Prentarinn - 01.01.1996, Síða 5

Prentarinn - 01.01.1996, Síða 5
ÖRYGGISMÁL ■ ■ ■ ► > verði EGF þannig að það verði sjálf- stæðari stofnun í tengslum við IGF. • Til að koma á fót sjálfstæðu EGF með raunverulegu stjórnskipulagi og stjómunarlegum og fjárhagslegum " grundvelli erum við sammála um eftirfarandi: • Starfshópur, er samanstæði af fulltrúum frá norrænu félögunum, Þýskalandi, Bretlandi, Frakklandi. Italíu, Austur- og Mið-Evrópu og stjorn EGF, yrði beðinn að undirbúa tdlögur fyrir 1. maí 1996 sem síðan yrðu ræddar f aðildarfélögum. • Starfshópurinn mun starfa óháð skrifstofu EGF og stjórnun og ritara- aðstaða verður látin í té af þeim felógum sem sæti eiga í nefndinni. • Meðlimir hópsins velja einn úr smum hópi sem stjómanda/samhæf- anda. • Tillögur starfshópsins munu verða sendar til allra aðildarfélaga EGF í sfðasta lagi 10. maí 1996 og munu mnihalda tillögur til að koma á: a) Sjálfstæðara EGF. b) Hlutverki og ábyrgð EGF. c) Stjómunarfyrir- komulagi EGF. d) Fjárhags- grundvelli EGF. e) Samþykktum dög) EGF. • Ákvörðun um tillögur vinnuhóps- tns verður tekin í fulltrúaráði EGF árið 1996. • Að tillögunni samþ. voru eftir- taldir samþ. f vinnuhópinn: Tom Durbing, Tony Dubbins, Detlef Hensce, Costantino Marconi, András Bársony, Michel Muller og mn Erik Thoresen sem veitir vinnuhópnum forystu. • Að sfðustu voru samþ. nokl ályktanir um aðstoð við lönd Austur-Evrópu. Einnig var stj EGF falið að móta tillögur un heimavinnuátölvurogmönn prentvéla. Oryggismál starfsmanna Nániskcið fyrir öryggistrúnaðarnienn, öryggisverði og stjórncndur fyrir- tækja í prcntiðnaði var haldið dagana 22.-23. janúar sl. Það var Öryggisnefnd prcntiðnaðarins sem stóð að þessu námskeiði í samvinnu við Vinnueftirlit ríkisins. 22 sóttu námskeiðið og er það frábær- lega góð þátttaka miðað við þátttöku í öðrum námskeiðum undanfarin ár. Það sem helst þótti athugavert var að námskeiðið væri of stutt. Þrír dagar er það stysta til að hægt sé að fara í alla þætti og gera þeim betri skil. Félag bókagerðar- manna fékk hingað vinnuverndarfulltrúa frá Grafiska Fackförbundct í Svíþjóð, Göran Söderlund, og kynnti hann okkur vinnuverndarmál í sínu heimalandi og var það fróðlegt mjög. Eins minnti hann okkur á Agenda 21, (þýtt á ísl. „Dagskrá 21“) en það er samþykktin sem gerð var á Umhverfsismálaráðstefnu SÞ í Rio de Janeiro fyrir nokkrum árum og Islendingar eru aðilar að ásamt mörgum öðrum þjóðum. Kári Kristjánsson fræðslustjóri skipulagði námskeiðið nieð Svani Jóhannessyni frá FBM, en margir sérfræðingar Vinnucftirlitsins tóku þátt í fræðslunni, svo scm: Hólmfríður Gunnarsdóttir, Sigurður Karlsson, Hulda Ólafsdóttir, Jónína Valsdóttir, Guðbjörg Linda Rafnsdóttir og Sigurbjörg Sverrisdóttir. Þá sagði Ágúst Guðjónsson prentari frá reynslu þeirra í Svansprenti af notkun sojaolíu og jurtahreinsa. Ólafur Brynjólfsson kom frá Morgunblaðinu og fræddi okkur um umhverfisátak sem þeir cru að gera en þeir hafa náð sérstaklega góðum árangri í förgun spilliefna og gæti það verið öðrum til eftirbreytni, jafnvel í öðrum greinum iðnaðar. Þá hélt Þórður Sverrisson augnlæknir við Landakots- spítala fróðlegan fyrirlestur um augnvernd. I lok námskeiðsins var farið í vinnustaðaheimsókn til Morgun- hlaðsins. PRENTARINN ■ 5

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.