Fjarðarpósturinn - 26.04.2012, Síða 9
8 www.fjardarposturinn.is www.fjardarposturinn.is 9 Fimmtudagur 26. apríl 2012 Fimmtudagur 26. apríl 2012
Ávarp verkalýðsfélaganna
í Hafnarfirði á 1. maí 2012
Fram, fram fylking, forðum okkur háska
frá, því ræningjar oss vilja ráðast á. Sýnum
nú hug, djörfung og dug. Vakið, vakið
vaskir menn, því voða ber að höndum;...
Já, það er ekki um neitt annað að ræða en
halda áfram, sýna hug, djörfung og dug.
Læra af mistökunum, gera betur, gera
öðruvísi, ekki gera eins og árin fyrir hrun,
því sú vegferð steypti okkur ofaní þann
forarpytt sem við erum stödd í ennþá.
Að horfa um öxl er hollt til að læra af, til
að endurtaka ekki það sem illa fór. En það
virðist vera að valdablokkir hafi bara færst
til, frá útrásararkitektunum sem teikn
uðu upp blekkingarleik sem kallaður var
kænska í viðskiptum, til valdagráðugra
stjórnmálamanna sem leggja höfuðáherslu
á að bankar, fjármagnseigendur, beri ekki
skertan hlut frá borði.
Almúgi götunnar sem hreppti 110% leið
lánaniðurfærslna á húsnæði sínu er látinn
halda að það hafi jafnvel verið gert meira
fyrir hann en hann átti skilið. Hér er allt með
öfugum formerkjum. Hvaða ávinningur
hlýst af því að koma fólki á kaldan klakann?
Og þrátt fyrir hæstaréttadóm um ólögleg
gjaldeyrislán þá efast fjármagnseigendur
og stjórnmálamenn um til hverra dómurinn
eigi að ná og svo eigi nú líka eftir að túlka
hann. Eflaust verður hann túlkaður fjár
magn inu í vil á því er varla nokkur vafi.
Verð tryggð húsnæðislán, má minnast á
þann óskapnað? Jú það þarf nú sennilega
að gera eitthvað fyrir það ólánsama fólk
sem tók þá stökkbreyttu peninga að láni en
ekki náðist sátt um það á þingi.
Misbeiting valds og auðs hefur aldrei
verið meiri. Bankarnir hafa byggt sig upp
enda var miljarðatugum dælt inní þá úr
ríkissjóði, sjóði allra landsmanna, og nú
geta þeir farið að lána fyrirtækjum aftur
og neyslulán bjóðast einstaklingum. Hver
þarf eða getur tekið lán þegar innkoma
heimilanna dugar ekki einu sinni fyrir
nauð þurftum. Hvað er verið að gera hér?
Byggja upp gamla ónýta hagkerfið sem
hrundi yfir okkur. Það þarf hug, djörfung
og dug til að rétta hlutina af. Það þarf að
jafna hlut fólks til að geta séð sér farborða
á sómasamlegan hátt, ekki gera fólk að
þurfalingum.
Það er ekki nóg að tala upp atvinnu
ástandið, blaðra um að húsnæðisverðið sé
á upp leið, sala á nýjum bílum hafi aukist,
byggingar framkvæmdir séu að fara í gang
aftur. Hvaða bull er þetta, trúir þessu ein
hver? Þó svo að stjórnmálamenn trúi eigin
rausi og séu mjög uppteknir af að funda
með sjálfum sér þá verða þeir að átta sig
á því að hinir almennu þegnar þessa lands
eru engir vitleysingar þeir vita sínu viti enda
eru þeir að takast á við hinn raunverulega
vanda sem er að ná endum sama og reyna
að lifa af skattpíningar og álögur á meðan
ríkisbubbarnir hlúa að sér og sínum.
„Vakið, vakið vaskir menn, því voða ber
að höndum.“ Svarta hagkerfið blómstrar,
rán eru framin, þar er engu eirt, heimili,
fyrirtæki, virðingin fyrir einkaeigum fólks
og samfélagsins er lítil sem engin, okurlán
eru látin óáreitt til unglinga og þeirra
sem höllustum fæti standa, svívirðilegar
aðferðir í innheimtumálum eru staðreynd,
svik og prettir virðast vera sá gjaldmiðill
sem samfélagið aðhyllist.
Kjarasamningar náðust loks á síðastliðnu
vori eftir margra mánaða karp við atvinnu
rekendur og ríkistjórnin síðan dregin að
samningaborðinu vegna ýmissa mála m.a.
