Fjarðarpósturinn - 26.04.2012, Blaðsíða 14
14 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 26. apríl 2012
Á aðalfundi Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar sem haldinn var 9.
mars í Hafnarborg var fyrsta
heimasíða félagsins opnuð. Eftir
að síðan var opnuð hafa ýmsar
upplýsingar bæst inn á hana, tíð
indi af starfinu sem og fróð leikur
og eldri sagnapunktar um skóg
rækt í bænum á fyrri árum og
áratugum sem eldri félagsmenn
höfðu safnað í gegnum tíðina.
Þetta er áhugavert og gagnlegt
efni fyrir þá sem vilja kynna sér
sögu skógræktar í Hafnarfirði
sem og starfið sem er framundan.
Dagskrá sumarsins liggur m.a.
fyrir og síðan er hægt að leita til
starfsmanna félagsins og fá
nánari upplýsingar og ræða mál
in.
Heimasíðan var nokkurn tíma
í mótum áður en hún var opnuð
með formlegum hætt en slóðin
er www.skoghf.is
Sveinbjörn Sigurðsson þjálf
ari og lærisveinar hans í 5.
flokki FH í handbolta gera það
gott. Um síðustu helgi var
síðasta deildarkeppnin af fimm
haldin á Akureyri og þar sigraði
liðið alla sína leiki með miklum
yfirburðum en liðið sigraði á
fjórum mótum af fimm og
stendur uppi sem Íslands
meistari. Þetta er í þriðja sinn í
röð sem þessi hópur verður
Íslandsmeistari og er framtíðin
björt innan FH með svona
strákum.
Ný heimasíða skógarfólks
Íslandsmeistarar í 3. sinn
5. flokkur FH Íslandsmeistari í handbolta
Múnkhásen í
Gaflaraleikhúsinu
Sýningar á hinu bráð skemmtilega
leikriti Múnkhásen halda áfram.
Miða sala á midi.is og www.
gaflaraleikhusid.is
Listsýning Lækjar
Listsýning Lækjar í tengslum við List
án landamæra sem ber yfirskriftina
„Lækjarlitir“ stendur yfir á Café
Aróma. Þar eru sýnd myndl istarverk
sem voru unnin í Læk á síðastliðnum
vetri. Hluti að verkunum voru unnin
undir leiðsögn Ásu Bjarkar
Snorradóttur mynd lista konu og Ólafs
Oddssonar sem kennt hefur tálgun í
við. Sýnd verða olíum álverk og
vatnslitamyndir, einnig verða sýndir
hlutir sem gerðir hafa verið úr þæfðri
ull og tálgaðir í við. Þeir sem sýna
eru Smári Eiríksson, Kristinn Þór
Elíasson, Helena Stein dórsdóttir,
Svava Halldórsdóttir, Jón ína
Guðmundsdóttir, Guðrún Guð
laugsdóttir, Gyða Ólafsdóttir, Sigríður
Ríkey Eiríksdóttir, Hrafnhildur Sigur
bjartardóttir og Þóroddur Jónsson.
Sýninginstendur til 9. maí og er opin
á opnunartíma Café Aróma.
Akureyrarmyndir í
Bæjarbíói
Laugardaginn kl. 16 endursýnir
Kvikmyndasafn Íslands myndina
Accident, margverðlaunað meistara
verk Joseph Loseys.
Á þriðjudaginn kl. 20 verða sýndar
Akureyrarmyndir í tilefni af 150 ára
afmæli bæjarins. Akureyringar voru
fyrstir Íslendinga til að sjá lifandi
myndir á tjaldi, því Norðmennirnir D.
Fernander og R. Hallseth buðu þeim
fyrstum landsmanna á kvik mynda
sýningu í Góðtemplarahúsi bæjarins
þann 27. júní á því herrans ári 1903.
Sýningar í Hafnarborg
Sýn ingin Skjaldarmerkið hennar
skjöldu með verkum eftir Atla Viðar
Engil bertsson stendur yfir í Sverrissal
Hafnar borgar. Í aðalsal safnsins
stendur yfir sýning Hrafnkels Sig
urðs sonar, Port City. Efniviður
hennar er að mestu leyti sóttur í
slippi þar sem skip eru dregin á land
til viðhalds og endurbóta.
menning & mannlíf
Íþróttir
Næstu leikir
Handbolti
úrslitakeppni:
27. apríl kl. 19, Kaplakriki
FH - Akureyri
(ef þarf)
1. maí kl. 15.45, Laugardalshöll
FH eða Akureyri HK
(1. úrslitaleikur)
Knattspyrna:
1. maí kl. 19.15, Laugardalsv.
KR FH
(meistarakeppni karla)
handbolti úrslit:
karlar:
Akureyri FH: (miðv.dag)
Haukar HK: 2430
FH Akureyri: 2217
Akureyri FH: 2518
HK Haukar: 2118
Haukar HK: 3136
húsnæði óskast
Óskum eftir Íbúð til leigu 2-3
herbergja á Reykjarvíkursvæðinu
helst í Hafnarfirði. Leiguskipti á 4.
herbergja íbúð á Akureyri möguleg.
Upplýsingar í síma 847 6957 eða
netfang halldor@fabtravel.is
Þrítug móðir með eitt barn óskar
eftir 3 herbergja íbúð í Setberginu
eða þar í grennd. Er með langtíma
leigu í huga. S. 823 3993, Erna.
húsnæði í boði
Herbergi til leigu í miðbæ
Hafnarfjarðar. Eldhúsaðstaða,
þvottahús og bað með öðrum
leigjanda, sér inngangur.
Upplýsingasími 898 9455.
Til leigu á Flatahrauni 16a 128 m²
íbúð m/ 3 svefnherbergjum. Svalir.
Hægt að leigja herbergi.
