Prentarinn - 01.01.1996, Qupperneq 21

Prentarinn - 01.01.1996, Qupperneq 21
PRENTARAR í HEILA ÖLD ■■■ félagið var auk þess sá bakhjarl er prentarar leituðu til er öll sund virt- ust lokuð - þegar langvarandi veik- mdi stefndu fjölskyldulífi í voða; þegar afla þurfti farareyris til lækn- mga erlendis, eða gefa út bók um áhugaefni svo nokkurra tilvika sé getið. Stjóm félagsins og félags- menn tóku undantekningalaust vel í slíka málaleitan því í þeirra huga var prentari ávallt prentari, jafnvel þótt hann hytfi að öðm starfí um stundarsakir eða lengri tíma. Inn- lendur stéttarbróðir eða erlendur 'ar ávallt aðstoðar verðugur væri unnt að koma því við. Hið íslenzka prentarafélag minnti emnig á tilvem sína í sorg og gleði. Fulltrúar þess sendu heillaskeyti blóm, peningagjöf eða merka bók í fogm bandi er félagsmenn áttu merk- isafmæh. Og látnir félagsmenn voru kvaddir með líkfylgd á vit nýrra heimkynna handan við gröf og dauða. belagtð greiddi útför félagsmanna og blomsveigur var iðulega lagður á leiði Peirra prentara sem tekið höfðu virk- uu þátt í starfi félagsins. Hér var ekki latið staðar numið þegar félagsmenn attu 1 hlut, því ekkjur þeirra fengu jolastyrk frá félaginu. Hið íslenzka prentarafélag var þvf ekki einungis stéttarfélag í hefð- bundnum skilningi. heldur einnig samhjalparfélag sem prentarar og jolskyldur þeirra gátu leitað til í §leði sinni og sorg. Búskapur prentara °9 rit Jóns Trausta Kjara- og hagsmunamál voru ofar- ‘ega á baugi í Prentarafélaginu, en mal af öðrum toga voru einnig rædd f Undum prentara og stjómar fé- agsins. Tveggja mála er bar á góma a tyrstu áratugum félagsins verður getið hér. í febrúarmánuði 1924 ræddi Har- aldur Jónsson um búskap prentara. ^erði hann að tillögu sinni að Reykjavíkurdeild Prentarafélagsins stuðlaði að því að þeir prentarar er veikst hefðu af tæringu þyrftu ekki að hverfa að hinni heilsuspillandi prentlist þegar þeir hefðu náð sér eft- ir veikindin, heldur gætu snúið sér að búskap. „Hélt hann að norskt bú- skaparlag myndi henta slíkum mönn- um bezt. Þeir fengju vel ræktaða jörð og nægan bústofn, sem þeir gætu svo smátt og smátt eignazt. Upplýsti Har- aldur að landsstjómin væri að láta rækta land uppi í Mosfellssveit og vildi að deildin sneri sér á sínum tíma þessu viðvíkjandi." Nokkrir fundarmanna tóku til máls um bú- skap prentara og lyktaði því á þann veg að þeir Haraldur Jónsson, Hafliði Helgason og Einar Hermannsson voru skipaðir í nefnd til að athuga málið frekar. Ekkert virðist hafa orð- ið úr frekari framkvæmdum. A fundi Reykjavíkurdeildar HÍP hinn 17. október 1927 fjallaði for- maður deildarinnar um þá hugmynd Jóns Þórðarsonar, er hann birti í Prentaranum, að heiðra minningu Guðmundar prentara Magnússonar (Jóns Trausta) með því að félagið keypti útgáfuréttinn á ritum hans og gæfi þau út. Jón Þórðarson var ekki mættur til fundar og því var málinu frestað. Var það tekið upp á ný á fundi deildarinnar hinn 16. janúar 1928. Jón Þórðarson kvað Guðmund Magnússon vera eina stórskáld prent- arastéttarinnar og víðlesnasta rithöf- und landsins. Félagið myndi því ekki bíða tjón af því þó það keypti útgáfu- réttinn og gæfí bækumar út, enda margar þeirra þá ófáanlegar. En hér bjó fleira að baki. Jón kvað það hafa vakað fyrir sér „að láta atvinnulausa menn sitja fyrir því að vinna við út- gáfu þessara bóka. Hann hugsaði sér að félagið mundi í framtíðinni eign- ast hús, þar sem það gæti haft prent- smiðju og bókasölu. Aleit hann að kaup og útgáfa á fyrmefndum bókum mundi miða í þá átt, að styrkja félag- ið.“ Málflutningur Jóns fékk góðan hljómgrunn fundarmanna og málinu lauk á því að kjörin var þriggja manna nefnd til að athuga málið frekar. I nefndina voru kosnir þeir Jón Þórðarson, Gunnlaugur O. Bjam- arson og Albert Finnbogason. Nefndin hafði ekki erindi sem erfiði því fósturdóttir Guð- mundar, Marta Magnúsdóttir, erfði útgáfuréttinn og gaf rit Jóns Trausta út í samvinnu við eiginmann sinn. Guðjón Ó. Guðjónsson prentsmiðju- stjóra. Vélasalur prentsmiðjunnar Gutenbergs 1907. PRENTARINN ■ 2 1

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.