Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 20.12.2012, Page 27

Fjarðarpósturinn - 20.12.2012, Page 27
www.fjardarposturinn.is 27 Fimmtudagur 20. desember 2012 brunaboða en þeir voru staðsettir hér og þar í bænum. Slökkvi­ starfið gekk mjög vel og ótrúlega litlar skemmdir. Ég hef oft hugsað síðar hefði þessi bruni komið upp að nætur­ lagi, hvort tími hefði verið að grípa til kaðalsins eða kunnátta nægjanleg að nota hann. Þetta var jú skraufþurr timburhjallur sem hefði fuðrað upp á skömm­ um tíma, við vorum 8 manns í okkar íbúð og hvað um alla hinum megin í húsinu. Umhverfi Sunnan við Strandgötu 50 var lágreist hús ein hæð með háu risi, þar bjó um tíma Helgi Guð­ mundsson og Pálína kona hans ásamt mörgum börnum. Meðal okkar barnanna voru skiptar skoðanir um númer húsanna þau töldu að þeirra hús væri númer 50 en ekki okkar, við bættum úr því og sögðum að þeirra hús væri 50 B, kannski var ekkert númer á húsunum. Þessi hús stóðu á enda á Strandgötu ásamt fiskverkunarhúsunum og eiginlega afsíðis ef svo mætti segja. Í svona litlu bæjarfélagi þar sem allir þekkjast eru það bara nöfn fólksins sem skipta máli. Rétt fyrir sunnan þessi hús lá hamar í sjó fram og lokaði fyrir alla umferð til suðurs, en seinna var hann sprengdur og vegur lagður. Götulýsing á þess­ um stað var aðeins útiljós á horni okkar húss. Öll umferð gegnum fjörðinn var um Illubrekku sem við kölluðum. Brekkan byrjaði fyrir neðan Prentsmiðju Hafnarfjarðar og var raunar mikill farartálmi á vetrum. Ég man sérstaklega eftir stórum vörubíl sem flutti farangur til Suðurnesja hann var rauður á lit og við kölluðum hann Rauðaskjóna hann lenti oft í vandræðum í snjóum á vetrum í þessari bröttu brekku. Þegar Rauðiskjóni fór þversum í brekkunni var fiskisagan fljót að fljúga og við krakkarnir mættum og fylgdumst vandlega með fram gangi mála. Þegar Helgi flutti frá Strandgötu 50 B komu nýir íbúar og þar á meðal var Guðsveinn Þorbjörnsson for­ maður Hauka og þar sem gluggar á þessu húsi voru mjög lágir sást vel inn og maður gerði sér oft erindi framhjá til að líta augum og dáðst að öllum þessum bik­ urum sem Haukar höfðu unnið og voru í vörslu Guðsveins. Hann hafði þessi herlegheit sem stofuskraut sem vakti mikla aðdáun meðal okkar krakkanna. Fjaran Fjaran hafði mikið aðdráttarafl, hún náði langt út en í aðfalli kom sjórinn alveg upp að bólverkinu sem var rétt fyrir framan húsin. Í vondri vestanátt gekk sjór yfir húsið og sæta varð lagi milli brota ef maður þurfti að fara niður í bæ. Leikur okkar var oft í fjörunni, við gerðum járnbáta úr olíubrúsum teymdum þá meðfram ströndinni og veiddum kola, fylltum bátana og söltuðum hann, líktum eftir raun veru leik anum sem var allt um kring, aflan um var svo auðvitað að lok um hent því klóakið frá um ­ hverfinu fór beint í sjóinn framan við húsin. Við þessar aðstæður var mikill rottugangur þær höfðu ómælt æti í fjörunni, gengu undir húsgrunninn og uppá milli veggja og komu fram á háa loft inu, rottu­ gildrur af stærstu gerð voru notað­ ar enda voru þær stórar og sögur fóru af því hvern ig þær gátu hlaupið um þrátt fyrir að vera klemmdar um miðjan búkinn í gildrunum. Á kvöldin þegar veður leyfði hópuðumst við krakkarnir utan dyra og lékum okkur frameftir kvöldi. Það var mikill samhugur enginn skilinn útundan. Ein aðal myndasagan í Vísi var Tarzan sem við strákarnir