Verktækni - 01.04.2004, Side 15
Verktækni 4.tb 1 2004
Ályktun MVFÍ um gæða-
kröfur verkfræðimenntunar
Þekking og kunnátta verkfræðinga hefur
verið hornsteinn tækniframfara í landinu
undanfama áratugi. Almenningur hefur
getað reitt sig á og treyst þeirra faglegu
vinnubrögðum. Gmndvöllur þessa er öflug
menntun þar sem vemlegar kröfur em
gerðar til nemanda um að tileinka sér til-
tekna færni og þekkingu.
Menntamálanefnd Verkfræðingafélags ís-
lands (MVFI) hefur lengi staðið vörð um að
þessi þekking og færni sé til staðar. Nefndin
hefur verið umsagnaraðili iðnaðarráðuneyt-
isins um hvort einstaklingar séu til þess
hæfir að mega bera titilinn verkfræðingur.
Matskröfurnar em opinberar og gegnsæjar
og þar kemur m.a. fram mikilvægi þess að
vel sé vandað til undirstöðu námsins.
Nauðsynlegt er að meta hvort skólar hér
á landi sem bjóða upp á nám í verkfræði
eða ætla að bjóða upp á slíkt nám standist
þær kröfur sem gera verður til verkfræði-
náms. Slíkt mat er í samræmi við stefnu
Menntamálaráðuneytisins um gæðamat í
skólastarfi og mun einnig tryggja að nem-
endur sem stunda slíkt nám fái greiða inn-
göngu í framhaldsnám við góða verkfræði-
skóla hvar sem er í heiminum. Ennfremur
geta nemendur verið vissir um að þeir fái
heimild til að kalla sig verkfræðing að
loknu meistaraprófi í verkfræði sem tekið
er að öllu leyti eða að hluta til við þessa
skóla og þá að hluta til við aðra viður-
kennda skóla.
MVFÍ leggur því eindregið til að nám
við alla skóla sem hafa eða fá heimild
til að kenna verkfræði til B.Sc. prófs hér
á landi verði tekið út og metið af alþjóð-
legum viðurkenndum vottunaraðila.
Heppilegast er að það sé hin virta banda-
ríska stofnun ABET (Accredition Board
ofTechnical Education) sem annist slika
úttekt. Stofiíunin hefur áður gert sltka út-
tekt hérlendis og njóta úttektir hennar
virðingar um allan heim.
Alþjóðleg úttekt er ekki aðeins mikilvæg
fyrir íslendinga til að viðhalda kröfum til
hins lögvemdaða starfsheitis verkfræðing-
ur heldur er hún mikilvæg til að íslensk
verkfræðimenntun og íslenskir verkfræð-
ingar njóti trausts á alþjóða vettvangi og til
að námið hérlendis sé samkeppnishæft við
nám í erlendum verkfræðiskólum.
Byrjað að bora...
Fyrsti risaborinn af þremur sem notaðir
verða við aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkj-
unar er byrjaður að bora í Glúmstaðadal.
Borarnir þrír verða notaðir til að heilbora
um 50 kílómetra af aðrennslisgöngunum.
Verið er að setja saman bor 2 við Axará en
síðasti borinn kemur til landsins fyrir jól og
verður hann settur saman við aðgöng 1 á
Teigsbjargi. Þess má geta að hver bor kost-
ar urn 1,2 milljarða króna.
Flver færa (e. stroke) er 1,8 metrar. Bor-
mn er skorðaður með tjökkum út í ganga-
veggina og látinn bora eina færu. Hann
siðan fluttur fram, skorðaður á nýjan leik
og næsta færa tekin. Lengd hverrar bor-
samstæðu er 120 metrar. Unnt er að vinna
með og út frá henni að öllum verkþáttum
sem tengjast gangagerðinni: heilborun
ganga í stafni, flutningi efnis út úr göng-
unum, borun könnunarhola í bergið
framundan og fyrir ofan vinnusvæðið, þétt-
mgu bergs til að fyrirbyggja leka og styrk-
mgu bergs með sprautusteypu, netum og
Borhausinn er 7,4 metrar í þvermál.
Ljósm. Landsvirkjun/Hrönn Hjálmarsdóttir.
stálfleinum. Stjórnandi borsins fylgist með
öllu sem gerist á tölvuskjám og myndavél-
um, allt frá borhausnum fremst til enda
færibands aftast. Matsalur og verkstæðis-
eining eru hluti af samstæðunni. Þvermál
borhaussins er 7,4 metrar.
A heimasíðu Kárahnjúkavirkjunar
(www.karahnjukar.is) eru upplýsingar um
framgang verksins.
Auðveldar
stýringar
og mælingar
Nýttu þér þekkingu
National
Instruments
og notaðu
FieldPoint
lausnir
Mæla má hitastig,
spennu og strauma,
og gefa stjórnmerki
FieldPoint er mjög
hentugt til að mæla
hitastig í frysti- og
kælikerfum og til
stjórnunar í
hússtjórnarkerfum.
Auðvelt að setja
upp og nota
Nákvæmt og áreiðanlegt
A::íV ../„ÚLA
www.vista.is
B
1/ISM
Verkfræðistofan Vista
sími: 587 8889
^7NATIONAL
p INSTRUMENTS
www.ni.com
O 2002 National Instrumanta Corpotatkm. AN nghta rasatvad Product and company
namas listad ara tradarnarka or trada namai ol tharr raspactiva companias