Prentarinn - 01.10.2001, Side 20

Prentarinn - 01.10.2001, Side 20
Frá vinstri: Guðjón Sigurðsson, Jón Þ. Hilmarsson, Baldur Gíslason og Sœmundur Árnason Miðdalsmótið, golfmót Félags bókagerðarmanna, fór fram á golfvelli Dalbúa í Miðdal 11. ágúst. Þetta er í sjötta sinn sem við höldum golfmót í Miðdal og að þessu sinni voru 36 keppendur. Eftir kaffiveitingar var kepp- endum raðað á teiga og hófst mótið kl. 11.00 undir öruggri stjórn formanns Dalbúa, Jóns Þ. Hilmarssonar. Um morguninn var þessi fína rigning eins og stund- um kemur fyrir í Miðdal og gerði það að verkum að nokkrir sem höfðu skráð sig heltust úr lestinni, en eins og oft áður skal spyrja að leikslokum: á þriðja teig birti upp og keppendur gátu lagt til hliðar regnhlífar og regngalla og spiluðu sitt golf í sól og blíðu. í mótslok var boðið upp á léttar veitingar og tóku þátttakendur hraustlega við eftir skemmtilegan keppnisdag. Keppt var um farandbikar FBM í sjötta sinn ásamt eignarbikar íyrir fyrsta sæti með forgjöf. Postillon-bikarinn var veittur fyrir fyrsta sæti án forgjafar, eignarbik- ar fyrir fæst pútt og eignarbikar í kvennaflokki. Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir að vera næst holu á 5. og 8. braut og fyrir lengsta teighögg á 3. braut. Aðal- stuðningsaðili mótsins var Hvít- list er veitti fjölda verðlauna. Einnig veittu Morgunblaðið og Hjá Guðjónó verðlaun. Þá gaf Oddi öllum þátttakendum teig- gjöf. Færum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn. 1. verðlaun með forgjöf og Far- andbikar FBM hlaut Albert Elís- son með 71 högg, i öðru sæti varð Snorri Pálmason með 72 högg og í þriðja sæti varð Krist- ján Jónasson með 72 högg. Postillon-bikarinn, 1. verðlaun án forgjafar, vann Albert Elísson með 74 högg, í öðru sæti varð Ólafur Stolzenwald með 81 högg og i þriðja sæti varð Friðrik Ivar Bergsteinsson með 86 högg. Björk Guðmundsdóttir. Kvennabikarinn vann Björk Guð- mundsdóttir á 86 höggum með forgjöf, í öðru sæti varð Kristín Brynjólfsdóttir með 87 högg og í þriðja sæti Guðrún Eyberg með 106 högg. Púttmeistari varð að þessu sinni Baldur Gíslason með 25 pútt. Albert Elísson var með lengsta teighögg á 3. braut og næst holu á 5. braut var Hinrik Stefánsson og á 8. braut Guð- mundur Jóhannsson. Viðurkenn- ingu fyrir bestu vallarnýtingu fengu þau Þorbjörg Valgeirsdóttir og Gunnar Guðjónsson. Auk þess var dregið úr skorkortum. Þannig fengu allir keppendur viðurkenn- ingu fyrir þátttöku. Sjáumst á sjö- unda Miðdalsmótinu um miðjan ágúst 2002. Skírn í Miðdal Skírn fór fram þann 12. ágúst 2001 í bústað nr. 1 í Miðdal. Prest- ur var séra Kristinn Friðbjörnsson og fór athöfnin fram í blíðskapar- veðri á verönd bústaðarins. Litla stúlkan sem var skírð hlaut nafnið Sólrún Ása og er hún dótturdóttir Gunnars Guðjónssonar prentara í Kassagerðinni. Hann vill koma á framfæri þakklæti og lýsa ánægju sinni með þessa frábæru aðstöðu sem bókagerðarmenn eiga í Mið- dal. Eftirfarandi grein birtist í Morgunblaðinu 15. ágúst 2001. Fjölskylduhátíð í Miödal Undanfarna daga, nú eftir sl. verslunar- mannahelgi, hefur fátt verið meira í umræðu íjölmiðla en svall og svínarí gesta nokkurra útihátíða, með lýsingu í máli og myndum af tilheyrandi hörmungum, barsmíðum, kynferðisafbrotum og eiturnotkun æsku þessa lands. Vissulega ástand er veldur áhyggjum alls almennings. Hér vill undirritaður fá að leggja orð í belg og benda á að sem betur fer fara fram útihátíðir, sem eru andstæð- ur fyrrgreindra útihátíða. I Miðdal í Laugardal hefur Félag bókagerðar- manna komið upp glæsilegu tjald- stæði í fallegu umhverfi. Tjald- stæði þetta er einkar vel búið, varsla, hreinlætisaðstaða, leiktæki, og að- koma öll til einstakrar fyrirmyndar. Um áratugaskeið hafa prentarar haldið hátíð hér á þessu svæði, fyrir íjölskyldur sínar, ættmenni, vini og velunnara og hefur ávallt verið vandað til. Fjöl- breytt barnaskemmtun þar sem íjölskyldurnar sameinast og skemmta sér saman, andlitsmálun, þrautir, hestamennska, að ógleymdum blöðrum og nammi. Varðeldur að kveldi þar sem ungir og aldnir sameinast og taka lagið og góð stemmning í fyrirrúmi. Hátíðin var einkar fjölsótt að þessu sinni og var nú sem fyrr til fyr- irmyndar og stjórnendum til sóma. Undirritaður liefur sem gestur margoft tekið þátt í þessum liátíð- arhöldum og vill fyrir sína hönd og ljölskyldu sinnar fá að þakka það starf, sem stjórnarmenn Miðdalsfélagsins inna af hendi. Varla er hægt að gera betur. Einar Gíslason, Hjallabraut 88, Hafnarfirði. 20 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.