fylgdumst með, einn leikfélagi minni var mikill lestrar­ hestur, las Tarsan bækur og safnaði þeim og var ákveðinn að þegar hann yrði stór þá ætlaði hann að fara til Afríku og hitta Tarzan. Leiðir okkar lágu aldrei saman síðar á lífs leiðinni en ég vissi alltaf af hon um og veit að hann náði langt varð fremstur meðal sinna jafningja í starfi. Það þurfti ekki að kalla á okkur krakkana að koma inn, þau kvöld­ in sem útvarpssagan var á dagskrá, allir hlupu inn í hendingskasti því sagan var svo spennandi, líklega var það Bör Börson. Það má ekki gleyma herset unni. Bak við húsið var herskóla kampur sem við urðum svosem lítið vör við því inngangur í hann var langt burtu. Ýmsar hernáms sögur gengu sem ég man nú ekki lengur. Á húshorninu okkar var eina útiljósið á þessum enda Strandgötunnar. Einhvern tím ann fór einhver af okkur krökk unum í leikaraskap að hamast í slökkvaranum sem var í gang in um og blikka þessu ljósi í sífellu, þegar fullorðna fólkið varð vart við þetta varð uppi fótur og fit og þetta snarlega bannað og okkur gert ljóst um alvarleika málsins, það mætti þakka fyrir að herinn ryddist ekki hér inn, þetta gæti verið túlkað sem morsljós út á haf en ljósið var í beinni línu út á fló­ ann. Samskipti okkar krakk anna við hernámsliðið var í því fólgið að víð söfnuðust saman við girð­ ingu kampsins og ekki að sökum að spyrja hermennirnir köst uðu til okkur sælgæti sem þeir virtust hafa í óþrjótandi mæli. Kofarnir Faðir minn er fæddur og uppalinn í sveit til unglings áranna, eflaust hefur það verið sárt að verða að hverfa burt þaðan til þéttbýlisins við það að missa móður sína og að heimilið væri leyst upp. Það var fjarlægur draum ur hans að gerast bóndi. Þegar hann flutti á Strandgötu 50 með fjölskyldu sína sá hann mögu­ leika á að hefja lítinn bú skap þar sem rými til að byggja lítið fjárhús var bakatil og fá sér nokkrar kindur sem hann gæti haft í námunda við heimili sitt. Þessi staður var svo­ lítið afsíðis og að byggja lítinn skúr bakatil var alveg upplagt. Það var nóg af allskonar afgangs timbri í nágrenninu og enginn amaðist við svona framtaksemi. Fjáreig­ endur í Hafnafirði höfðu með sér félagskap sem styrkti þessa ákvörðun hans. Árlega var haldið fjáreigendaball sem var vel sótt og mikið sungið. Það voru fleiri kofar reistir þarna á þessum tíma. Við strák arnir byggðum kofa fyrir kanínur og dúfur sem við fengum frá vinum úti í bæ. Þetta var mjög vinsælt sport meðal drengja og jafnvel fullorð inna líka. Við urðum fyrir áföllum í þessu dýrahaldi því rottur komust inn í kofann og þó ótrúlegt sé þá káluðu þær kanínum en dúfurnar sluppu að mig minnir. Þriðji kofinn var byggður bakvið hús, hann var vandaðri en hinir kofarnir og til hans var talsverðu kostað, hann var með lás á hurð­ inni, auk þess var hann með glugga og hann var ekki ætlaður til dýrahalds. Það var einn af eldri drengjunum sem stóð fyrir þessari byggingu og hann gaf ekkert upp hver tilgangurinn með þessum kofa væri. Við fylgdumst með framgangi smíð anna stig af stigi, þegar kofinn var klár var koja smíðuð og bekk og borði bætt við. Nú komu vinir hans til sögunnar, þeir læstu að sér og við pollarnir urðum bara stór augu og eyru. Það spurðist út meðal okkar að þeir hefðu tekið með sér inn í kofann heilan kókakóla­kassa og svo hefði einn verið með Lökkístræk sígarettupakka líka. Á þessum árum höfðu