Verktækni - 01.04.2004, Blaðsíða 7

Verktækni - 01.04.2004, Blaðsíða 7
Þjónusta — Skýrr er fjölbrevtt, hagkvæm og örugg internet skýrr Internetþjónusta Skýrr gerir fyrirtækjum kleift að spara tíma og fyrir- höfn og ná niður kostnaði við upplýsingatækni. Þjónusta Skýrr er í hæsta gæðaflokki og uppfyllir ítrustu kröfur atvinnulífsins um afköst, áreiðanleika, þjónustu og öryggi. Internetþjónusta Skýrr er ein sú öflugasta hér á landi og starfsmenn hennar eru þrautreyndir og hámenntaðir. Þeir sem tengjast Skýrr njóta öryggis bak við eldvegg og hafa að- gang að þjónustuveri allan sólarhringinn. Starfsmenn fyrirtækja hafa einnig möguleika á að tengjast staðarneti fyrirtækis sins með VPN- þjónustu. Skýrr býður gagnaflutningsleiðir og nettengingar af öllum stærðum og gerðum. Internetþjónusta Skýrr býður vírusvarnir, VeriSign-lykil, eldvegg, hýsingu léna og vefja, pósthólf, vefpóst, vefposa, vefverslun, iPass- þjónustu, Internet-tengingar, sólarhringsþjónustu, öryggisafritun, vöktun kerfa og hvers konar ráðgjöf. Skýrr er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði upplýsingatækni, með 200 starfsmenn og liðlega 2.200 viðskiptavini. Skýrr býður fjöl- breyttar lausnir og þjónustu sem hentar margvíslegum þörfum kröfuharðra viðskiptavina. Skýrr er vottað samkvæmt alþjóðlega gæðastaðlinum ISO 9001. Öruggt gagnahólf Öruggt gagnahólf Skýrr gerir notendum kleift að nálgast skjöl og vinnugögn gegnum Netið. Hólfið er óháð staðsetningu notenda, hvort heldur heima, við vinnu eða á ferð og flugi. Með öruggu gagnahólfi opnast fyrirtækjum og einstaklingum kostur á að koma hvers konar gögnum í örugga geymslu; rafrænt bankahólf. Hólfið má einnig nota til að miðla gögnum á Internetinu. Viðmótið er einfalt og hentugt. Örugg aðgangsstýring gagnahólfsins gerir kleift að stilla hólfið þannig að það sé ýmist læst, opið vissum viðskiptavinum, hópum eða jafnvel öllum. • Auðvelt að koma stórum skrám milli aðila • Hægt að geyma mikið magn af gögnum • Hópvinnsla með öflugri breytingastjórnun • Traust gagnageymsla með fullkominni afritun • Þægilegt aðgengi að skrám með FTP-biðlara • Öruggt tengilag (SSL) fyrir viðkvæm gögn Sk^rr

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.