Fjarðarpósturinn - 26.04.2012, Page 3
www.fjardarposturinn.is 3 Fimmtudagur 26. apríl 2012
©
F
ja
rð
ar
pó
st
ur
in
n
20
11
-0
9
Komdu í bragðgóða skemmtun!
Kíktu á matseðilinn á
www.burgerinn.is
©
F
ja
rð
ar
pó
st
ur
in
n
20
12
-3
2
Flatahrauni 5a Hfj. • 555 7030
Opið alla daga kl. 11-22
..eða tandoori
Munið
krakkamatseðilinn
Stofnfundur Hollvinafélags
Hellisgerðis var haldin á sum ar
daginn fyrsta í Hellisgerði í
blíðskaparveðri. Í tilefni dags
ins plantaði Guðmundur Rúnar
Árnason bæjarstjóri og fulltrúar
undirbúningsnefndar Hollvina
félagsins tveimur eplatrjám
sem voru gjöf frá Hafnar fjarð
ar bæ og undirbúningsnefndinni.
Þetta var táknræn athöfn því
það þarf tvö eplatré til að þau
frjóvg ist og beri ríkulegan
ávöxt eins og stefnt er að með
sam starfi Hollvinafélagsins og
Hafnarfjarðarbæjar um Hellis
gerði. Einnig var plantað kirsu
berja tré sem var gefið af Skóg
rækt arfélagi Hafnarfjarðar.
Sam þykkt voru lög félagsins
sem hefur það að markmiði að
standa vörð um Hellisgerði og
styðja við fegrun og viðhald
garðs ins með fjársöfnunum og
sjálfboðavinnu og vekja athygli
á þessari fallegu perlu bæjarbúa.
Hægt að gerast félagar
Um 40 manns skráðu sig sem
stofnfélaga og í stjórn voru
kosin Hólmfríður Guðmunds
dóttir, Kristbergur Pétursson,
Jó hann Halldórssón, Lárus Vil
hjálmsson, Margrét Lárus dóttir,
Oddrún Pétursdóttir og Ragn
hildur Jónsdóttir.
Á næsta ári verður haldið upp
á 90 ára af mæli Hellisgerðis og
vonast Holl vinafélagið til þess
að bæjarbúar sameinist um
verkefni sem gera þennan un
aðs reit í Hafnarfirði enn betri.
Þeir sem áhuga hafa á að ger ast
félag ar í Hollvinafélagi Hellis
gerðis er bent á að hafa sam
band í netfangið vinir hellis
gerdis@gmail.com, í síma
6943153 og facebooksíðu
félags ins.
Hollvinir Hellisgerðis
Eplatré var plantað í tilefni stofnunar Hollvinafélagsins.
Tuulikki Koivunen Bylund
biskup sænsku kirkjunnar í
Härnösands stift, fimmti sænski
kvenbiskupinn, og prófastar í
biskups dæminu heimsóttu
Hafn ar fjarðarkirkju á þriðju
daginn. Þar tók Þórhallur
Heimisson á móti þeim en hann
hefur gegnt prestembætti í
Svíþjóð.
Dómkórinn í Reykjavík
býður vorið velkomið með
tónleikum í Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudagskvöldið 2. maí kl.
20. Á efnisskránni eru íslensk
kórlög m.a. eftir Báru Gríms
dóttur, Önnu S. Þorvaldsdóttur
ásamt mótettum eftir Duruflé
og Bruckner.
Dómkórinn var stofnaður
árið 1978 af Marteini H. Frið
rikssyni. Kórinn hefur gefið út
nokkra hljómdiska og haldið
fjölda tónleika, bæði hér heima
og erlendis. Í dómkórnum
syngja um 40 manns. Stjórnandi
Dómkórsins Kári Þormar en
hann er fæddur og uppalinn
Hafnfirðingur og var lengi vel
félagi í Kór Hafnarfjarðarkirkju
áður en hann hélt til náms
erlendis. Kári tók við stöðu
dómorganista árið 2010.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og
aðgangseyrir er kr. 1500 en
ókeypis er fyrir börn og ellilíf
eyrisþega.
Sænskir prófastar og
biskup í heimsókn
Dómkórinn í Hafnarfjarðarkirkju
Sænski biskupinn, sú með krossinn, prófastar og fylgdarlið ásamt
sr. Þórhalli Heimissyni og fleiri í safnaðarheimili Hafnarfj.kirkju.
Kári Þormar stjórnandi kórsins
Of dýrt að
farga
jarðvegi
Eftir lokun tippsins á
Hamranesi sem löngu var
tímabær hafa Hafnfirðingar
engan annan kost en að aka
um 30 km leið að Bolaöldu
með jarðveg. Þrátt fyrir fögur
orð hafa ekki verið fundnar
aðrar lausnir í Hafnarfirði á
meðan deiliskipulagi fyrir
Hafranesið er breytt.
Víða í bæjarlandinu eru sár
í landinu eftir jarðnám og þar
mætti koma fyrir miklu efni á
sama tíma og sár eru löguð. Á
þetta hafa fjölmargir bent í
mörg ár en engin stefna hefur
verið mótuð né staðir fundnir
fyrir jarðveg úr Hafnarfirði.