Prentarinn - 01.03.1998, Qupperneq 17

Prentarinn - 01.03.1998, Qupperneq 17
Ljósm.: Lárus Karl Ingason. setja einhveijar hömlur hvað þetta varðar, þá verður enginn vandi að fá þessa hluti gerða erlendis. Erlend fyrirtæki í kringum okkur velta ekkert fyrir sér fagréttind- um. Við erum orðin partur af þessum heimi og ekki lengur einangruð hér uppi á Islandi. Áður fyrr höfðu erlendar prentsmiðjur t.d. ekki íslensku stafina og í því fólst ákveðin vemdun. En í dag er allt slíkt fjarri lagi.“ Þorgeir bendir á í þessu sam- bandi að íslenskt fagfólk verði líka að sýna fram á að það geri betur en hinir ófaglærðu sem eru að ná vinnunni af því: „Því ef við ætlum að halda þessari vinnu inni í prentsmiðjunum og hjá fagfólk- inu verður fagfólkið líka að gjöra svo vel að gera betur en þeir ófag- lærðu eru að gera vítt og breitt um bæinn. Um það finnst mér málið fyrst og fremst snúast. Við verð- um að vera með fólk sem hefur yfirburða kunnáttu og þekkingu og ég held að það sé það besta sem við getum gert í því að halda þessu inni í prentfyrirtækjunum." Eru prentiðnaðarmenn deyj- andi stétt? „Þeir þurfa alls ekki að vera það,“ svarar Þorgeir. „En að mínu mati er nauðsynlegt að allir þættir vinnslunnar séu fyrir hendi, svo að þeir styðji hver annan, eins og það er héma í Odda. Auðvitað kemur þetta allt til með að breytast í framtíðinni, miklu minna verður af filmum, verkin munu fara beint á plötu eða inní prentvél úr tölvunum, en þá verð- ur náttúrlega hæfni fagfólksins á tölvunum ekki síður mikilvæg en í dag. Áfram verður þrykkt á pappír þrátt fyrir Netið og tölvur.“ Hvað vill Þorgeir sjá breytast í íslenskum prentiðnaði? „Eg held að til þess að geta staðist erlendum keppinautum snúning þurfum við að kunna að skipuleggja okkur á sama hátt og þeir. Menn labba ekki inní prent- fyrirtæki erlendis og krefjast þess að fá þjónustu eins og verið er að veita hér á mettíma. Þessi ógur- legi hraði hér heima hefur auðvit- að bitnað á rekstrarmöguleikum fyrirtækja sem geta engan veginn skipulagt sig og náð hagkvæmni í vinnubrögðum ef þeir em sífellt að henda inn og út úr vélum verk- efnum og láta vinna verkin á óeðlilegum tímum sólarhrings- ins,“ segir Þorgeir og er heitt í hamsi. „Menn reyna svo auðvitað að aðlaga sig þessum aðstæðum með vaktavinnu, því það er mjög algengt að það þurfi að redda hlutum hér „over night“. Hins vegar hef ég ekki mikla trú á að við getum breytt þessu mikið, við emm svo rosalegir skorpumenn, Islendingar, og þessi læti orðin samgróin íslensku samfélagi." PRENTARINN ■ 1 3

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.