Prentarinn - 01.01.1996, Blaðsíða 16

Prentarinn - 01.01.1996, Blaðsíða 16
■ ■ ■ ORYGGISMAL Prentarar reyna jurtahreinsa Eins og flestum prenturum er kunnugt hefur Iðntœknistofnun í samvinnu við Prenttœknistofn- un staðið að verkefni um jurtahreinsa í prentiðnaði. Verkefnið, sem er Evrópuverkefni, er hluti SPRINT áœtlunarinnar og kallast SUBSPRINT. Það hófst fyrir rúmu ári hér á landi. RAGNAR JÓHANNSSON IÐNTÆKNI- STOFNUN Fenginn var reyndur leiðbeinandi frá DTU í Danmörku, Káre Hendriksen til að þjálfa kennara hér í notkun á jurtahreinsum. Hann hélt einnig erindi hjá Félagi bókagerðar- manna fyrir ári, eins og fram hefur komið í Prentaranum. Nú hafa verið haldin þrjú nám- skeið um notkun jurtahreinsa og fjölmargar kynningar. Margir prentarar hafa nú reynt jurtahreinsa og eru komnir með góða reynslu - sumir hafa jafnvel áralanga reynslu og nota ekkert ann- að. Við heimsóttum nokkrar prent- smiðjur sem notað hafa jurtahreinsa og ræddum við prentara um þessi mál. Fyrst voru heimsóttir þeir félagar Axel Snorrason, Helgi Hólm Tryggvason og Sverrir Gíslason hjá Svans- prenti en þeir eru þaul- reyndir í jurtamálum... Hvenœr byrjuðuð þið að nota jurtahreinsa? Axel: Við byrjuðum fyrir rúmum fimm árum, þá reyndum við mörg efni og gekk á ýmsu þar til við fund- um það sem við notum núna. Það var fyrir um fimm árum og þetta hefur gengið stórvel og við höfum ekki lent í neinum vandræðum. Hvað finnst ykkur vera helsta breytingin við að nota jurtahreinsa? Sverrir: Andrúmsloftið - það hefur stórbreyst. Nú er engin lykt hérna inni og manni líður miklu betur í höfðinu. Axel: Maður fann það oft hér áður fyrr að ef maður þurfti að þvo vélina margoft og var svo að hella úr hreinsikarinu á kvöldin að manni varð hreinlega flökurt - það lá við að maður kastaði upp. Ég var alveg hættur að þola þessi efni. Svo var konan alltaf að tala um það að þegar maður kom heim á kvöldin væri efnalykt út úr manni í fleiri tíma. Þetta getur ekki verið gott fyrir lungun eins og þetta fer með hend- umar. Nú hefur maður heyrt að sumir prentarar lendi í vandrœðum, þá er sérstaklega um að rœða tónun. Lendið þið aldrei íþví vandamáli? Sverrir: Nei, ég held að það komi af því að þeir nota efnið einfaldlega vitlaust. Maður verður að gæta þess að nota aldrei of mikið. Ef of mikið er notað getur það orðið eftir á vél- inni eða farið að setjast á stangir inni í henni og farið svo að drjúpa í miðri prentun. Eða þá að þeir eru ekki með rétt stilltar vélar. Það að hægt sé að nota jurtahreinsa á vélina segir þér að hún er rétt stillt og allir valsar í góðu lagi. Ef olían fer ekki af vélinni þá þýðir það að eitthvað er að. Helgi: Við hreinsum ekki bara vals- ana með olíunni heldur einnig dúk- ana og plötuna. Þetta er mjög gott á plötumar. Plötur sem eru með farfa sem hefur fengið að þorna jafnvel í tvo daga er ekkert mál að ná góðum aftur. Þær em hreinsaðar með jurta- hreinsinum og gúmbornar á eftir - settar í vélina og engin vandamál. Notið þið jurtahreinsa á allar vélarnar eða bara sumar? Axel: Við notum jurtahreinsa und- antekningarlaust á allar vélarnar nema á sjálfvirka þvottakerfið, þetta er gamalt kerfi og það gengur ekki að nota olíuna á það. En þetta er lokað kerfi svo við finnum ekki svo mikið fyrir því. Sverrir: Það kemur fyrir þegar við erum að flýta okkur og þurfum að skipta um lit að við gefum eina rönd af venjulegum hreinsi til að flýta fyrir. Það sparar tíma þegar við erum að hreinsa af með vatni á eftir. Axel: Annars er eitt atriði sem ég man að Káre Hendriksen minntist á þegar hann var með kynninguna í Félagi bókagerðarmanna; það var þetta með alkóhólið. - Hann sagði að í raun þyrfti einungis 8% alkó- hólblöndu á vatnskerfið. Við prófuð- um þetta og það er alveg rétt en það er ekki hægt að fara neðar. Við höfð- um aldrei spáð í þetta en með þessu höfum við sparað fleiri tunnur af alkóhóli. Prentsmiðjan Oddi hefur einnig verið að athuga notkun á jurtahreinsum síðastliðna 9 mánuði. Því var ekki úr vegi að athuga hvernig málin stæðu eftir eina meðgöngu eða svo... Hver er reynsla ykkar Oddaverja af notkun jurtahreinsis? Jóhann Freyr: Það fer eftir því hvað þú meinar með reynslu. Reynslan er orðin mjög góð núna á einni vél, þar sem menn hafa virki- lega einbeitt sér að þessu og allt gengið vel og engir silfurmasterar eru í spilinu. Einnig hefur þetta komið mjög vel út á nýjustu vélinni sem er með sjálfvirkum þvottabún- aði, en annars staðar þar sem þetta hefur verið prófað hafa menn lent í vandræðum - þar sem eru silf- urmasterar, eins og í GTO og eins litar vélunum, þar hafa menn gefist upp. Hver eru aðalvandamálin sem þú liefur séð ? Hvernig lýsa vandamálin sér á silfurmasternum? - Það er slikjan. Við fáum ekki hreina prentun. Hefurðu einhverja hugmynd um af hverju þetta gengur ekki á silfur- masternum en gengur á hinu? - Silfurmasterinn sjálfur - við vitum það fyrirfram, að hann er miklu við- kvæmari fyrir öllum utanaðkomandi áhrifum. Það verður að nota sérstök þvottaefni og sérstaka meðhöndlun og svo þegar í viðbót kemur jurta olía sem þvæst ekki eins vel í burtu og gufar ekki upp, þá sitjum við uppi með vandamál, sem eru okkur mjög erfið. Við sjáum örla örlítið á þessum 1 6 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.