Prentarinn - 01.01.1996, Qupperneq 3
LEIÐARI ■
SÆMUNDUR ÁRNASON
Viðhorfskönnun
" lýðræði í verkalýðshreyfingunni
T^élag bókagerðarmanna lét nýlega gera
A viðhorfskönnun á meðal félagsmanna.
Tilgangur hennar var meðal annars sá að
komast að því, að hverju gagnrýni félags-
manna beindist. Mikil og hörð gagnrýni
hefur dunið á verkalýðshreyfingunni und-
anfarin ár og iðulega sagt að ef ekki væri
um skylduaðild að ræða myndi enginn vera
sjálfviljugur í verkalýðsfélögum, þau væru
einangruð í fílabeinsturni og sambandslaus
bæði við þjóðfélagið og félagsmenn.
Miðað við þessa gagnrýni er athyglisvert
að líta á þau svör er bárust, t.d. við spurn-
tngu um félagsaðild. Þar segja 83% að þeir
ntyndu velja FBM þótt ekki væri um
skylduaðild að ræða. Ef spurt er um þjón-
ustu félagsins, segja 72% að hún sé góð eða
mjög góð og 60% félaga hafa leitað til
sknfstofu félagsins unt aðstoð eða upplýs-
tngar. Þegar spurt er urn hver sé helsti
styrkur félagsins, nefna 57% þjónustu og
samstöðu. Um orlofsaðstöðuna segja 82%
að hun sé góð eða mjög góð. Þá er greini-
legt að útgáfa Prentarans og fréttabréfa er
mikils virði og kváðust 87% lesa fréttabréf-
ið °S 92% Prentarann. Þannig að sé litið til
þessara atriða er ljóst að félagar líta með
velvilja til félagsins. Þetta sýnir, að allt tal
um neikvæði til verkalýðsfélaganna er inni-
haldslaust hjal áróðursmeistara er vilja
verkalýðsfélögin útí hafsauga, vegna þess
að þau eru eina raunverulega vörn launþeg-
ans gegn atvinnurekendum og misvitrum
stjomvöldum. Þá er spumingin, höfðu fé-
-agarmr ekkert að athuga við félagið? Það
sem helst var gagnrýnt var að ekki væru
nogu margir vinnustaðafundir, trúnaðar-
menn væru óvirkir, stjórnin sæist aldrei á
vinnustöðum og félagsstarfið mætti vera
meira. Ef við staðnæmumst við þessi atriði,
sem vissulega eiga rétt á sér, þá er heimilt
samkvæmt samningum að halda tvo vinnu-
staðafundi á ári; þetta er því kannski spurn-
ing um frumkvæði. Er það starfsfólk eða
stjorn sem á að boða til fundar? Ég tel að
pað sé affarasælla að starfsmenn hafi frum-
kvæðu skipuleggi og óski eftir fundi, finni
hentugan fundartíma, það sé betra en að
rntaður segi nú verður fundur þennan eða
, *nn dnginn. Óvirkir trúnaðarmenn; lítum á
1 hyerju hlutverk þeirra er fólgið.
Trúnaðarmaðurinn er tengiliður á milli fé-
'ags og vinnustaðar, virkni eða óvirkni fer
oftast eftir samstarfsfólki. Oft heyrast þessi
orð um trúnaðarmenn: „Hann er síröflandi
eða hann gerir ekkert." Ég tel að trúnaðar-
maðurinn sé oftast spegilmynd vinnustað-
arins. Félagsfundir, félagsstarf, mæting
félaga á félags- og aðalfundi er ekki til
fyrirmyndar og mætti vera betri. Svörin við
því hvers vegna menn kæmu ekki á fundi
voru: Langir, leiðinlegir, langar ræður,
alltaf sömu mennimir sem tala. Nú er það
svo að t.d. aðalfundir geta seint orðið
skemmtilegir, þar sem þeir eru byggðir upp
af skýrslum og tölum og kjöri í nefndir en
þetta þarf að gera til að félagið geti starfað
og þarna eru teknar þær ákvarðanir er allt
starf byggist á. Félagsfundir mættu vissu-
lega vera fleiri sem og aðrir smáfundir.
Minni fundum hefur verið reynt að brydda
uppá með sæmilegum árangri. Eitt er að
FBM er blandað verkalýðsfélag og tekur til
alls starfsfólks í prentiðnaði, það tel ég af
hinu góða, enda kom fram mjög lítil gagn-
rýni í þá átt, einungis 8% telja það veikja
félagið, enda væru félagsntenn ekki um
1.100 í dag ef um hreint fagfélag væri að
ræða og í hvaða félagi væru þá hinir? Spurt
var um kjaramál og hvort beita ætti verk-
fallsvopninu ef allt um þryti. 72% sögðu
hiklaust já, 64% töldu að félagið ætti að
hafa frumkvæði í samningum en aðeins
17% höfðu trú á ASÍ og frumkvæði þess. •
Það tel ég að forysta ASÍ ætti að taka til at-
hugunar, þetta algjöra áhugaleysi á samtök-
unum. í þeirri umræðu sem hefur orðið um
lýðræði innan verkalýðshreyfingarinnar tel
ég að FBM standi einna fremst. t.d. hvað
varðar kosningafyrirkomulagið. Hvar
annars staðar er kosið sérstaklega um
formann. þar sem 20 félagar geta stillt upp
formannsefni? Hvar annars staðar er kosið
persónubundið í stjórn? Gagnrýni þeirra er
vilja verkalýðshreyfinguna feiga hefur
beinst að kosningafyrirkomulaginu og þá
hefur verið horft til þeirra er hafa lista-
kosningu en ekki til þeirra er hafa persónu-
bundna kosningu því það hentar ekki
málstaðnum. Gagnrýnt hefur verið að örfáir
einstaklingar ákveði verkföll í stórum
félögum, ekki er minnst á að FBM og
forveri þess HÍP hafa aldrei farið í
verkfall án þess að það væri samþykkt
í allsherjaratkvæðagreiðslu, það hentar
ekki heldur málstaðnum.
prenturinn
■ MALGAGN FÉLAGS BÓKAGERÐARMANNA
Ritnefnd Prentarans:
Georg Páll Skúlason,
ritstjóri og ábyrgðarmaður.
Margrét Friðriksdóttir
Páll Ólafsson
Pétur Ágústsson
Sölvi Ólafsson.
Fréttaskot og annað efni er
vel þegið og eins óskir og ábendingar
lesenda til ritnefndar.
Leturgerðir
í Prentaranum eru:
Universe, Times o.fl.
Blaðið er prentað á mattan 135 g
Ikonofix.
Útlit og prentvinnsla:
Prentþjónustan ehf.
Forsíða Prentarans:
Forsíðuna á Kristinn Gunnarsson,
prentsmiður á Morgunblaðinu.
Hugmyndin var hans framlag í forsíðu-
samkeppni Prentarans og var valin ein
affjórum bestu hugmyndunum.
PRENTARINN ■ 3