Prentarinn - 01.01.1996, Blaðsíða 8

Prentarinn - 01.01.1996, Blaðsíða 8
 FELAGSMAL Við getum meira og erum betri en við höldum - Undirstöðurnar styrktar Ætlið þið ekki á félagsmála- námskeiðið um helgina? spurði Margrét Friðriks- dóttir á fyrsta kvennafundinum sem haldinn var 25. október niðrá Hverfisgötu. Undirtektir voru drœmar og þar sem ég hálf- skammaðist mín fyrir að þora ekki á svona „rœðu- námskeið“ afsak- aði ég mig með því að égfœri nú ekki fyrr en ég vœri búin að fara á sjálfsstyrking- arnámskeið og J'annst þetta bara nokkuð góð af- sökun. Nógu margar aðrar léku þetta eftir og ekkert varð affé- lagsmála- námskeiðinu vegna lítillar þátttöku. GUÐNY ÞÓRARINSDÓTTIR En það leið ekki langur tími þar til Margrét var búin að sjá við mér. Hún hringdi og sagði mér að stjóm FBM hefði ákveðið að bjóða upp á sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir onur í félaginu og að allt væri klappað og klárt. Nú væri engin undankomuleið, á námskeiðið yrði ég að mæta. Og auðvitað mætti ég. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, en hún hefur sett upp og kennt náms- efnið víða um land fyrir Menningar- og fræðslusamband alþýðu. Nám- skeiðið fjallar um það hvernig fólk getur byggt upp sjálfstraust og verið öruggara í samskiptum. Undirtektir við námskeiðinu voru góðar og á síðasta degi innritunar var það full- bókað og gott betur. Því var annað námskeið ákveðið síðustu helgina í febrúar. Fyrra námskeiðið var haldið um helgi, dagana 27. og 28. janúar og þegar nær dró var ekki laust við smáspennu f magavöðvum. Hvernig færi þetta nú fram? Þyrfti maður ekki að standa upp og halda ein- hverja tölu í lokin til að athuga hversu sjálfsstyrktur maður væri orðinn? Um hvað í ósköp- unum ætti maður að tala? Bót í máli var að flestar á nám- skeiðinu voru vinnufélagar á V Morgunblað- inu. Námskeiðið byrjaði kl. 10 og gekk ég inn í salinn v eins ákveðin í fasi og \ mér var unnt. Leiðbein- andinn, Ingibjörg Elsa A Guðmundsdóttir, kynnti sig og bauð okkur vel- komnar en það voru varla 5 mínútur liðnar af námskeið- inu er við vorum allar beðn- ar um að kynna okkur og segja á okkur deili í stuttu máli. Nú byrjar það, námskeiðið varla byrjað og maður á að fara að halda ræður, en þó fór betur en á horfðist. Námskeiðið byggðist á fyrirlestr- um, umræðum og æfingum. Þátttak- endum var skipt í litla hópa og feng- ið efni til að tala um og kryfja. Eins og segir í kynningarbréfi um nánt- skeiðið er markmið þess að þátttak- endur skilji: 1. Að það er samhengi milli sjálfs- trausts og framkomu manneskju, sem hefur áhrif á samskipti hennar við annað fólk. 2. Helstu þætti sem hafa áhrif á sjálfstraust. 3. Að hver manneskja getur sjálf haft áhrif á það hvort sjálfstraust hennar er mikið eða lítið. 4. Helstu leiðir til að byggja upp sjálfstraust. Umræðurnar á námskeiðinu urðu olt líflegar og dæmisögur Ingibjargar féllu í góðan jarðveg og könnuðust flestir ef ekki allir við dæmin sem voru dregin upp, a.m.k. ef dæma má af kollunum sem kinkað var í gríð og erg til samþykkis. Virtist mörg- um létt að sjá og heyra að flestir höfðu reynt það sama eða svipað í samskiptum sín- um við aðra. Sýnt var fram á að alltof oft látum við vanmat stjóma okkur, við miklum galla okkar fyrir okkur og brjótum okkur niður í stað þess að trúa því - og láta á það reyna - að við getum meira og erum betri en við höldum. Að það er aldrei of seint að breyta því sem bet- ur má fara og það eru leiðir til þess að auka sjálfsvirðinguna og vera ákveðnari. Athyglisvert var að heyra hve samskiptamunstur getur haft mikil áhrif - ekki bara á milli tveggja einstaklinga og innan fjöl- skyldunnar - heldur á heilu vinnu- staðina. Farið var yfir hvemig sam- skiptamunstur er æskilegast og hvemig maður sjálfur getur haft áhrif á það. Er ekki laust við að maður sé jákvæðari eftir námskeið- ið, bæði gagnvart sjálfum sér og öðrum sem maður umgengst, og umhugað um að bæta sjálfan sig og samskipti sín við fólk. Það er auð- velt að lesa og heyra hlutina en ann- að að fylgja þeim eftir og breyta rétt. En allt tekur sinn tíma. Vinnufélagi minn, karlkyns, varð vonsvikinn að heyra að námskeiðið væri aðeins fyrir konur. Hann sagði að körlum veitti ekkert síður af því að fara á sjálfsstyrkingamámskeið, þeir væru oft mjög lokaðir og hefðu gott af því að auka sjálfstraustið. Það væri gaman að sjá hvort að- sóknin yrði jafnmikil og hjá konunum. En við á námskeiðinu vomm sammála um það í lokin að allir hefðu gott af því að hrista upp í sér á nokkurra ára fresti, líta í eigin barm og velta fyrir sér sam- skiptum sínum við aðra, og hvort ekki væri þar eitt- hvað sem bet- ur mætti fara. Eg hef hugsað mér að geyma blöðin frá námskeiðinu á vísum stað og glugga í þau annað slagið til að minna mig á og halda því við sem ég lærði á námskeiðinu. Að lokum vil ég þakka FBM og Margréti Friðriksdóttur fyrir framtakið. 8 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.