Herinn burt


Herinn burt - 01.12.1957, Síða 5

Herinn burt - 01.12.1957, Síða 5
HERINN BURT 5 JÓN ÓSKAR: Vorkvæði um ísland Einn dag er regnið fellur mun þjóð mín koma til mín og segja: manstu barn mitt þann dag er regnið streymdi um herðar þér og augu og skírði þig og landið til dýrðar nýjum vonum þann dag er klukkur slógu, ó, manstu að þú horfðir á regnið eins og spegil sem speglar þig og landið i kristalstœrum dropum þann dag er lúðrar gullu með frelsishljóm, ó, manstu þann dag er regnið streymdi og regnið var þinn spegill og regnið var þitt sólskin um herðar þér og augu þann dag er landið hvita varð frjálst í regnsins örmum og gleðin tók i hönd þér í sólskinsörmum regnsins. Einn dag er regnið fellur mun þjóð mín koma til mín einn dag er regnið fellur. v______________________________________) geta þurrkað út á einu andartaki heilar borgir og lönd og máð út ásvipstund varnir íslands, nokkra ameríska dáta, sem ráfa um suð- ur á Reykjanesskaga. Fullkomn- un vopnanna og annarra upp- finninga í sambandi við þau er sú, að heimurinn hefur kollvarp- azt þeirra vegna, ekkert er svo sem það var. Það er því í meira lagi fábjánalegt að treysta á svona varnir, eins og þær, sem hér eru brúkaðar. Meira að segja, undir kommúnisma og kapital- isma eða vestrænu lýðræði hefur grundvöllurinn raskazt. En því er á það minnt, að milli þeirra tveggja afla þykir lielzt hætta á styrjöld. En þessi öfl og áhang- endur þeirra mega nú fara að endurskoða sínar gömlu kenni- setningar. Það hefur heldur en ekki komið strik í reikningana í hagkerfum beggja og varðar hvorki meira né minna en líf eða dauða. Við sitjum ekki núna, þú og ég, niðri í Hressingarskála til að ræða um sósíalisma og kapítal- isma. Við höfum vaknað frá draumnum við hvíta birtu nýrra staðreynda. Það er ekki nema um eitt að gera. Sjái ekki herforingj- ar hins kalda stríðs, sem nú hefur verið háð lengi, hvað gera verð- ur, ber okkur að kenna þeim það. Haldi þeir áfram að deila um kommúnisma og kapitalisma með hótunum um stríð og mann- dráp, án þess að taka tillit til breyttra viðhorfa og í stað þess að una því, sem þeir hafa, þá verð- ur almeninngur allra landa að kenna þeim nýja lærdóma áður en þeir byrja manndrápin. Eins og nú horfir við er ekki orðinn tilgangur í neinu nema aðeins því, að fólkið, sem heiminn byggir megi lifa og semja um deilumál sín án styrjalda. Sú eina krafa, sem á rétt á sér um þessar mundir, er krafan um frið. Við getum stutt að þeirri kröfu með því að láta herinn fara heim til sín, og neita að lána land okkar sem herstöð. Með því gæf- um við hverri einustu hersetinni þjóð byr undir vængi, svo að einnig hún mætti losna við þessi óþrif sín. Réttlætið er alltaf sjálfu sér samkvæmt. Brottvísun hers frá íslandi er réttlætismál alls heimsins um leið og það er réttlætis- og nauðsynjamál fyrir íslendinga. Þú segir, að við verðum herset- unnar lítið varir og að Banda- ríkjamenn hafi komið hér vel fram. Ég held, að það sé rétt, að yfirleitt hafi þeir komið vel fram. Mér er heldur ekki í nöp við Bandaríkjamenn, enda hef ég litla ástæðu til þess út af fyrir sig. Hitt, að við verðum lierset- unnar lítið varir, er ekki rétt. Þú segir, að enginn þurfi að um- gangast herinn fremur en hann sjálfur kýs. Það er rétt, en er ekki það, sem máli skiptir. Það, sem máli skiptir er það, að allir erfið- leikar, sem við eigum við að stríða svo að við fáum haldið uppi stjálfstæðu þjóðfélagi, en þeir eru margir, eiga rætur sínar að rekja til hersetunnar að lang- mestu leyti. ísland var hernumið af Bret- um 1940, svo sem kunnugt er, og