Fjarðarpósturinn - 27.08.2009, Page 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 27. ágúst 2009
Fyrirtæki og einstaklingar
Færsla á bókhaldi, launaútrreikningur,
vsk-uppgjör, ársuppgjör, skattframtöl,
skattakærur, fjármálaráðgjöf.
Magnús Waage, viðurkenndur bókari
Reykjavíkurvegi 60, s. 565 2189, 863 2275
Skráning á sundæfingar fyrir 6 ára og eldri
styrkir barna- og unglingastarf SH Sundfélag Hafnarfjarðrar • www.sh.is • Ásvöllum 2 • sími 555 6830
hefst fimmtudaginn 27. ágúst kl. 10-14 alla daga
í síma 555 6830, einnig er hægt að senda tölvupóst á sh@sh.is.
Koma þarf fram: Nafn barns, kt., heimilsfang, nöfn foreldra, kt. og símanúmer.
Stundaskrár og nafnalistar hópa verða birtir á heimasíðu SH, www.sh.is.
Æfingar hefjast mánudaginn 31. ágúst og þriðjudaginn 1. september.
Æfingarstaðir:
Sundhöll Hafnarfjarðar • Suðurbæjarlaug • Ásvallalaug.
Ný sundnámskeið sem byrja 6. september:
3-4 ára fædd 2005 • 4-5 ára fædd 2004 • 5-6 ára fædd 2003
Á þessi námskeið þarf að forskrá hjá sh@sh.is eða í síma 555 6830.
Sundknattleikur fyrir 14 ára og eldri - Handbolti í vatni
Nýr hópur byrjar 31. ágúst kl. 20 í Ásvallalaug.
Æfingar eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 20-21.
Skriðsundnámskeið fyrir fullorðna
Nýtt skriðsundnámskeið hefst 7. september og stendur yfir í fjórar vikur.
Skráning hafin á sh@sh.is
Upplýsingar um þessi námskeið eru á heimasíðu Sundfélags Hafnarfjarðar www.sh.is
Um helmingur starfsmanna
Áslandsskóla tók þátt í Reykja -
víkur marþoninu um helgina.
Kristín Högnadóttir hljóp heilt
maraþon og þær Brynja Björg
Braga dóttir og Lovísa Rut
Ólafs dóttir hálft maraþon.
Hinir 30 hlupu 10 km, en
skólastjórinn hljóp að auki
síðustu 8 km í maraþoninu með
Kristínu henni til stuðnings.
Starfsmenn hlupu til góðs og
annað árið í röð var heitið á
Íþrótta félagið Fjörð.
Hlaupandi starfsfólk
33 starfsmenn Áslandsskóla tóku þátt í
Reykjavíkumaraþoninu
Fimmtudaginn 20. ágúst var
verkið Hringiða eftir Jónínu
Guðnadóttur vígt á Kárahnjúk -
um að viðstaddri stjórn Lands -
virkjunar, starfsmönnum og
verktökum sem að því komu,
fulltrúum sveitarstjórnar, lista -
mann inum og fleiri gestum.
Verkið er hringlaga form eins
og sjá má á myndinni og er um
20 metrar í þvermál. Hringform
í miðju verksins er 7,5 m og er
það sama og þvermál aðrennsl -
is ganganna í Fljótsdalsvirkjun.
Spíralformin í verkinu eru úr
mattslípuðu blágrýti og tákna
hringiðu vatnsins sem sogast
niður í aðrennslisgöngin. Flöt -
ur inn er lagður flögugrjóti úr
landi Valþjófsstaðar. Á blágrýt -
is línunni er texti úr Völuspá,
síðustu hendingar upphafsvís -
unnar: „Vildu að eg Valföður
vel fyr telja, forn spjöll fira þau
er fremst um man“. Trextinn er
úr áli. Í verkinu eru þannig
ýmsar vísanir.
Verkið er á útsýnisstað og er
þannig frá því gengið að fólk
getur gengið upp á það og horft
„vítt og um vítt“, en þarna sér
yfir stóran hluta Hálsalóns,
vest ur til Snæfells, yfir stíflu -
garðinn og niður í Jökulsár -
gljúf ur.
Jónína vann samkeppni um
gerð umhverfislistaverks sem
Landsvirkjun efndi til í sam -
vinnu við Samband íslenskra
myndlistarmanna (SÍM) árið
2006. Jónína var útnefnd bæjar -
listamaður Hafnarfjarðar árið
2007. Sýning hennar Vættir
stóð yfir í Hafnar borg frá maí
s.l. til 21. júní.
Hafnfirskt umhverfislista -
verk á Kárahnjúkum
Umhverfislistaverkið Hringiða eftir Jónínu Guðnadóttur stendur á útsýnisstað á Kárahnjúkum.