Prentarinn - 01.07.1982, Blaðsíða 6

Prentarinn - 01.07.1982, Blaðsíða 6
Félag bókagerðarmanna bauð félögum sínum, 67 ára og eldri ásamt mökum þeirra, í dagsferð 21. ágúst sl. félagar FBM í hring- ferð um Borgar- fjörð Farið var í blíðskaparveðri með nýju Akraborginni til Akraness, þar sem Byggðasafnið í Görðum var skoðað. Margir gamlir munir, sérstaklega frá sjávar- síðunni eru þar til sýnis og „Kátir voru karlar. . ." ómaði í bílnum þegar rennt var inn með Akrafjalli. Farið var um hlaðið á Beitistöðum og Jón Árnason leiðsögumaður fræddi þátttakendur um prent- smiðjusögu Leirársveitar. Hann sagðist hafa heyrt að Magnúsi Stephensen hefði fundist vinnukonurn- ar hanga helst til mikið yfir prenturunum í Leirár- görðum og þess vegna hefði hann flutt prentverkið að Beitistöðum. Hádegisverður var snæddur í Borgarnesi, þar næst keyrt út í Brákarey og síðan gerður stuttur stans í Skallagrímsgarði. Þá var ekið upp Borgar- fjarðarsveitir, Barnafoss og Hraunfossar skoðaðir og þar næst haldið í Reykholt og drukkið kaffi í gamla Héraðskólanum. Þegar staðurinn hafði verið skoð- aður um stund var haldið heim á leið og farið fyrir Borgarfjarðardali, yfir Geldingadraga og niður f Hvalfjörð til Reykjavíkur. Ferðin var öll hin ánægjulegasta og þátttaka mjög góð. Yfir 50 manns komu með í ferðina. Það kom greinilega fram að eldri félagar þurfa að hafa ein- hvern sérstakan vettvang, þar sem þeir geta hist og rætt saman. Stjórn félagsins hefur því ákveðið að boðað verði til fundar með þeim strax í haust og hefur Baldri H. Aspar prentara verið falið að annast undirbúning að þeim fundi. - Sv. Jóh. Meðfylgjandi myndir eru teknar í ferðinni. PRENTARINN 4.2.'82

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.