Prentarinn - 01.01.1996, Síða 6

Prentarinn - 01.01.1996, Síða 6
 ■ ■■ BÓKAGERÐARMENN Blindur er bóklaus maður - eru bókagerðarmenn bókaormar? Sigurbergur M. Ólafssou er 29 ára gamall, er í sambúð og á eitt barn. Hann lœrði offsetljós- myndun og hefur starfað við Ijós- myndun og litgreiningu í 12 ár hjá Prent- þjónustunni hf. Arnborg S. Benediktsdóttir er 38 ára, gift og á 3 börn á aldrin- um 7-19 ára. Hún er prentsmiður og hefur starfað við prentiðnaðinn í u.þ.b. 10 ár. Hún vinnur nú við skeytingu í Svansprenti. Hvað varð til þess að þú ákvaðst að leggjafyrir þig ojfsetljósmyndun? Það var bara tilviljun, ég hafði mikinn áhuga á ljósmyndun en vissi raunverulega lítið um út í hvað ég væri að fara. Hvernig upplifir þú þœr breytingar sem hafa orðið í prentiðnaðinum og hvert sýnist þér þœr stefna? Þetta er svakaleg bylting, fagið hefur gjörbreyst á þeim tólf árum sem ég hef starfað við það. Varðandi framtíðarsýn, sýnist mér að prent- verkið muni færast í sífellt meira rnæli inní tölvurnar. Bækur, tímarit og dagblöð munu verða gefin út á Hvað varð til þess að þú ákvaðst að leggjafyrir þig bókagerð? Það sem réð úrslitum um að ég fór í bókagerðina var m.a. það að mig langaði til að starfa við eitthvað nýtt. Eftir menntaskóla fór ég í ótal hringi, dauðlangaði að læra líffræði í Háskólanum eða byggingatækni- fræði í Tækniskólanum, en svo fór ég að vinna í Bókfelli. Þar var ég einn vetur innan um sérstaklega skemmtilegt fólk og fékk á tilfinn- inguna að bókagerðarmenn væru hinir mestu bókaormar og líflegar umræður á kaffistofunni kveiktu enn frekar hjá mér áhuga á faginu. I framhaldi af þessum vetri hjá Bókfelli fór ég í G.Ben og vann sitt af hverju sem leiddi svo af sér að ég fór að læra prentsmíðina. Hvernig upplifir þú þœr breytingar sem hafa orðið í prentiðnaðinum og hvert sýnist þér þœr stefna? A þessum tíma sem ég hef starfað í faginu hafa orðið gífurlegar breyt- ingar. I dag er nánast allt „mix“ úr sögunni og við sem höfum aðallega starfað í filmunni fmnum fyrir hvað hvert verk tekur minni tíma en áður. Við getum ekki lokað augunum fyrir því að nánast hver sem er getur kom- ið í prentsmiðjurnar með sitt verk til- búið á diski og það eina sem er eftir tölvutæku formi og menn munu nálgast þessi gögn í gegnum vélamar heima hjá sér. Hvernig sérð þú fyrir þér stöðu bókarinnar á Islandi íframtíðinni? Eg hef trú á að skáldsögur og þess háttar útgáfa muni ekki taka svo miklum breytingum í næstu framtíð en fræðibækur, uppflettirit og þess háttar muni í auknum mæli verða gefið út á tölvutæku formi. Lestu sjálfur og þá hvað helst? Nei, ég les ekki mikið, alltof lítið. Það er helst að ég gluggi í erlend tímarit. að gera fyrir prentun er að keyra verkið út á fdmur og plötutaka. Það má segja að tæknin sé í senn spenn- andi, ögrandi og ógn- vekjandi fyrir prentiðnaðinn. Við bókagerðarfólk verðum sífellt að vera að endurmennta okkur og þegar hanna á prentgrip verðum við að hafa mestu þekkinguna bæði hvað varðar tækni og hönnun. Við verðum að vinna best, svo einfalt er það. Eftir hverjuferð þú þegar þú velur eða kaupir bœkur? Eg kaupi mjög sjaldan bækur og þá helst til jólagjafa eða námsbækur fyrir konuna. Eg geri ráð fyrir að auglýsingar og bókatíðindin hafi áhrif á hvað ég vel til gjafa, ég athuga hvar þær eru unnar og eins hefur áhrif hvaða bókaforlög veita félagsmönnum afslátt. Er bóklaus maður blindur? Nei. geri. Ég les helst skáldsögur og tek gjarnan fyrir ákveðin samfélög. Núna eru það bækur skrifaðar af kínverskum höfundum, t.d. eftir Amy Tan, sem heilla en síðast tók ég fyrir bækur eftir Gabríel Garcia Marques sem leiddu mann í sann- leikann um þjóðfélagsgerð Rómönsku-Ameríku. Nú, og svo eru spennusögur alltaf góðar á milli, en ég er hræðilega gagnrýnin á bækur! Hvernig sérð þú fyrirþér stöðu bókarinnar á Islandi íframtíðinni? Ég er alls ekki svartsýn á stöðu bók- arinnar. Ég er ekki sammála ýmsum ágætum mönnum um að tölvuskjár- inn leysi bókina af hólmi. Sumir hafa heillast svo af tölvutækninni að þeim hættir við að líta á þessi mál af óraunsæi. Eins og tölvuskjáir eru í dag myndi ég ekki nenna að lesa 300 blaðsíðna bók af skjá. Nei, þá þá vil ég frekar koma mér þægilega fyrir með bókina og lesa. Prentað mál á vissulega í samkeppni við aðra miðla, það viðurkenni ég, en bókin er og verður bók með sína sérstöðu hvað sem öðru líður. Lestu sjálf og þá hvað helst? Já, já, ég les, en allt of lítið. Ég myndi vilja lesa miklu meira en ég Eftir liverjuferð þú þegar þú velur eða kaupir bœkur? Ég kaupi ekki bækur sem eru unnar erlendis og það skiptir mig máli hvemig þær líta út. Það er ekki gam- an að kaupa gott efhi í ljótri umgjörð. Er bóklaus rnaðiir blindur? Nei, ég vil ekki taka svo djúpt í ár- inni. Það er hægt að afla sér þekk- ingar eftir svo mörgum leiðum í dag. En samt - maður sem ekki er bóklaus ætti að vera víðsýnni en sá bóklausi. Sá sem les öðlast t.d. fæmi í meðferð málsins á annan hátt en sá sem ekki les. Hugurinn vinnur öðm- vísi úr kyrru en þó sífelldu upplýs- ingastreymi fallega uppsettrar blað- síðu en hraðri atburðarás sjónvarps- skjásins. - Maður byggir betur upp með því að lesa en horfa. - 6 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.