Prentarinn - 01.03.1998, Side 8

Prentarinn - 01.03.1998, Side 8
Miðdalsmótið, golfmót Félags bókagerðarmanna, fór fram á golfvelli Dalbúa í Miðdal 15. ágúst 1998. Þetta var í þriðja sinn fyrsta sæti án forgjafar, bikar fyrir fæst pútt og bikar í kvennaflokki. Einnig voru veittar viðurkenning- ar fyrir að vera næst holu á 5. og 8. braut og lengsta teighögg á 3. braut, auk þess var dregið úr skorkortum svo lengi sem verð- laun dugðu. Aðalstuðningsaðili mótsins var Hvítlist er veitti ljölda verðlauna, einnig gaf Morgunblaðið verðlaun og kunn- um við því bestu þakkir fyrir sem við höldum golfmót og að þessu sinni voru þátttakendur 27. Eftir kaffiveitingar var kepp- endum raðað á teiga og er fáni var dreginn að húni í Miðdal hófst mótið kl. 11.30 undir öruggri stjóm gjaldkera Dalbúa. Miðdal- urinn skartaði sínu fegursta og keppendur léku við hvern sinn fingur í blíðskaparveðri. I mótslok var boðið upp á veitingar og tóku þátttakendur hraustlega við veit- ingum eftir skemmtilega keppni. Að þessu sinni var keppt um farandbikar FBM í þriðja sinn, og bikar fyrir fyrsta sæti með forgjöf. Postillon-bikarinn var veittur fyrir stuðninginn. Viðurkenningar og verðlaun hlutu: 1. verðlaun í kvennaflokki. Halla Svanþórs- dóttir, en fjórir keppendur voru að þessu sinni í kvennaflokki. Púttmeistari FBM varð Halldór Oddsson, með 26 pútt. 1. verðlaun með forgjöf og farandbikar FBM hlaut Jóhannes Ólafsson, með 68 högg, og Postillon-bikarinn, 1. verðlaun án forgjafar, fékk Halldór Oddsson, með 87 högg. Mjög ánægjulegt var hve margir létu sjá sig að þessu sinni í mótinu og má segja að hægur stígandi sé í þátttöku. Og að sjálfsögðu verður mót að ári um miðjan ágúst 1999. Stefansstvpkup 1. maí 1998 Hinn 1. maí 1990 varstyrknum úthlutað í fyrsta sinn samkvæmt reglugerð um Stefánsstyrk Menn- ingar- og fræðslusambands al- þýðu og Félags bókagerðarmanna en þar segir í 3. gr.: Styrkurinn skal veittur í þeim tilgangi að styðja einstakling, einstaklinga, félag eða samtök vegna viðfangs- efnis sem lýtur að fræðslustarfi launafólks, menntun og menning- arstarfi verkalýðshreyfingarinnar. • 1990 fékk Margrét Guðmunds- dóttir Stefánsstyrk íyrir dagbækur Elku Bjömsdóttur. • 1991 Þorbjöm A. Erlingsson, fyrir myndbandið Réttur ykkar. • 1992 Lúðrasveit Verkalýðsins, vegna afmælisrits. F.v. Sœmundur Arnason, Elín Guðmundsdóttir ekkja Stefáns Ögmundssonar og Karl Agúst Úlfsson styrkhafi. F.v. Bergþóra Ingólfsdóttir, Ari Skúlason, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Brynhildur Þórarinsdóttir. • 1993 Gylfi Gröndal fyrir safnrit ljóða um íslenska verka- lýðsbaráttu. • 1994 Iðnnemasamband íslands vegna útgáfu á Sögu samtakanna. • 1995 Helgi Haraldsson vegna samningar og útgáfu á bók um vinnuvemd. • 1996 Arelía E. Guðmundsdóttir vegna doktorsritgerðar um grund- vallarbreytingar á íslenskum vinnumarkaði. Á síðasta ári féll styrkveiting niður samkvæmt ósk stjómar MFA er taldi sér ekki fært að standa að úthlutun það ár vegna erfiðs fjárhags og óskaði jafn- framt eftir því að Stefánsstyrkur yrði lagður niður. Samkvæmt samkomulagi milli MFA og FBM var því Stefánsstyrkur veittur nú í síðasta sinn. Á árinu 1997 afhenti BSRB félaginu í tilefni 100 ára afmælis kr. 100 þús. til Stefánsstyrks og var styrkurinn í ár kr. 300 þús. Karl Ágúst Úlfsson hlaut styrkinn til að fullgera handrit að leikþætti um karlinn og fjölskylduna, sem ætlaður er til flutnings á vinnustöðum. Það er ánægjulegt að úthluta styrknum til leikritagerðar þar sem Stefán var mjög áhugasamur um að fræðslu- og menningar- starfið yrði unnið á meðal fólks- ins, gert lifandi á vinnustöðunum og var frumkvöðull að því að MFA beitti sér fyrir lifandi starfi á vinnustöðum. 8 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.