Uppl. í s. 862 2339.
þjónusta
Þakviðgerðir, vatnsþéttingar af
öllum stærðum og gerðum.
Fáið tilboð í síma 777 5697.
Þakvernd ehf. lekabani@gmail.com
Heimilistækjaviðgerðir. Geri við
þvottavélar og fl. heimilistæki.
Kem í heimahús. Sama þjónusta
um helgar. Uppl. í s. 772 2049.
Tölvuviðgerðir alla daga, kem á
staðinn, hægstætt verð.
Sími 664 1622 587 7291.
Bílaþrif. Kem og sæki.
Alþrif, þvottur, bón og vélarþvottur.
Set vörn á rúður. Léttara að skafa!
Úrvals efni. Uppl. í s. 845 2100.
til sölu
Vegna þrengsla vil ég selja
hnefaleikaáhöldin mín. Það
helsta af þeim endurnýjað fyrir ári.
Get tekið lærlinga í hnefaleikum,
aðeins einn í einu, fyrir sanngjarnt
verð. G.H. Björgvinsson
s. 517 4935, 696 2265.
tapað - fundið
Svartur bíllykill með fjarstýringu
og litlum lykli tapaðist 17. apríl
við gamla bókasafnið í Mjósundi.
Á svartri Bjarkar lykla kippu.
Fundarlaunum heitið. Vin samlegast
hafið samband í s. 699 6948.
Litla læðan okkar hún Títla hvarf
frá Lyngprýði við Álftanesveg 3.
apríl s.l. þar sem hún var í pöss
un. M/gula ól með litlum bjöllum.
Eyrna merkt. Uppl. í s. 565 2242
861 2769 eða 822 3177.
Fernando týndist 19. apríl í
Norðurbænum. Vins. athugið í
bílskúrum og útihúsum. Örmerki.
Uppl. sí s. 898 3918/698 3918.
Svört 11 mánaða læða týndist frá
Flókagötu aðfaranótt föstudags.
Hún er ómerkt og ólarlaus. Þeir
sem vita um ferðir hennar hafið
samband í síma 698 4140.
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a .
V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . m a x 1 5 0
s l ö g . M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Tapað - f u n d i ð o g fæs t g e f i n s : FR Í TT
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
www.facebook.com/
fjardarposturinn
Er rennilásinn bilaður?
Passa fötin ekki á þig?
Þarf að gera við?
KÍKTU VIÐ - GOTT VERÐ
Reykjavíkurvegi 22
á bak við Sjónarhól
Opið kl. 17 til 21
Sími 867 2273
FATA-
VIÐGERÐIR
Loftnets og símaþjónusta
Viðgerðir og uppsetningar á
loftnetum, diskum, heimabíóum,
flatskjám. Síma og tölvulagnir
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Nú get ég ekki orða bundist
lengur yfir þeirri lélegu þjónustu
sameinaðs banka Byrs og
Íslands banka við Strandgötu.
Á sínum tíma var þó nokkur
fjöldi sem skipti um banka og fór
frá Byr (fyrrum sparisjóð Hafn
firðinga) með tilheyrandi kostn
að eftir sukk og svínarí Byrs og
yfir til Íslandsbanka og þá flestir
væntanlega til Íslandsbanka við
Fjarðargötu.
Fólk þetta er svo selflutt til
baka án þess að vera spurt við
sam einingu bankanna. Ekki nóg
með það heldur loka þeir útibúi
Íslandsbanka og sameina útibúin
í eitt sem er staðsett eins og áður
segir við Strandgötuna í Hafnar
firði. Við þessa sameiningu hafa
sennilega einhverjir starfsmenn
fengið reisupassann þar sem
sjálfsagt hefur átt að spara.
Í þau skipti sem ég hef komið
í þetta sameinaða útibú við
Strandgötuna er biðin oft um og
yfir 20 mínútur eftir að komast
að hjá gjaldkera og sjaldnast
fleiri en þrír gjaldkerar að
störfum. Þetta finnst mér fyrir
neðan allar hellur og í raun veru
lega skert þjónusta við viðskipta
vinina, auk þess eru mjög fá
bílastæði við útibúið og ekki
hlaupið að því að „skreppa“ í
bank ann.
Bankarnir auglýsa stanslaust í
fjölmiðlum með myndum af
brosandi fólki, en það fólk er
greinilega ekki viðskiptavinir til
tekins útibús. Það er ljóst! Pirrað
og þreytt fólk sem býður eftir
afgreiðslu er ekki sýnt í sjón
varpinu!
Með ósk um úrbætur.
Viðskiptavinur.
Lesendur hafa orðið:
Bros í bönkunum... Nei það
er bara í auglýsingunum
Múnkhásen
til Akureyrar
Sýningu Gaflaraleikhússins á
Ævintýrum Múnkhásens hefur
verið tekið frábærlega af áhorf
end um og gagnrýnendum og
hafa hátt í 3.000 manns lagt leið
sína í litla leikhúsið við Vík
inga stræti. Ákveðið hefur verið
að bæta við sýningum í maí og
verður sýnt til 19. maí. Hægt er
að nálgast miða á sýn inguna í
síma 565 5900 og á midi.is.
Gaflaraleikhúsinu hefur verið
boðið að koma í Menningarhúsið
Hof á Akureyri með sýninguna
og er það ánægjulegt því Akur
eyri er vinabær Hafnarfjarðar.
Frá vinstri: Sveinbjörn Sigurðsson þjálfari, Guðmundur Jónas
son, Oliver Snær Ægisson, Eyþór Örn Ólafsson, Gísli Þorgeir
Kristjánsson, Mímir Sigurðsson Stefán Andri Sævarsson, Örvar
Eggertsson og Helgi Freyr Sigurgeirsson.