Fjarðarpósturinn - 26.04.2012, Síða 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 26. apríl 2012
Deiglan - Dagskráin á næstunni
Opið mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 10-14
Deiglan Strandgötu 24 Sími: 565 1222 deiglan@redcross.is raudikrossinn.is/hafnarordur
Mánudagar
Fastir dagskrárliðir Deiglunnar
Miðvikudagar kl. 10 -14 Gönguhópurinn Röltarar og menning
Föstudagar kl. 10 -14 Þjóðmálahópur og Matarlist
kl. 10 -14 List og handverk
Deiglan er opin fyrir atvinnuleitendur
Mánudaginn 19. des. Leðurtöskugerð, tálgun og myndlist
Miðvikudaginn 21. des. Raul söngæfingar
í umsjón Kjartans Ólafssonar
Deiglan fer í jólafrí 23. des. en byrjar aftur 4. janúar 2012
Föstudaginn 27. apríl: Facebook og netið
fyrirlestur Maríanna Friðjónsdóttir
Mánudaginn 30. apríl: Tálgun í umsjón Ólafs Oddssonar
Miðvikudaginn 2. maí: Gengið verður á Helgafell
með leiðsögn Guðrúnar Helgu frá Mountain Climbing.
Mæting við Rauða krossinn kl. 10
Kammerkór Hafnarfjarðar
ræðst í eitt af sínum stærsta
verkefni hingað til þar sem
kórinn efnir tónleika í Hörpu
sunnudaginn 29. apríl nk. kl.
16. Á efnisskránni eru sálmar
bandarískra blökkumanna.
Helgi Bragason, kórstjóri
Kammerkórsins, segir mikið
tilhlökkunarefni að syngja í
Hörpu og um sé að ræða afar
spennandi og krefjandi verk
efni. ,,Við höfum fengið til liðs
við okkur Kristjönu Stefáns
dóttur djasssöngkonu, Kjartan
Valdemarsson píanó leikara, Jón
Rafnsson sem leikur á kontra
bassa og slagverksleikarann
Krist inn Snæ Agnarsson og
lofum fallegum tónleikum.“
Kammerkórinn var stofnaður
í byrjun árs 1997 og hefur
leitast við að hafa efnisskár
sínar sem fjölbreyttastar. Á
aðventutónleikum kórsins var
sálumessa Benjamin Britten
flutt og í mars söng kórinn
mótettur við messu í Landa
kotskirkju.
Helgi hvetur Hafnfirðinga og
nærsveitamenn til að láta þessa
tónleika ekki framhjá sér fara.
Hægt er að nálgast miða á
harpa.is.
Kammerkórinn í Hörpu
á sunnudaginn kl. 16
Víðavangshlaup Hafnarfjarð
ar var haldið sem vanalega á
sum ar daginn fyrsta á Víðistaða
túni. Keppendur voru um rúm
lega 550 í 14 flokkum. Emil
Stefánsson var fyrstur í mark í
flokkum 15 ára og eldri karla
og Margrét Rósa Hálfdanardóttir
var fyrst í flokkum 15 ára og
eldri kvenna. Veðrið var gott þó
að ekki hafi verið mjög heitt.
Frjálsíþróttadeild FH sá um
framkvæmd hlaupsins.
Verðlaun voru gefin af
Hafnar fjarðarbæ en allir kepp
endur fengu verðlaunapeninga
og fyrstu í mark í hverjum
flokki fengu verðlaunabikar.
Keppni var hörð og góð í öllum
flokkum, fyrstu í hverjum
flokki voru eftirtalin (tímar í
mínútum:
Karlar 21 árs og eldri
Þórhallur Jóhannesson 8,45
Úlfar Linnet 8,59
Halldór Guðmundsson 9,23
Karlar 15-20 ára
Emil Stefánsson 7,58
Piltar 13-14 ára
Dagur Andri Einarsson
Aðalsteinn Guðmundsson
Arnór Snær Arnórsson
Piltar 11-12 ára
Hinrik Snær Steinsson
Björn Borgar Magnússon
Baldvin Hrafn Sigurðsson
Piltar 9-10 ára
Stefán Alexander Jónsson
Dagur Már Oddsson
Óskar Örn Gréve Bjarnason
Hnokkar 7-8 ára
Guðmundur Pétur Dungal Níelsson
Róbert Thor Valdimarsson
Halldór Harðarson
Hnokkar 6 ára og yngri
Þorvaldur Benediktsson
Birkir Brynjarsson
Birnir Freyr Hálfdánarson
Konur 21 árs og eldri
Katrín Sigurgeirsdóttir 12,33
Konur 15-20 ára
Margrét Rósa Hálfdanardóttir 9,23
Heiða Ósk Guðmundsdóttir 11,50
Freydís Rut Árnadóttir 15,30
Stúlkur 13-14 ára
Andrea Anna Ingimarsdóttir
Sólveig Lilja Rögnvaldsdóttir
Sylvía Rún Hálfdanardóttir
Stúlkur 11-12 ára
Þórdís Eva Steinsdóttir
Helena Ósk Hálfdánardóttir
Bjarkey Líf Halldórsdóttir
Stúlkur 9-10 ára
Birgitta Rún Árnadóttir
Vigdís Pálmadóttir
Sólveig Halla Einarsdóttir
Hnátur 7-8 ára
Emilía Gunnlaugsdóttir
Kristrún Ólafsdóttir
Þórdís Ösp Melsted
Hnátur 6 ára og yngri
Sara Kristín Lýðsdóttir
Alexia Kristínardóttir Mixa
Sara Rún Hilmarsdóttir
Stelpurnar hlaupa kröftuglega af stað á Víðistaðatúninu.