síðan tóku Bandaríkjamenn við af þeim. Strax við komu Breta komst hér á hin mesta ringul- reið. Fólk streymdi frá fram- leiðslustörfunum í þjónustu hers- ins. Menn báru meira úr býtum við þau störf en hér hafði áður þekkzt og lágu til þess ýmsar or- sakir, sem hér verða ekki taldar. Vegna hinnar miklu atvinnu fengu menn rýmri peningaráð, kröfurnar um aukin lífsþægindi jukust. Ákvæðisvinnan, uppmæl- ingarnar, braskið og leyniverzl- unin hófust. Fólk varð sem brjál- að af peningagræðgi og margir græddu. Erlendur gjaldeyrir streymdi inn í landið fyrir ís- lenzkt vinnuafl. Það var mikill straumur. Þannig hélt þetta á- fram eftir að Bandaríkjamenn komu. Síðan fóru þeir. Þjóðin átti að fara að lifa af sínu. Hún gat það. Stutt var þó sú dýrð. Stóð aðeins meðan mögru kýrn- ar átu hinar feitu. Eftir allan stríðsgróðann stóð þjóðin uppi með auðmenn nokkra í öllum stéttum, en úrræðalaus með framhaldið og strax í ægilegu gjaldeyrishungri vegna þeirra lífshátta, sem liún hafði tamið sér um efni fram og gat ekki lát- ið af. Þá kom fjárhagsaðstoð vin- veitts ríkis til hjálpar og síðan fjárgjafir stórar. Mikil var hún blessun hins fyrra hernáms þeg- ar sú þjóð, sem hennar naut og græddi á peninga sína, þurfti samt sem áður einna mest náðar- brauð allra þjóða skömmu síðar. Og svo hófst annað hernám, hefur staðið lengi og stendur enn. Erlendur gjaldeyrir hefur streymt inn í landið vegna vinnu íslenzkra handa í þágu herstöðva. Hvernig er svo umhorfs hér í dag? Þú segir, að við höfum eign- azt ýmis framleiðslutæki. Hvern- ig gengur að reka þau? Finnst þér ekki dásamlegt fyrirkomulag að láta íslendinga vinna að bygg- ingu herstöðva, kaupa Færeyinga á hin nýju framleiðslutæki, skip- in, danska vinnumenn f fjósin og þýzkar stúlkur í eldhúsin? Mikil er blessun hersetu á ís- landi. Það er rétt, að vegna hersetu og fjárgjafa hafa nokkrir ríkir einstaklingar orðið ríkari og á yf- irborðinu meiri velmegun en annars hefði verið hér á landi. En bæði er það, að nú virðist þetta farið að éta sig æði mikið upp og annað er það, að ekki er hægt að fullyrða neitt um það, livernig farið hefði, ef við hefð- um fengið að vera 1 friði og búa að framleiðslu okkar. Það er ó- hætt að fullyrða, að við vorum til sem þjóð dálitlu fyrr en 1940. Það er annars orðið langt þetta stríð. Svo langt er nú síðan að Bretar tóku okkur hernámi einn maímorgun, að nú erum við þeg- ar farin að útskrifa stúdenta, sem aldrei hafa lifað þann dag með þjóð sinni, að liún ekki þægi gjafakorn frá erlendum og þó einkum fjárfúlgur stórar vegna brúkunar á landi hennar í þágu stríðsguða. Við höfum sem sagt verið að dunda við að ala upp nýja kynslóð þessi árin milli þess að við höfum verið í brjáluðu kapphlaupi við peningana. Nú er þá þessi kynslóð vaxin úr grasi og hefur ekki hina minnstu hug- mynd um, hvað það er að standa á eigin fótum og búa að slnu. Við getum sagt henni, að hún eigi miklu betra en jafnaldrar hennar í nágrannalöndunum. Við getum bent henni á stórar og dýrar í- búðirnar og lofað henni að taka þátt í vandamálum foreldranna við að eignast dýrari íbúð og fínni bíl en náunginn. Við get- um meira að segja sent stúdent- ana í hópferðir á vorin suður til Parísar og borgað allt með doll- urum fengnum fyrir hemám. En hvað segjum við hinni ungu kyn- slóð um það land, sem hún á að erfa og hvernig er það fordæmi, sem við gefum henni? Það er Framhald d bls. 8.

x

Herinn burt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Herinn burt
https://timarit.is/publication/963

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.