ungling ar ekkert prívat herbergi. Eftir á að hyggja þá voru þeir raunar á undan sinni samtíð, sköffuðu sér eigið herbergi. Þeir sáu fram tíðina fyrir. Sendlar Á Strandgötu 50 urðu fjórir drengir sendlar í Einarsbúð (Eign Ein ars Þorgilssonar) þeir tóku við hver af öðrum eftir aldri, ég var yngstur og síðastur í röðinni. Hvernig þetta kom til veit ég ekki en á þessum tíma voru allar verslanir bæjarins með sendla og þótti þetta nokkur status meðal drengja. Að vera sendill í Einars­ búð var alveg sérstaklega gott. Verslunum var lokað kl. 6 og nær undantekningarlaust vorum við búnir 15­20 mín. yfir sex. Sendl­ arnir í öðrum verslunum þurftu oft að vinna frameftir. Í kaup­ félaginu var kjötsala og þurftu sendlarnir þar að sækja kjötið í íshús Ingólf Flygerings sem var í suðurbænum og urðu þá að fara Illubrekku fram og til baka, kannski með 2­3 skrokka framan á hjólinu. Þegar stór hátíðir voru í aðsigi varð að sjálfsögðu mikið að gera hjá sendlum þá var einmitt minna að gera í fisk verkun sem eigendur Einars búðar áttu og bílstjórar á þeim vettfangi hjálp­ uðu við útkeyrslu, þannig að maður var alltaf laus á skikkan­ legum tíma, auk þess borgaði Einarsbúð sendlum sínum betur en aðrar verslanir. Þegar Hekla gaus 1947 var ákveðið að starfs­ liðið færi austur að sjá herlegheitin. Fyrirtækið lánaði bíl með boddí á palli. Á þessum árum var malar­ vegur með öllum sínum holum og mikill hristingur og bekkirnir á boddíbílnum harðir, þrátt fyrir það var þetta mikið ævintýri og mikið sungið. Þegar komið var austur var gengið upp að hrauninu og sáum við glæðurnar í hraun­ jaðrinum sem ruddist fram. Þessi sjón er ógleymanleg og er mér enn í fersku minni. Á heimleið var komið við í Tryggva skála á Sel­ fossi og snædd lambasteik, við uppgjör var þjórfé látið fylgja með, þetta þótti fínt þá. Minn síðasti dagur sem sendill var tengd ur við mánaðarmót en þar sem ekki var búið að ráða nýjan sendil var ég beðinn að vera nokkra daga í viðbót sem var sjálfsagt og reiknaði ég bara með greiðslu sem hlut af mánaðarkaupi sem ég hafði fengið en Ólafur G. Einarsson sem sá um uppgjörið greiddi mér óvænt fullt tímakaup verkamanns fyrir þessa daga, þetta var óvænt og sýndi hug þessa heiðursmanns sem ekki gleymist. Frh. af bls. 25 Einarsbúð, nú Vort daglega brauð. (Dúkrista) Elsta myndin sem er til af fjölskyldu Jóhannesar og er tekin nokkrum árum eftir brottför frá Strandgötunni. F.v. efri röð: Vilhjálmur (innfeld mynd) Sigursveinn, María P, Jón Kr. f.v. neðri röð: Bjarni, Jóhannes, Ásbjörg og Ingibjörg. Myndir frá Strand­ götu 50 á þessu tímabili eru mjög takmarkaðar t.d. eru engar myndir til af fjölskyldu Bjarna Guðmundssonar frá Nýjabæ. Þórir Bjarnason ásamt frænku sinni Erlu Eiríksdóttur. Bakgrunnur leifar hersetunnar. Þórður Bjarnason með börn sín Hrafnhildi og Jóhannesi. Bakgrunnur er Strandgata 50. Eftir að herinn fór burt úr braggahverfinu sem var bakatil á Strandgötu 50 varð svæðið eftirsótt leikpláss unglinga úr nágrenninu. Myndin er af Magnúsi Sigurðssyni sem átti heima á Brekkugötu og Einari Mathiesen frá Suðurgötu standa á þaki húss sem voru leifar hersetunnar. Faðir Einars Árni Mathiesen verslunarstjóri í Einarsbúð var okkur innanhandar með lagfæringu og lét senda 2­3 bílhlöss af sandi svo við gætum gert okkur lítinn sparkvöll.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.