í atvinnu og uppbyggingamálum. En í
upp hafi þessa árs voru kjarasamningar
engu að síður í hættu vegna aðgerðaleysis
og vanefnda stjórnvalda í veigamiklum
málum en verkalýðshreyfingin og samtök
atvinnurekenda tóku þá höndum saman
og ákváðu að framlengja samningana þrátt
fyrir svikin loforð ríkisvaldsins, ekki þótti
forsvaranlegt að láta launafólk vera í óvissu
og blæða.
Kjör eldriborgara hafa ekki hvað síst orðið
fyrir niðurskurðarhnífnum. Skatt lagn ing
ar, gjaldskrárhækkanir, eigna og tekju
teng ingar jaðra við að vera eigna upptaka
hjá því fólki sem lagði grunninn að því að
koma okkur út úr moldarkofunum til þess
menningarsamfélags sem við búum nú í og
þetta eru þakkirnar.
Tölur sýna að atvinnuleysið hefur minnk
að. Er það vegna þess að störfum hefur
fjölgað eða getur það verið að erlendir
starfsmenn sem hér voru hafi fullnýtt rétt
sinn til atvinnuleysisbóta og séu farnir til
síns heima, ásamt því að margar íslenskar
fjölskyldur hafa tekið sig upp og flutt úr
landi, sér og sínum til bjargræðis. Það
skyldi þó ekki vera. Stjórnvöld, sýn ið nú
hug, djörfung og dug. Brýnasta verk
efnið á lokaspretti kjörtímabilsins er að
koma hjólum atvinnulífsins af stað, skapa
raunveruleg atvinnutækifæri svo ein stakl
ingar og fjölskyldur geti vaxið og dafnað
hér á Íslandinu góða.
Launafólk, horfum fram
á veginn!!
Það er nú einu sinni þannig að til að spara
þá þarf að eyða, ekki sóa, heldur eyða
í skynsamlegar fjárfestingar sem veita
fólki atvinnu, þannig næst fram auðlegð
sem allir græða á. Það eru engin vísindi
heldur staðreyndir. 1. maí er baráttudagur
verkafólks sem á að sameina okkur í
baráttunni fyrir jöfnun lífskjara í sinni
víðustu mynd. Við þurfum að standa
saman, snúa bökum saman, þá eru okkur
allir vegir færir.
BJARTA FRAMTÍÐ!
Verkalýðsfélagið Hlíf Sjómannafélag HafnarfjarðarStarfsmannafélag Hafnarfjarðar
Kaffihlaðborð í boði stéttarfélaganna að fundi loknum
kl. 13.30 Safnast saman fyrir framan Ráðhús Hafnarfjarðar, Strandgötu 6
kl. 14.00 Kröfuganga leggur af stað
Gengið verður upp Reykjavíkurveg, Hverfisgötu, Smyrlahraun, Arnarhraun, Sléttahraun
og að Hraunseli við Flatahraun.
Kl. 14.30 Hátíðarfundur hefst í Hraunseli, Flatahrauni 3
Athugið, húsið verður ekki opnað fyrr en kröfugangan kemur í hús.
Fundarstjóri: Jóhanna M. Fleckenstein
Ávarp dagsins: Linda Baldursdóttir, varaformaður Verkalýðsfélagsins Hlífar
Ræða: Karl Rúnar Þórsson, formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar
Skemmtiatriði: Freyr Eyjólfsson, tónlistamaður og eftirherma sem kitlar hláturtaugarnar
Dagskrá
1. maí hátíðarhaldanna í Hafnarfirði 2012
Launafólk
Stöndum saman, snúum bökum saman, þá eru okkur allir vegir færir
Félögin leggja áherslu á:
• að átak verði gert í atvinnumálum
• að tekin verði upp nýr gjaldmiðill
• að verðtrygging lána verði afnumin
• að auðlindir landsins verði í þjóðareign
• að ríki og sveitafélög auki framkvæmdir
• að tekið verði á húsnæðisvanda heimilanna
• að komið verði í veg fyrir að heimilunum blæði út
• að vörður verði staðinn um lífeyrisréttindi landsmanna
VINNA ER VELFERÐ
– Lúðrasveit – Kröfuganga – Ræðuhöld – Skemmtiatriði – Kaffihlaðborð –
Fj
ar
ða
rp
ós
tu
rin
n
12
04
•
©
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
e
hf
. L
jó
sm
yn
di
r:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n