Verktækni - 01.04.2004, Blaðsíða 16
Nýr staðall
ÍST 130 Upplýsingatækni
Efnisyfirlit IST 130
4.21 Númer á bankareikningum
4.22 íslenskt lyklaborð
4.23 Samskipti manns og vélar
4.24 Pappírssnið
4.25 Venjur um prentfrágang
í árdaga tölvuvæðingarinnar var vélbúnað-
ur ekki til þess fallinn að mæta mismun-
andi kröfum þjóða um ýmis atriði í fram-
setningu ritaðs máls, t.d. birtingu dagsetn-
inga. Þá var oft ekki um annað að ræða en
beygja sig undir þær takmarkanir sem tölv-
umar settu eða reyna á einhvem hátt að
laga tölvumar að þeim kröfum sem áttu við
hverju sinni. Það gat falið í sér ærin til-
kostnað. Stórstígar framfarir í tölvutækni
hafa létt mönnum lífið í þessum efnum. Nú
er ekkert tiltökumál að velja land í stýri-
kerfum og fá þannig upp stafasett er hæfir
íslensku eða hvaða öðm tungumáli sem
vera kann. Til þess að hönnuðir íslenskra
hugbúnðarkerfa, notendur og aðrir geti
saman sett fram hönnunarforsendur er
nauðsynlegt að hafa íslenskar kröfur í upp-
lýsingatækni á hreinu. Þess vegna hefur
Staðlaráð íslands gefið út staðalinn ÍST
130:2004 Upplýsingatækni - íslenskar kröf-
ur. Þótt hér sé tekið dæmi af tölvum og
hugbúnaði, þá nær upplýsingatækni yfir
miklu víðara svið. Erlend viðskipti fela í sér
að skipst er á upplýsingum, þótt þær séu
ekki endilega á tölvutæku sniði. í slíkum
tilfellum er t.d. mikilvægt að útlendingar
sem eiga í viðskiptum við íslendinga viti að
09.06.2004 þýðir níundi júní 2004 en ekki
sjötti september. Staðallinn er að sjálfsögðu
bæði á íslensku og ensku.
ÍST 130 nær til fjölmargra atriða sem sam-
mæli náðist um, svo sem stafrófs, röðunar-
reglna og hvernig skuli skrá og birta tölur,
dagsetningar og tíma. Efnistök staðalsins
miðast við ISO/IEC 15897:1999 þó að til-
högun sé eilítið önnur.
1 Umfang
2 Bindandi tilvísanir
3 Skilgreiningar
4 Kröfur - atriði til stöðlunar
4.1 íslenskur tölvuorðaforði
4.2 Stafróf og stafatöflur
4.3 Reglur um röðun
4.4 Umritanir
4.5 Eiginleikar bókstafa
4.6 Sérstafir
4.7 Útlit stafa
4.8 Innsláttur stafa
4.9 Mannanöfn
4.10 Beyging
4.11 Orðskipting
4.12 Stafsetning
4.13 Tölur, raðtölur og mælingakerfi
4.14 Ritun fjárhæða
4.15 Ritun dagsetninga og tíma
4.16 Kótar fyrir land og tungu
4.17 Símanúmer
4.18 Utanáskriftir
4.19 Auðkenning einstaklinga og
fyrir tækja
4.20 Tölvupóstföng
Viðaukar
A Ritaskrá
B íslenskir stafir, fornstafir og tilvitnun-
armerki og ISO/IEC 10646-1
C íslenskir fomstafir
D Tengsl milli ÍST 130:2004, FS
130:1997 og ISO/IEC 15897:1999
Helstu breytingar á IST
130:2004 frá forstaðlinum
Staðalinn var fyrst gefin út sem forstaðall árið
1997, eftir mjög umfangsmikla grunnvinnu.
Uppbygging hefur verið einfölduð og köflum
fækkað og þeir sameinaðir. Skerpt er á hlut-
verki staðalsins sem kröfustaðals. Kröfur
varðandi dagsetningar hafa verið einfaldaðar.
Reglum um röðun hefur verið breytt þannig
að nú raðast litlir stafir á undan stórum á öðru
raðþrepi. Bætt er við tilvísun í ETSI normskjal
um íslenskt 12 stafa lyklaborð fyrir farsúna.
Upplýsingum um leiðbeinandi reglur um
umritun úr tælensku er bætt við. Ennfremur
er fjallað í staðlinum um venjur við prentfrá-
gang. Umfjöllun um íslenska fomstafi er nú
að finna í viðauka í stað þess að vera áður í
meginmáli staðalsins.
Nánari upplýsingar fást hjá Staðlaráði
Islands. Hægt er að panta staðalinn ÍST
130 á vef Staðlaráðs, www.stadlar.is
Sveinn V. Ólafsson, verkfræðingur hjá Staðlaráði íslands.
Mikið úrval þrýstijafnara,
mótþrýstijafnara og þrýstiminnkara
TfR
Stærðir DN 15 - DN 250 og k,, allt að 400 m3/klst.
Danfoss er leiöandi í framleiðslu þrýstistilla
Danfoss hf
Skútuvogi 6 104Reykjavík
Sími 510 4100 - www.danfoss.is