Prentarinn - 01.07.1982, Qupperneq 14

Prentarinn - 01.07.1982, Qupperneq 14
erlent Vinnudeilu lokið Spænskir stéttarbræður okkar, sem státa af nafni eins og Federacion Estatal de Informacion, Papel y Artes Graficas, stytt í FEDIYAG, hafa nýverið lokið langri og afar harðri vinnudeilu, sem m. a. leiddi til margra götuaðgerða og níu daga verkfalls. Niðurstaðan var samn- ingur sem FEDIYAG taldi viðun- andi, þótt deilan hafi kostað sam- bandið mikið. Þeir þakka vel fyrir veittan fjárstuðning bræðrasam- taka sinna, sem Aiþjóðasamband bókagerðarmanna veitti þeim. Sá stuðningur fleytti þeim langt. Frá ILO Samkvæmt upplýsingum frá ILO (Alþjóða vinnumálastofnuninni) er framtíðin ekki eins björt fyrir örtölvuvæðinguna og menn skyldu ætla. Stafar það sér í lagi af skorti á iðnlærðum starfsmönnum. Þessi veikleiki getur hæglega leitt til þess að dregið verði úr hinni öru fram- þróun sem einkennt hefur síðustu árin. Ein orsakanna fyrir þessu er lítill sveigjanleiki í kennsluaðferð- um og námsefni iðnskólanna og lé- legt samband þeirra við atvinnu- lífið. Skýrsla ILO bendir á að svo virðist sem margir iðnskólar hafi gersamlega gleymt tækniþróuninni og haldi áfram að útskrifa nemend- ur í greinum sem ekki eru lengur til. Það eru einkum smærri fyrir- tæki sem verða fyrir barðinu á þessu þ.e. hin stærri hafa mögu- leika á að mennta starfsfólk sitt sjálf. Til dæmis er þess getið að bandaríska risafyrirtækið Bell Syst- ems ver árlega yfir 800 milljónum dollara til menntunar starfsliðsins og ræður 7000 kennara til fullra starfa. Ársfundur NGU var að þessu sinni haldinn í Danmörku, í LO- skólanum í Helsingór, 3.-7. maí sl. Par voru til umfjöllunar skýrslur stjórnar NGU og aðildarlandanna. Lagt var fram yfir- gripsmikið rit um sérgreinamörkin í grafíska iðnaðinum á Norður- löndum og einnig var haldinn sérstakur fundur með rannsóknar- mönnum UTOPIA-verkefnisins. Atvinnuleysi má aldrei nota sem hagstjórnartæki „Stjórnmálaástandið á Norður- löndum gerir það að verkum að verkalýðshreyfingin hefur ekki mikla möguleika á að styrkja stöðu sína í samfélaginu,“ sagði Arild Kalvik þegar hann flutti skýrslu stjórnarinnar. Enn- fremur sagði hann, „að innan nor- rænu verkalýðshreyfingarinnar hefði atvinnuleysi aldrei verið viðurkennt sem hagstjórnartæki í efnahagslífinu.“ Geigvænlegt atvinnuleysi er nú í Danmörku og sagði H. B. Geertsen, sem flutti dönsku skýrsluna, að það væri 10,8% í offsetgreinum, 12% í bókbandi og 12,7% í prentiðnum. Atvinnuleysi er vaxandi í Svíþjóð og í Noregi, en hjá Finnum er það 1,2% í grafískum iðnum, en 6% almennt í landinu. Stjórn NGU hélt 7 fundi á árinu auk fundar sem eingöngu fjallaði um dönsku prentaradeiluna. Félagatala NGU 1981 var rúmlega 109.000 og skiptist eftir löndum þann- ig: Svíþjóð 44.355, Finnland 26.744, Danmörk 22.982, Noregur 14.356, ís- land 722 og Færeyjar 48. Starfsemi NGU Nordisk Grafisk Union hefur mörg járn í eldinum. Rannsóknarverkefnið UTOPIA er í fullum gangi og ákveðið var á ársfundinum að byrja á nýju verkefni um bókband og frágangs- vinnu, sem INGRAF, norsk rann- sóknarstofnun í grafískum iðnaði hef- ur tekið að sér. Samþykkt var að veita til þess kr. 300.000. í alþjóðlegri sam- vinnu hefur NGU haft forystu um „stuðningssjóð“ innan IGF (alþjóða- sambandsins) og varið til hans kr. 20.000 þrjú ár í röð. Þá heldur stuðn- ingur NGU við argentínska stéttar- bræður áfram og nú bættist við stuðn- ingur við tyrkneska bókagerðarmenn. Ahugavert verkefni er í gangi hjá norskum prenturum í Elverum, en hjá þeim eru nokkrir Namibíu-menn í prentnámi. NGU veitti nú í annað sinn kr. 50.000 til þeirra, en það á að fara í kaup á prentvélum og fleiru, sem hinir afrísku starfsbræður okkar eiga að hafa heim með sér að námi loknu. 14 PRENTARINN 4.2.'82

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.