Prentarinn - 01.03.1998, Blaðsíða 27

Prentarinn - 01.03.1998, Blaðsíða 27
af hundraði bama innan tveggja ára aldurs. Ég fékk þessa veiki og dró svo af mér, að búist var við að ég lifði ekki af. Svo var það seinnipart dags, er Bernskubrek Ekki man ég mikið frá frum- bemsku minni í Winnipeg. Þó man ég óljóst eftir að hafa leikið mér á sleða með bömum í mikl- nema vegna gjaldsins sem mér var gert að greiða fyrir að sauma nokkur spor í tána, en það var jafnvirði hálfs annars dagsverks í hörku stritvinnu skógarhöggsins. því kem ég síðar,“ svo brosti hann íbygginn á svipinn. „Þegar við höfðum lokið öllum undir- búningi var komið hörkufrost. Gátum við Guðmundur þá lagt af faðir minn kom heim frá vinnu, að hann leit niður í vögguna, þar sem ég lá, og sá sér til skelfingar að ég var dauða nær. Hann hugs- aði með sér, að eitthvað yrði hann að gera, þreif pelann sem lá við hlið mér, fór fram í eldhús, opnaði þar koníaksflösku og lét dijúpa sem svaraði einni teskeið saman við mjólkina. Taldi hann víst, að ef þetta hefði ekki áhrif þá væri ég dauður hvort sem væri. Ég saug þetta góðgæti í mig og hélt því niðri. Sá faðir minn þá ekki betur en að ég væri orðinn rall-hálfur og farinn að hjama við. Hann endur- tók tilraunina þrisvar sinnum og eftir nokkra daga hafði ég náð fullri heilsu. Ég var skírður af góðvini föður míns, séra Ragnari Kvaran, sem var þá sóknarprestur í Winni- peg. Hann fluttist síðar til íslands. Leiklistin var eitt af meginhugðar- efnum hans og eftir að heim kom starfaði hann á vegum Leikfélags Reykjavíkur, bæði sent leikari og leikstjóri. Lék hann þar mörg hlutverk, þar á meðal Skugga- Svein í leikriti Matthíasar Jochumssonar: Útilegumönnun- um. Ég sá hann í því hlutverki í Iðnó 1935, og eftir sextíu ár stendur hann enn ljóslifandi fyrir hugskotssjónum mínum, og fallega baríton-röddin hans hljóm- ar enn fyrir eymm mér. En því miður fengu íslendingar ekki að njóta hæfileika hans nema örfá ár, því hann lést á besta aldri, aðeins rúmlega fertugur. um kulda. Faðir minn gekk þá að ýmsum störfum, en aðal „hobby“ hans var leiklistin. Gæti ég trúað að vinátta hans við Ragnar Kvaran hafi átt rót sína að rekja til þessa sameiginlega áhugamáls þeirra, en báðir munu þeir hafa lagt leið sína til Gimli, sem var aðal menningar- og skemmtistað- ur Vestur-Islendinga á þeim tíma. Vorið 1922 fluttumst við í skóglendi nálægt Winnipegvatni, og man ég eftir bústaðnum sem átti eftir að vera heimkynni okkar um sumarið, en það var bjálka- kofí. Hann var afgirtur, og inni var hann einn salur, óinnréttaður, berir bjálkamir blöstu við mér. Ég minntist á þetta við móður mína einum fimm ámm síðar og var hún mjög undrandi á því að ég skyldi muna eftir þessu, frá því ég var aðeins tveggja ára gamall, og spurði mig um krakk- ana sem ég hafði leikið mér við, en eftir þeim mundi ég ekki. Hins vegar mundi ég óljóst eftir því þegar pabbi var að fara til vinnu. Hann kvaddi okkur börnin með kossi og klappaði á kollinn á okkur. Eftir að faðir minn kom heim sagði hann að þetta væri rétt munað, og bætti við: „Það var einn morgun að ég kom haltrandi heim, ég hafði af slysni misst skógarhöggsöxina ofan á löppina á mér, nieð þeim afleiðingum að stóratáin á vinstra fæti skaddaðist svo, að ég varð að leita læknis. Ekki væri þetta í frásögur færandi, En ósköp voru stóm augun ykkar sorgmædd, þegar þið vissuð að pabbi hafði meitt sig.“ Pabbi sagði mér einnig frá því, að um haustið hefði hann hætt störfum, enda verið meinilla við alla erfiðisvinnu, og fluttum við þá aftur í borgina. Nú varð sniáhlé á frásögn hans, en svo spurði hann: „Manstu eftir nokkru fleira frá þessum tíma?“ „Nei,“ svaraði ég. „Þá væri ekki úr vegi að ég segði þér framhald- ið: Um haustið var mikil eftir- spum eftir fiski og verð því í há- marki. Þama sá ég mér leik á borði, til að hagnast, og ákvað því, eftir að hafa haft samband við reyndan fiskimann, Guð- mund Jóhannsson að nafni, að við í félagi færum til veiða um veturinn út á Winnipegvatn, strax og það legði, og stunduðum þar dorgveiðar gegnum ísinn um veturinn. Við notuðum tímann, meðan við biðum þess að ísinn yrði mannheldur, til að smíða stóra sleða, urðum okkur úti um veiðarfæri og annan búnað og öfluðum okkur matfanga til dval- ar á ísnum. Einnig leituðum við allra hugsanlegra upplýsinga um hvemig við ættum að bera okkur að ef eitthvert óhapp henti okkur. Já, sonur sæll!“ Hann drap titt- linga og snússaði sig nokkrum sinnum, sem var hluti þeirra kækja sem hann hafði vanið sig á allt frá bemsku, en hélt svo áfram: „Eitt var það sem við tók- um ekki með í reikninginn, en að stað út á vatnið með tvo stóra fullhlaðna sleða í eftirdragi. Við höfðum mannbrodda á fótum og broddstaf í hendi. Ferðin tók um það bil viku og vorum við þá komnir um hundrað kílómetra frá öllum mannabyggðum. Við höfð- unt að sjálfsögðu litlar upplýs- ingar um færðina á vatninu, en vfða hafði snjóað. En það kom lítt að sök vegna kuldans. Geng- um við langtímum saman á hjami, sem var tiltölulega þægi- legt. Þegar komið var í áfanga- stað hlóðum við vistlegt snjóhús. Guðmundur var dugnaðarmaður og tókst okkur Ujótt að koma öll- um nauðsynjum fyrir. Við hvíld- um okkur í einn sólarhring eftir erfíði ferðalagsins, en tókum svo til við veiðarnar, sem gengu með ágætunt. Því miður hafði ég ekki kynnt mér vinnuaðferðir umfram það, að bora skyldi göt á ísinn, nota net en dorga með fæmm meðan beðið væri árang- urs af netalögnunum." Eitt var það sem hann minntist sérstaklega á, og það voru ullar- vettlingar. Hvor um sig þurfti tuttugu pör á degi hverjum, því vettlingamir frnsu á höndum þeirra á mjög skömmum tíma. Vettlingunum var síðan safnað saman og þeir þurrkaðir í snjó- húsinu yfir nóttina sem bendir til þess að tiltölulega hlýtt hafí verið í híbýlum þeirra. Frh. í nœsta blaði PRENTARINN ■ 2 3

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.