Góðir Íslendingar! Skilum
landinu okkar ósködduðu bæði
til lands og sjávar til afkomenda
okkar en hvernig? Með því að
kjósa okkur verðugan forseta
sem vill feta í fótspor
okkar ástsæla Ólafs
Ragnars Gríms sonar, í
einu og öllu. Við getum
ekki ætlast til að Ólafur
einn standi vörð um
auðlindir lands ins
okkar, full veldi þess og
menn ingu.
Allt þetta glatast
með inngöngu í
ESB
Styðjum því með gleði og
glæsibrag við bakið á öðrum
glæsilegum þjóðhöfðingja. Jón
Lárusson vill taka við hinum
erfiðu byrðum, sem hvíla á herð
um Ólafs og leysa dæmið á sama
hátt og Ólafur hefir afrekað að
gera í þeim ólgusjó sem steðjar
að íslenskri þjóð.
Ólafur þarf að fá frið til að
sinna eigin fjölskyldu, börnum
og barnabörnum. Hugsum mál
okkar vandlega þá er við stígum
inn í kjörklefann, því nú er
ábyrgðin okkar að gera alveg
kórrétt.
Jón Lárusson segir, börnin
okkar eru framtíð Ís lands, vernd
um þau fyrir því að
þurfa að gegna her
þjónustu sem næst
ligg ur fyrir að verði
næsta plága og önnur
hætta sem að Evrópu
aðild verður, ef þjóðin
stendur ekki sam an um
að vernda sig.
Þá er traustur vel
menntaður og sterkur
maður sá skjöldur sem
þjóðin þarf að eiga. Og það er
einmitt hinn reyndi yfirrann
sóknar lögreglumaður Jón Lárus
son. Þá væri stigið gæfuspor á
okkar dýrmætustu eign Íslands
ins okkar. ef við fáum hinn 46
ára, 2ja metra háa mann til að
taka við búinu á Bessastöðum,
þá væri okkur borgið til næstu 40
ára hvað þetta varðar.
Höfundur er bátasmiður,
bifvélavirki og formaður
Framtíðar Íslands.
Kjósum Jón Lárusson
Garðar H.
Björgvinsson
Úrslit í Víðavangshlaupi Hafnarfjarðar
Lj
ós
m
.:
M
ag
nú
s
H
ar
al
ds
so
n
Lj
ós
m
.:
M
ag
nú
s
H
ar
al
ds
so
n
Á hverju vori veitir Foreldraráð
Hafnarfjarðar viðurkenningu til
aðila í skólaumhverfi Hafnar
fjarðar sem þykja hafa stuðlað að
auknu foreldrasamstarfi, vinna að
góðum og bættum tengslum
skóla og heimilis í bænum, sinnt
frum kvöðlastarfi og/eða lagt sitt
af mörkum við óeigingjarnt starf
í þágu barna, unglinga og foreldra
í Hafnarfirði.
Foreldraviður kenn ingin er
afhent í byrjun maí og fá allir
sem tilnefndir eru, viður kenn
ingar skjal. Sá sem hreppir svo
við ur kenninguna sjálfa fær grip
að gjöf eftir hafnfirskan lista
mann. Foreldraráð hefur með því
styrkt hafnfirska listamenn í
þessu tilefni. Á síðasta vori voru
fimm einstaklingar tilnefndir og
hreppti Jóhanna Margrét Fleck
enstein viðurkenningu Foreldra
ráðs fyrir óeigingjarnt frum
kvöðla starf í þágu barna og ungl
inga hér í bæ. Opið er fyrir til
nefningar til 30. apríl en hægt er
að senda þær á netfangið for
eldra rad@hafnarfjordur.is. Eftir
það verða birt nöfn og verk efni
þeirra sem tilnefnd eru, á heima
síðu Foreldraráðs Hafnar fjarðar
foreldrarad.hafnarfjordur.is.
Kallað eftir tilnefningum
til viðurkenninga