Prentarinn - 01.01.1996, Qupperneq 10
Sífellt aukin þörf
og eftirspurn er
eftir útivistar-
möguleikum
fyrir fólk sem er í
lengra eða
skemmra orlofi.
Þetta er í
auknum mœli
að verða þeim
Ijóst sem hafa af-
skipti afog taka á
móti ferðamönn-
um. Byggðar eru
sundlaugar og
önnur íþrótta-
mannvirki með
miklum
tilkostnaði,
göngustígar eru
lagðir, hesta-
leigur settar á
laggirnar og ótal
margt fleira sem
orðið getur ferða-
mónnum og
orlofsdvalar-
gestum til
ánœgju og af-
þreyingar.
Ólafur, Guðmundur
og Dagbjartur að
hefja einn af
mörgum hringjum
sínum sl. sumar.
ÓMAR
FRANKLÍNSSON
Aorlofssvæði okkar bókagerðar-
manna í Miðdal við Laugar-
vatn hefur lítillega verið brugðist
við og reynt að skapa afþreyingarað-
stöðu, en mikið vantar enn til þess
að fullnægjandi geti talist. T.d. vant-
ar tilfinnanlega merkingu göngu-
stíga, þvf margar áhugaverðar
gönguleiðir eru útfrá orlofssvæðinu
okkar. Nú getum við þó séð stórvirki
í mótun þar sem aðstaða til golfiðk-
unar hjá Golfklúbbnum Dalbúa er
búi aðstöðu sunnan og austan við
Menntaskólann, en sú aðstaða var
afar frumstæð og svæðið hentaði illa
til framtfðaruppbyggingar á golfvelli
sem viðunandi gæti talist. Ekki rætt-
ist úr fyrr en jörðin Miðdalur losn-
aði úr ábúð, en sú hafði verið von
margra bókagerðarmanna um all-
langt skeið. Dalbúi og FBM gerðu
með sér leigusamning til 40 ára, þar
sem Dalbúi fékk til afnota túnin við
bæinn. Fljótlega var hafist handa við
óðum að taka á sig mynd. Dalbúi
var stofnaður á Laugarvatni 1989 af
ýmsu áhugasömu útivistarfólki.
Mestmegnis fólki sem á eða hefur
afnot af sumarhúsi á Laugarvatns-
svæðinu og lokið hafði að mestu
framkvæmdum við hús sín og leitaði
nú hollrar afþreyingar fyrir alla fjöl-
skylduna. Stofnfélagar voru um 100
af báðum kynjum og á öllum aldri. f
hópnum leyndust nokkrir reyndir
kylfingar, en flestir höfðu þó litla
sem enga kunnáttu eða reynslu af
golfíþróttinni. Fyrst í stað hafði Dal-
Stjórn Golfklúbbsins Dalbúa.
F.v. að ofan: Baldvin Ársœlsson,
Jón Þ. Hilmarsson, Ólafur Pálsson,
Ómar Franklínsson, Gunnar G.
Schram, formaður og Hilmar
Einarsson.
hönnun 18 holu golfvallar því land-
rými er nægt. Á miðju sumri 1994
var sfðan byrjað að spila 9 holur þó
aðstæður væru frumstæðar. 1995 var
ráðist í nokkrar framkvæmdir eða
einsog fjárhagur þessa litla golf-
klúbbs leyfði. Má segja að aðstæður
hafi verið þokkalegar síðastliðið
sumar á 9 holu velli. Þá varð geysi-
mikil breyting á aðstöðu til félags-
starfsins þegar hægt var að opna
„Klúbbhús" Dalbúa í kjallara íbúð-
arhússins í Miðdal eftir mikið og
fórnfúst sjálfboðaliðastarf nokkurra
félagsmanna klúbbsins. Þar má fá
keyptar léttar veitingar og nauðsyn-
lega smáhluti til golfiðkunar. Einnig
má fá leigðar golfkylfur gegn vægu
gjaldi. Allt þetta hafði í för með sér
að mikil fjölgun varð á félögum og
auk þess komu margir utanaðkom-
andi og spiluðu. Nokkur mót voru
haldin í sumar sem leið, misjafnlega
fjölmenn. Meirihluti klúbbfélaga
virðist vera byrjendur í íþróttinni og
er það eðlilegt í nýjurn klúbbi. Nú á
árinu 1996 verða talsvert miklar
framkvæmdir við völlinn: Byggðar
verða upp nýjar flatir, teigar lag-
færðir, fyllt verður uppí skurði, út-
búinn verður æfíngateigur og pútt-
völlur tekinn í notkun og þegar er
hafin gróðursetning trjáa. Einnig
stendur til að koma upp gróðurreit
trjáa þar sem fólk getur sett niður
græðlinga sem til falla við afklipp-
ingar. Græðlingana má síðar flytja
til og setja niður á skipulögðum
svæðum víðsvegar á vellinum þegar
aðstæður leyfa. Allar framkvæmdir
og hraði þeirra ræðst þó af því fjár-
magni sem klúbburinn hefur til ráð-
stöfunar. Fjáröflun á sér stað aðal-
lega með þrennskonar hætti: Félags-
gjöldum, tekjum af mótum og vall-
argjöldum. Alltof fáir bókagerðar-
menn hafa enn sem komið ér gerst
félagar og vil ég nota tækifærið og
hvetja fólk til þess að gerast virkir
félagar og taka þátt í hollri útiveru
og uppbyggingu golfklúbbsins á
jörðinni okkar. Félags- og vallar-
gjöld eru sennilega þau lægstu sem
þekkjast. Allir geta verið með, konur
og karlar, ungir sent aldnir og allir
eru velkomnir í heimsókn í Klúbb-
húsið í Miðdal. Orlofsdvalargestir
hvort heldur sem er í orlofshúsum,
hjólhýsum eða tjöldum ættu að nýta
sér þá ágætu skemmtun sem í golf-
íþróttinni felst.
Stjóm Dalbúa skipa nú eftirtaldir
menn kosnir á aðalfundi 1995: For-
maður Gunnar G. Schram, gjaldkeri
Hilmar Einarsson, ritari Ómar
Franklínsson, meðstjórnendur Bald-
vin Ársælsson og Jón Þ. Hilmars-
son. Varamenn: Dagbjartur Jóhanns-
son og Ólafur Pálsson.
Sjáumst öll með hækkandi sól á
komandi vori. •
W
1 0 ■ PRENTARINN