Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 26.04.2012, Side 10

Fjarðarpósturinn - 26.04.2012, Side 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 26. apríl 2012 Síðasta vetrardag söfnuðust um 7000 manns, nemendur og starfsfólk í leik-, grunn- og framhaldsskólum í Hafnarfirði saman á átta stöðum í bænum, hreyfðu sig og sungu saman. Sungin voru lögin Í rigningu ég syng (Singing in the rain), Hö fuð, herðar, hné og tær og Ávaxta lagið með viðeigandi hreyf ingum. Tilgangur verkefn- isins var að minna á mikilvægi hreyfingar á hverjum degi fyrir heilbrigt líf. Atburðurinn var að frum- kvæði Flensborgarskóla sem er frumkvöðull sem heilsueflandi framhaldsskóli á Íslandi. Dag- urinn er þá tileinkaður hreyf- ingu sem minnir á mikilvægi heilbrigðs lífernis. 7000 Hafnfirðingar á iði Heilsueflandi átak á átta stöðum í bænum Kátt var á hjalla við Flensborgarskóla. Hinn árlegi viðburður Bjartra daga Gakktu í bæinn verður fimmtudaginn 31. maí en þá bjóða listamenn og menningarstofnanir heim og versl­ anir í miðbænum bjóða uppá viðburði eða tilboð. Viðburðurinn stendur frá kl. 18­22. Viltu vera með, bjóða heim og/eða standa fyrir skemmtilegum viðburði. Vill gatan/ hverfið gera eitthvað skemmtilegt eða vill hópurinn þinn koma saman og rölta á milli viðburða og verslana? Bjartir dagar vekja athygli á því sem er að gerast í bænum – láttu vita af þér. Nánari upplýsingar gefur Marín Hrafnsdóttir marin@hafnarfjordur.is, sími 585 5776/ 664 5776. Gakktu í bæinn á björtum döGum Íslandsmeistaramótið í blóma- skreytingum fór fram á sum- ardaginn fyrsta á Garð yrkju skól- anum á Reykjum í Ölfusi. Hafn- firðingurinn Stein ar Björgvins- son sem starfar hjá Gróðrar- stöðinni Þöll kom, sá og sigraði. Þetta er í þriðja skiptið sem Steinar hampar titlinum. Þátt tak- endur áttu að vinna tvö verk. Annað var und irbúið og var þemað að þessu sinni „álf- heimar“. Seinna verk ið sem var óundirbúið bar yfir skriftina „upp skera“. Keppnin fer fram annað hvert ár en Stein ar vann árin 2004 og 2006 en hefur síðan ekki tekið þátt fyrr en í ár. Hafnfirðingar hafa notið starfa Steinars í Gróðrarstöðinni Þöll og Skógræktarfélaginu en hann hefur gert glæsilegar jólaskreyt- ingar sem þar hafa verið seldar auk þess sem hann sem skóg- fræðingur ráðleggur fólki um plöntuval. Íslandsmeistari í blómaskreytingum Steinar Björgvinsson sigursæll í blómaskreytingum Steinar með sigurlaunin ásamt Guðríði Helgadóttur forstöðu manni starfs- og endurmenntadeildar Landbúnaðarháskólans, Ásdísi Páls- dóttur sem lenti í 3. sæti og Jóni Þresti Ólafssyni sem lenti í 2. sæti. Steinar að störfum í keppninni. Árgangur 1950 hittist Fólk úr árgangi 1950 úr Hafnarfirði stendur fyrir hátíð fyrir þennan árgang úr Hafnar- firði 11.-12. maí á Höfðabrekku í Mýrdal en þar rekur ein úr árganginum ferðaþjónustu. Áhugasamir geta haft samband við Auðunn Karlsson eða skráð sig beint á Höfðabrekku, www. hofdabrekka.is U N bókhald ehf Almenn bókhaldsþjónusta Stofnun félaga Skattframtöl fyrir einstaklinga og fyrirtæki Allt á einum stað UN Bókhald ehf • Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði 568 5730 • unbokhald.is • unbokhald@unbokhald.is Fjölmennt var á Hörðuvöllum þar sem sungið var og dansað. Hreyfing getur verið skemmti- leg - og þroskandi fyrir heilann - eins og skátarnir segja. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.