Prentarinn - 01.03.1998, Qupperneq 20

Prentarinn - 01.03.1998, Qupperneq 20
A ð a Ifu ndur Abalfundur NCU var ab þessu sinni haldinn á Skagen í Danmörku 8.-11. júní 1998. Fulltrúar FBM voru Sæmundur Amason, Georg Páll Skúlason og túlkur var Magnús Einar Sigurðs- son. Formaður NGU, Finn Erik Thoresen frá Noregi, setti þingið. Sú breyting hafði orðið frá síðasta aðalfundi ritari NGU, Olav Boye er tók við ritarastarfi af Sture Bjömqvist, fór til starfa sem aðal- ritari IGF við fráfall Chris Pate og tók Björn Harald frá Noregi við sem ritari NGU. Þau mál er hæst bar á þinginu auk venjubundinna aðalfundarstarfa vom málefni IGF og EGF en síðar á árinu verða að- alfundir þessara samtaka. Einnig lá fyrir þinginu lagabreyting um að fækkað yrði í stjórn NGU þannig að í stað 5 stjórnarmanna yrðu 4 í stjóm. Kosin var sérstök uppstillingamefnd til að fjalla um og koma með tillögur um stjómarsæti og átti Georg Páll sæti í henni. Sérstakur gestur þingsins var aðalritari Alþjóðasambands bóka- gerðarmanna (IGF), Olav Boye, er skýrði frá stöðu mála hjá sam- bandinu og einnig því að á aðal- fundi IGF í október yrði gerð til- laga um að ganga til samstarfs við fjögur önnur alþjóðasambönd og stofna alheimssamtök undir heit- inu Union Network International - UNI. En á undanfömum mánuð- um hafa fjögur alþjóðasambönd, þ.e. Alþjóða fjarskiptasambandið (CI), Alþjóðasamband félaga í sjónvarpi, útvarpi, skrifstofum, ritara og tæknimanna (FIET), Alþjóðasamtök prentara (IGF) og Alþjóðasamband í fjölmiðlun og menningu (MEI) verið að hugleiða stofnun nýs alþjóðasam- bands þessara samtaka. Nokkrar mikilvægar ákvarðanir hafa verið teknar. Alþjóða íjarskiptasambandið studdi á aðalfundi sínum í ágúst '97 frumkvæði til að stofna ný alþjóðasamtök, þing EGF og stjórn IGF tóku álíka ákvörðun á aðalfundi í nóvember '97og MEI hefur lýst áhuga á að vera með. & Nordisk Grafisk U ni on 1998 Á fundi í des. '97 tóku full- trúar þessara fjögurra sambanda upp opna um- ræðu um þessi málefni. Til áframhaldandi vinnu hefur vinnuhópur, sem skipaður er af aðal- riturum og forsetum sam- bandanna, haldið fundi til að hefja umræðu um nýtt alþjóða- samband á nýrri öld. Þessi íjögur alþjóðasambönd eiga mjög margt sameiginlegt, þau eru öll í alþjóðasamstarfi upp- byggð á íjórum landsvæðum, hafa ítarlega virkni í pólitík, stöðu kvenna, starfi æskulýðs og eru sérhæfð í stjórnunarstörfum. Hugmyndin er að byggja upp og auka þessa þjónustu við aðildarfélög bæði svæðabundið og alþjóðlega með stofnun aðal- skrifstofu, skiptast á upplýsingum um tækni, vinna saman að stjóm- sýslu, samþættingu í menntun og á öðrum sviðum. Hin nýju samtök munu setja í forgang menntun og lýðræði á nýrri öld. Samstarf hefur þegar hafist. Stjómir CI og FIET hafa ákveðið að setja upp höfuðstöðvar í Sviss (Nyon) auk þess sem þau deila nú skrifstofu sameiginlega í Bmssel. IGF hefur einnig áhuga á sameiginlegri skrifstofu í Evrópu í samvinnu femra alþjóðasamtaka. CI og IGF hafa byrjað umræðu á ákveðnum landsvæðum. Þetta samstarf er byggt á samvinnu er hefur verið stofnað til á bæði ljár- hagslegum og tæknilegum gmnni. Stefnt er að því að hafa útlínur skýrar fljótlega til að aðilar geti fjallað um málin á aðalfundum sínum á þessu ári. IGF tekur mál- ið fyrir á alþjóðaráðstefnu sinni í október á þessu ári og stefnt er að því að hægt verði að stofna ný alþjóðasamtök í lok árs 1998. Síðustu árin hefur félögum 1 6 ■ PRENTARINN innan NGU fækkað en við inngöngu HK í Danmörku fjölg- aði þeim og nú em 94.422 félagar innan NGU. Flestir eru í Svíþjóð eða um 32.000 og fæstir í Færeyj- um eða 48. A starfsárinu hefur NGU staðið fyrir nokkrum ráð- stefnum, m.a. um sveigjanlegan vinnutíma og fjölmiðlun fram- tíðar, einnig hefur verið nokkurt starf í æskulýðsmálum á milli NGU og GPMU (enska félagið). Vinnuhópur hefur verið að störf- um á starfsárinu og fyrir þinginu lá skýrsla vinnuhópsins og þar sagði meðal annars: I unga fólk- inu er falin framtíð félaganna og það er augljóst að NGU hefur unnið vel að því að virkja yngri meðlimi félaganna til starfa, á næsta ári verður æskulýðsráð- stefna og við munum virkja unga fólkið til starfa með því að nota Intemetið. Þeim félagsmönnum FBM, sem hafa hug á því að vita meira um þetta starf, er bent á slóðina: www.vfe.interbase.co.uk. NGU hefur alla tíð stutt starf verkalýðsfélaga í öðrum löndum með endurmenntun og uppbygg- ingu félaga og nú eru í gangi verkefni í Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Ingve Erikson gjaldkeri NGU gerði grein fyrir fjárhagnum og er hann það góður að ekki verður innheimt félagsgjald fyrir árið 1999. Ingve lét af störfum sökum aldurs í stjóm og voru honum þökkuð góð störf innan NGU og færði FBM honum smá gjöf sem þakklætisvott. Laga- breyting um að fækka í stjóm NGU var samþykkt gegn atkvæði FBM og var þá gengið til stjómar- kosninga og var tillaga uppstill- ingarnefndar samþ. Stjóm NGU til næstu fjögurra ára er þannig skipuð: Formaður Finn Erik Thoresen frá Noregi, varaformað- ur Tom Durbing frá Danmörku og meðstjómendur þeir Malte Eriks- son frá Svíþjóð og Pentti Levo frá Finnlandi. I varastjóm voru kosnir þeir Roger Anderssen, Ole Kidmose, Pekka Lathinen og Jan Österlind. Þinginu lauk 11. júní og var boðað til aðalfund- ar að ári í Finnlandi.

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.