Verktækni - 01.04.2004, Síða 18
Kynning
Fjármögnun tækja fyrir verkfræðistofur
- hægkvæmni og þægindi eignaleigu
í gegnum tíðina hefur Lýsing átt ötulan
þátt í fjármögnun á ýmsum vélum, tækj-
um og bifreiðum fyrir fyrirtæki úr ýmsum
geirum atvinnulífsins. Fyrirtækið hefur
starfað í tæp 18 ár og hefur á þeim tíma
öðlast mikla þekkingu á fjármögnun at-
vinnutækja með eignaleigusamningum.
Lýsing er stærsta eignaleigufyrirtækið á
markaðnum í dag og er leiðandi fyrirtæki í
fjármögnun með eignaleigusamningum.
Frá upphafi hafa margar verkfræðistofur
nýtt sér þjónustu Lýsingar og hefur fyrir-
tækið komið að fjarmögnun á ýmsum
tækjabúnaði þeim tengdum. Lýsing býður
fjórar mismunandi gerðir fjármögnunar,
þ.e. fjármögnunarieigu, kaupleigu, rekstr-
arleigu og jafngreiðslulán, allt í takt við
þarfir hvers viðskiptavinar.
Hvað er fjártnagnað?
Lýsing getur komið að fjármögnun á flest
öllum atvinnutækjum fyrir verkfræðistofur.
Má þar nefna ljósritunarvélar, prentvélar,
tölvubúnað, landmælingatæki og jafnvel
hugbúnað. Einnig hafa margar verkfræði-
stofur nýtt sér rekstrarleigu á bifreiðum,
enda er það mjög hagkvæmt og þægilegt
form fjármögnunar. Möguleikarnir eru
óþrjótandi og eru ráðgjafar Lýsingar sér-
fræðingar í því að sníða fjármögnunina að
eðli fjárfestingarinnar hverju sinni. Auk
þess að fjármagna atvinnutæki fjármagnar
Lýsing einnig atvinnuhúsnæði með fjár-
mögnunarleigusamningum sem gerðir eru
til 10-12 ára í senn.
Afhverju eignaleiga?
Eignaleiga (e. leasing) er í raun samheiti yfir
þær þrjár tegundir leigusamninga sem áður
voru taldir upp. í eðli sínu eru samningam-
ir eins upp byggðir, þ.e. viðkomandi tæki er
í eigu Lýsingar en viðskiptavinur leigir það í
ákveðinn tíma og hefur full umráð yfir tæk-
inu á samningstíma. Munurinn liggur í því
hvað gerist í lok samnings sem er misjafnt
eftir tegundum samninga. í fjármögnunar-
leigu er tækið leigt í ákveðinn tíma, en í lok
samnings hefur kaupandinn val um að
greiða ákveðið lokagjald og eignast tækið,
eða Ieigja það áfram í óákveðinn tíma.
Þessu er öfugt farið í kaupleigu, þar sem
kaupandinn hefur skilyrt sig til að kaupa
tækið á fyrirfram ákveðnu verði við lok
samningstíma. Ef tækið er hinsvegar fjár-
magnað með rekstrarleigu er því skilað til
seljanda í lok samnings og viðskiptavinur er
laus allra mála. Rekstrarleigusamningar em
ennþá nær eingöngu gerðir um bifreiðar.
Helstu kostir eignaleigu em eftirfarandi:
- Hagkvæmni.
Eignaleigusamningar em ekki stimpil-
gjaldskyldir og því hagkvæmari en til
dæmis hefðbundin fjárfestingalán.
Þrír skólar hljóta viðurkenningu
Hagsmunafélag um eflingu verk- og
tæknimenntunar hefur á þessu vori
heiðrað þrjá skóla fyrir góðan árangur í
kennslu raungreina: Hlíðaskóla, Landa-
kotsskóla og Grunnskólann á Hellu.
Nýverið var Hlíðaskóla afhent viðurkenn-
ingarskjal fyrir framúrskarandi árangur
nemenda 10. bekkjar í samræmdum próf-
um í stærðfræði síðastliðin þrjú ár. Að auki
fékk skólinn 200 þúsund krónur sem hann
ráðstafar að vild til að efla kennslu í raun-
greinum. Landakotsskóli hlaut viðurkenn-
ingu fyrir hæstu meðaleinkunn í stærð-
fræði á samræmdum prófum 10. bekkjar
vorið 2003. Skólanum voru afhentar 300
þúsund krónur. Gmnnskólinn á Hellu
hlaut viðurkenningu fyrir mestu hækkun
meðaleinkunnar í stærðfræði á samræmd-
um prófum milli 7. og 10. bekkjar. Vom
skólanum afhentar 200 þúsund krónur.
Að Hagsmunafélaginu standa: Tæknifræð-
ingafélag íslands, Verkfræðingafélag íslands,
Háskólinn á Akureyri, Háskóli íslands,
Tækniháskóli Islands og Samtök iðnaðarins.
Formaður Hagsmunafélagsins er Bjami
Bessason, prófessor við Háskóla íslands.
Einnig er hægt að öðlast töluvert
skattalegt hagræði með fjármögnunar-
og rekstrarleigusamningum. Sam-
kvæmt könnun Gallup sem fram-
kvæmd var fyrir Lýsingu í febrúar 2004
nefna 41,1% fyrirtækja hagkvæmni
fyrst af öllu, þegar þau em spurð hvers
vegna þau nýta sér eignaleigu.
- Sveigjanleiki.
Hægt er að stilla greiðslur í takt við
tekjur viðskiptavinar, þannig að þær
endurspegli til dæmis árlegar sveiflur í
tekjum.
- Gengur ekki á bankafyrirgreiðslu.
Ekki er verið að ganga á bankafyrir-
greiðslu þegar tæki em fjármögnuð hjá
Lýsingu. Því er svigrúm til að nýta hana
til dæmis til skemmri rekstrarfjármögn-
unar og/eða langtímafjármögnunar.
- Fljótleg og þægilegt.
Það tekur innan við sólarhring að fá
svar við umsókn hjá ráðgjöfum Lýs-
ingar frá því að öll nauðsynleg gögn
eins og ársreikningur og upplýsingar
um fjárfestingu liggja fyrir. Gengið er
frá samningi í beinu framhaldi af því
ef umsókn er samþykkt.
Hvers vegna Lýsing?
Lýsing hefur frá upphafi sérhæft sig í fjár-
mögnun atvinnutækja með eignaleigusamn-
ingum og hefur 52% markaðshlutdeild á
þeim markaði samkvæmt ársreikningum
eignaleigufyrirtækja fyrir árið 2003. Ráðgjafar
fyrirtækisins leggja metnað sinn í það að
veita framúrskarandi fjármálaþjónustu, með
sérþekkingu og mikla reynslu að vopni, enda
hafa kannanir sýnt að viðskiptavinir Lýsingar
gefa fyrirtækinu hæstu einkunn fyrir þjón-
ustu. Það er mikilvægt að verkfræðistofur
geti einbeitt sér að sinni starfsemi og þeirri
sérhæfingu sem hún útheimtir og geti reitt
sig á þekkingu ráðgjafa Lýsingar við að fínna
bestu lausn í fjármögnun atvinnutækja.
Lausnir Lýsingar eru sérsniðnar að þörfum
hvers viðskiptavinar.
Allar upplýsingar um fjármögnun atvinnu-
tækja fást hjá ráðgjöfum Lýsingar í síma
540-1500 eða á skrifstofu fyrirtæksins á
Suðurlandsbraut 22. Einnig er að finna ít-
arlegar upplýsingar á heimasíðu Lýsingar:
www.Iysing.is