Verktækni - 01.04.2004, Qupperneq 14

Verktækni - 01.04.2004, Qupperneq 14
Aí sfjórnðrb<>r4i SV 14 Vísinda- og starfs- menntunarsjóður hjá Ríki Næsti fundur verður haldinn í lok júní. Sjóðfélagar eru beðnir um að skila um- sóknum fyrir þann tíma. Umsóknar- eyðublöð má nálgast á heimasíðu SV: http://www.sv.is/. Sjóðurinn er mjög sterkur og eru því sjóðfélagar enn og aftur hvattir til að sækja um styrki. Hægt er að sækja um styrki sem nema allt að kr. 390.000. Árið 2000 var aftur farið að veita styrki til tölvukaupa. Skilyrt er að minnst fjögur ár líði á milli styrkveitinga til tölvukaupa. Upphæð tölvustyrkja eru kr.130.000. Styrkir eru veittir til að sækja námskeið og ráðstefnur, til kaupa á bók- um, tölvum o.fl. Starfsmenntunar- sjóður hjá Reykjavíkurborg og sveitarfélögum Næsti fundur verður haldinn í lok júní. Sjóðfélagar eru beðnir að skila umsóknum fyrir þann tíma. Upphæð hámarksstyrkja er kr. 390.000. Réttindi aukast um kr. 130.000 á ári sé ekki greiddur styrkur. Sjóðfélagar eru hvattir til að sækja um. Vakin er athygli á því að þeir verkfræð- ingar sem starfa hjá sveitarfélögum sem gefa Launanefnd sveitarfélaga umboð til samninga við SV eiga aðild að sjóðnum. Umsóknareyðublöð má nálgast á heima- síðu SV: http://www.sv.is/. Styrkir eru veittir til að sækja námskeið og ráðstefnur, til kaupa á bókum, tölvum o.fl. Upphæð tölvustyrkja er kr.130.000. Aðalfundur Aðalfundur Stéttarfélags verkfræðinga var haldinn föstudaginn 30. apríl s.l. Ársskýrsla félagsins er birt á heimasíðu SV: http://www.sv.is Ný stjórn SV Sú breyting varð á stjóm SV að Jóhanna Harpa Ámadóttir tók sæti í stjórninni en sv Magnús Gíslason fór úr stjórn. Nýr formað- ur SV er Hulda Guðmundsdóttir. Aðrir í stjóm SV em: Sveinbjörg Sveinsdóttir, vara- formaður, Amar Gestsson, fráfarandi for- maður, Sigurður Guttormsson, Ásbert K. Ingólfsson, Baldur Grétarsson og Eysteinn Einarsson og Kristján M. Ólafsson. Fram- kvæmdastjóri SV er Árni Bjöm Bjömsson. Námskeið í samningatækni Stéttarfélag verkfræðinga býður félagsmönnum stutt og hnitmiðað námskeið í samninga- tækni. Einu sliku er nýlokið en mjög mikil ánægja er með þessi námskeið meðal þátttak- enda. Leiðbeinandi er Þuríður Magnúsdóttir. Næsta námskeið verður haldið um leið og næg þátttaka næst. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við skrifstofu SV til að skrá sig á námskeiðið. Tölvupóstfangið er: sv@sv.is og sími: 568-9986. Frá 0rlofssjóói SV OSV sumar 2004 Nú er sumarúthlutun að ijúka en alls bárust tæplega 140 umsóknir. Sem fyrr er úthlutunarhlutfall mjög hátt og mun hærra en hjá sambærilegum sjóðum. bað er einkar ánægjulegt og er starfsemin í miklum blóma. í ár býður Orlofssjóðurinn nýjan, mjög vel búinn bústað að Kalastöðum í Hvalfirði, tvo bústaði OSV í I Iraunborgum í Grímsnesi, raðhús að Bifröst í Borgarfirði, ibúð í Súðavík, tvær íbúðir á Akureyri, bústað að Hrísum í Eyjafirði, sum- arhús á Héraði, bústað við Kirkju- bæjarklaustur, leigu á tjaldvagni og gistingu á Edduhótelum. Bækling- inn með gististöðum má skoða á pdf-formi á heimasíðu SV: http://www.sv.is/ Haust og vetrarleiga OSV 2004/2005 Þegar er farið að taka við pöntun- um í bústaði OSV í Hraunborgum haust og vetur 2004/2005. Bústaðir SV í Hraunborgum í Grímsnesi hafa verið mjög eftir- sóttir og nánast allar helgar nýttar. Tekið skal fram að vetrarleiga reiknast ekki til stigafrádráttar við sumarúthlutun. Bústaðirnir sem enj mjög vel búnir eru til leigu frá finimtudegi til fimmtudags (á sumrin frá föstu- degi til föstudags). Ekki er um sér- stök umsóknareyðublöð að ræða á veturna en áhugasamir eru beðnir að snúa sér beint til skrifstofu SV. Tölvupóstfang: margret@sv.is og sími: 568-9986. Leiga: Kr. 10.000.-/viku íyrir sjóðsfélaga í Orlofssjóði SV Kr. 15.000.-/viku fyrir lelags- menn SV sem ekki eru félagar í Orlofssjóði SV. Uthlutunarreglur eai þær að sá sem fyrstur sækir um viku fær hana, greiði hann leigugjaldið innan þriggja daga eftir úthlutun. Vegna mikillar eftirspurnar geta félagar í SV sem ekki er greitt fyrir í Orlofssjóðinn ckki fengið út- hlutað helgum nema með viku fyrirvara.

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.