Prentarinn - 01.07.1982, Síða 10

Prentarinn - 01.07.1982, Síða 10
Goðsögnin um landflótta prentverka 10 Fyrir tœpu ári var nokkuð rætt um útflutning á prentverki eins og hann er kallaður, þótt innflutningur kallist í hagskýrslum. Pótti mönnum sem stefndi í óefni, nefnd var skipuð í málið og ýmsar spœjarasögur gengu manna á meðal um danska agenta sem ku hafa staðið utan við íslenskar prentsmiðjur og hrifsað kúnnana til sín. Ekki eru bornar brigður á þessar frásagnir, enda sumar hafðar eftir áreiðanlegum heimildum. Hitt er svo annað mál að þegar opinberar skýrslur eru grannskoðaðar verður lítið tilefni til móðursýkiskasta hvað þá að þessar sögur geti orðið ástœða til minni kauphækkana, eins og ein röksemd prentsmiðjueigenda hljóðar nú á síðustu tímum. Hagstofa íslands gefur út ítarlegt rit á hverju ári, sem nefnist Verslunar- skýrslur. Inn á skrifstofu Félags bóka- gerðarmanna berast þessir doðrantar, 260 síður af talnadálkum, okkur starfs- mönnum til gagns og ánægju. Úr þess- um bókum hefur undirritaður tekið saman það sem fer hér á eftir. Jólakort úr 15 í 21,4 tonn Innflutningur á prentuðu máli var 1980 samtals 813,3 tonn, en 1981 var hann kominn í 714,1 tonn. Hann hafði þá minnkað um rúm 99 tonn eða um 12%. Innflutningur á prentuðu máli segir þó ekki alla söguna. Inn í honum er falinn innflutningur á efni sem ís- lenskar prentsmiðjur kæmust seint í tæri við, s. s. erlend blöð og bækur, frímerki, peningaseðlar, vöruskrár á erlendum tungum o. fl., o. fl. Ef litið er á bækur og blöð á íslensku, kemur í ljós að á milli áranna 1980 og 1981 minnkaði innflutningur á þeim úr 243,6 tonnum í 198,6 tonn eða um átján og hálft prósent. Hins vegar var um að ræða aukinn innflutning á póstkortum, jólakortum o. þ. h. úr rúml. 15 tonn- um í 21,4 tonn eða um 42%. Innflutningur á áprentuðum um- búðapappír jókst á sama tímabili úr 76,2 tonnum í rúml. 105 tonn eða um 38%, sá pappír kemur mestmegnis úr Svíaveldi. Tonnatal segir ekki alla sögu, þannig er hvert kíló af jólakortum um það bil tvöfalt verðmætara en kílóið af bókum og blöðum á íslensku, peningaseðlar eru hinsvegar tæpl. ellefu sinnum verð- mætari hvert kíló en bækurnar og um- búðapappír 3A af kílóverði bóka. Sé litið á heildarverðmæti sést að auk þess sem innflutningur á prentuðu máli minnkaði um 12% að magni til, þá lækkaði verð hvers kílós í dollurum talið um 13%. Hér hafa verið borin saman árin 1980 og 1981. Það sem af er þessu ári höfum við aðeins tölur um innflutning á bókum og blöðum á íslensku og er- lendum málum. í júní sl. var innflutn- ingur á þeim orðinn rúml. 43 tonnum meiri en á sama tíma í fyrra, aukning um 21,6%. Verðlækkun þessa innflutn- ings heldur áfram, það sem af er þessu ári er hvert kíló um 9% ódýrara en á sama tíma í fyrra. Líklegt má telja að þessi aukning innflutnings það sem af er árinu, auk hagstæðara verðs, stafi af „hárri“ gengisskráningu íslensku krónunnar, nokkuð sem íslenskum túrhestum kem- ur vel en iðnfyrirtækjum illa. 5 lönd skera sig nokkuð úr hvað varðar innflutning á prentuðu máli, það er Spánn, Belgía, Ítalía, Bretland og Sviss. Einnig er flutt inn töluvert frá Danmörku og Svíþjóð eins og áður er getið. Innflutningur á dagblaðapappír minnkað Ef litið er á hvernig íslenskur prent- iðnaður stóð sig á sama tímabili, kem- ur í ljós að hann hefur vinninginn um- fram heildsalana og bókaútgefendur sem leita erlendis eftir prentun. Hér höfum við þó aðeins upplýsingar um þau hráefni sem notuð eru til prentun- ar, einkum pappír. Innflutningur á dagblaðapappír var 1981 þriðjungi meiri en árið 1980. Og innflutningur á prent- og skrifpappír var tæpl. 14% meiri 1981 en 1980. Innflutningur á prentletri, prentplötum o. þ. h. (aðal- lega frá V-Þýskalandi) jókst á sama tíma um rúml. 37% Það sem af er þessu ári hefur þróun- in haldið áfram. Innflutningur á pappír er nú rúml. 22% meiri en á sama tíma í fyrra og innflutningur á prentplötum o. þ. h. er nú 18% meiri en í júní í fyrra. Hins vegar hefur innflutningur á dagblaðapappír minnkað ískyggilega miðað við sama tíma. í júní í fyrra 2176,4 tonn en á sama tíma í ár aðeins 1342,9 tonn, minnkun um rúml. 38%. Hluta þessarar minnkunar má rekja til sameiningar síðdegisblaðanna, en sú sameining getur þó engan veginn út- skýrt auðsjáanlegan samdrátt á þessum markaði til fulls. Aukning véla Ekki virðist heldur skortur á fé prentfyrirtækja til fjárfestinga. Inn- UM HVAÐ SEM ER í PRENTARANUM í þessum þætti er ætlunin að menn geti fjallaö um allt milli himins og jarðar, sagt hug sinn allan hvort heldur er um málefni félagsins ellegar eitthvað annað, ekki síst stjórnmál. Félagsmenn eru ein- dregið hvattir til þess að senda inn efni og stuðla þannig að fjöl- breyttara og betra blaði.

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.