þar
sem Bryndís tekur á móti
gestum. Býður hún Grand Hair
Extension sem er ný kynslóð af
hárleng ingum og eitt fljót -
legasta kerfið á markaðnum og
fer alls ekki illa með eigið hár.
Hárið er hægt að nota 3-4
sinnum eða í 1 ár samfleytt.
Arndís Helga hefur slegist í
lið með Helgu Sæunni í nögl -
unum og áfram verður boðið
upp á tilboð í neglur.
„NYX make-up er komið til
okkar og einnig er Förð -
unarskólinn NYX með nám -
skeið sem hefjast í október og
er skráning hafin. Hlökkum til
að sjá ykkur í nýrri og betri
Andorru,“ segir Helga Sæunn
að lokum.
Snyrtivöruverslunin Andorra
er að Strandgötu 32 þar sem
Alþýðubrauðgerðin var til húsa
í gamla daga.
Miklu ódýrari snyrtivörur
Andorra opnar með nýjar ódýrar gæðasnyrtivörur
Helga Sæunn og Arndís Helga ásamt Kamillu dóttur Helgu.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n