Herinn burt - 01.12.1957, Page 6

Herinn burt - 01.12.1957, Page 6
6 HIIINN BURT GUÐMUNDUR BÖÐVARSSON: Opið bréf til ríkisstjórnar íslands Þegar samþykkt var á alþingi, sællar minningar, að bandarískur her skyldi hverfa af íslenzkri grund, þá voru af þjóð þessa lands svo miklar vonir bundnar við þá samþykkt og traustið til þeirra manna, sem að henni stóðu, svo öflugt, að þeim var í næstu kosn- ingum veitt meírihlutaaðstaða á alþingi og þar með falin forysta lands og þjóðar. Yður,sem þáskiptuð meðyður störfum i hinni nýju ríkisstjórn, hlaut að vera Ijóst, að fylgi yðar meðal landsmarma var að veru- legu leyti að þakka hinni djarf- legu samþykkt, en hún var í aug- um vor kjósenda merkilegt skjal og eftirminnilegt i margra alda sjálfstœðisbaráttu þessarar þjóð- ar. Þó að illur grunur um hugsan- legar vanefndir á gefnum loforð- um slægi að vísu marga, strax er oss urðu kunn nöfn sumra manna þeirra, er veita skyldu ráðuneyt- um forstöðu :í hinni nýju stjórn, þá voru þeir þó fleiri, sem vonuðu í lengstu lög, að gifta hinna, er þar var betur treyst til góðra hluta og drengilegra, mætti sín meira. Svo fór þó, að ekki var undinn svo bráður bugur að uppsögn her- verndarsamningsins svokallaða sem vonir stóðu til, en samkvæmt því fylgi, er yður var veitt til stjórnmálalegrar forystu í land- inu, átti slík uppsögn að vera yð- ar fyrsta verk. Þegar svo þeir atburðir gerðust í Ungverjalandi og Egyptalandi, er títt hafa raktir verið, — atburð- ir, sem voru blóðug árétting þess sannleika, að jafnan þá er smá- þjóð á hlut sinn undir stórveldi, þá nær hún ekki rétti sínum, nema stórveldinu þyki sér hent, — þá þótti yður það ærin ástæða til að slá á frest öllum tilburðum til að losa landa yðar við hinn ó- velkomna, útlenda her. Þar með hörfuðuð þér til hins löngu hrunda vígis: að íslenzkri þjóð væri, einhver varnarvon í herstöðinni á Reykjanesskaga, ef til átaka drægi milli austurs og vesturs. Að því þarf ekki lengur orðum að eyða, hver hégómi slik kenning er, enda margnefndum her aldrei eetlað það hlutverk að verja ís- lendinga: — Svo fávislegu hjali Ijcer nú enginn maður i þessu landi lengur eyra, en hitt liggur aftur á móti Ijóst fyrir, eins og það hefur alltaf gert, þótt aldrei fyrr svo óyggjandi Ijóst sem nú, að slik herstöð er til engis annars en að kalla yfir þetta framtíðarland og þessa fámennu þjóð tjón, eyði- leggingu, eymd og dauða. Þeir, sem til hafa orðiðað verja aðgerðir yðar og aðgerðaleysi í þessum inálum, hafa helzt haft það í svari, að þér vilduð leggja mikið í hættu fyrir góðan mál- stað. En nú vitum vér, að þér er- uð ekki bærir, fram yfir aðra dauðlega menn, að segja oss, hvað sé góður málstaður og hvað ekki, í átökum stórvelda. Og jafnvel þótt þér létuð yður í hug koma slíka fávizku, þá hafið þér engan rétt að selja fólk yðar í píslarvœtti óaðspurt, að þann rétt hefur eng- inn, því að sliku er ekki stefnt á þá eina, sem nú lifa i landinu, heldur ein tiig á niðja vora,þá sem eiga að erfa þetta land eftir vorn dag. Meðal vor hafa og verið þær raddir, er tjáðu oss, að ekki þýddi að stríða mót ógæfunni: hér yrði barizt og blóði úthellt, ef styrjöld brytist út, hvort heldur hér væri herseta eða eigi. En skilst yður ekki, hvílíkur reginmunur það er að verða að þola ófrið í landi sínu, eftir að hafa beitt öllum hugsanlegum ráðum til að afstýra slíku, eða hitt, að hafa sjálfur kallað yfir sig slyrjaldarhörmungar, sem enginn getur sagt um, live ógnlegar mundu verða í landi, þar sem ekkert, ALLS EKKERT, hefur verið gert til þess, að fólkið fengi lifað slikt af? Því leyfi ég mér að spyrja: Hvað dvelur yður? Við hvorn aðilann œtlið þér, að þér hafið meiri skyldur, þá þjóð, hverrar synir þér eruð, og sem fól yður forsjá mála sinna, eða hinn, er tefliryður fram sem ginningar- fíflum, að leiða oss í þá tortim- ingu, er hann sjálfur vill komast hjá? Hvaða afsakanir hafið þér? Ef einhverjar eru, þá leggið þœr fram. ILafið þér á laun og að þjóð yðar óvitandi, bundizt einhverj- um þeim samningum, að ekki verði riftað? Eða teljið þér, að ekki sé lengur liœgt að brauðfœða landslýðinn á þeim hlutum, er hafa má af landinu sjálfu og haf- inu kringum það, utan þar komi einnig sá peningur, er rikinu á- shotnast fyrir að hœtta lifi þjóðar- innar á fremstu nöf, í þágu óvið- komandi stórveldis? Vér látum oss skiljast, með hliðsjón af mannlegu veiklyndi, að víst sé nokkur skemmtun og tilbreytni að sitja fundi og glæsi- leg hóf við vín og góðan kost í er lendum stórborgum, með for- ystumönnum þjóða, sem telja sig eiga að ráða heiminum, gráar af herneskju, og vera þar í orði kveðnu taldir menn með mönn- um. En vitið fyrir víst, að það er oss engi virðing, að þér etið þar og drekkið, ef þér játizt þar, af auð- sveipni og til að þóknast voldug- um aðilum, sem þér lítið upp til, þeim tilmælum, sem þegar ti) efnda kemur, kunna að kosta yð- ar eigin þjóð þær fórnir, sem eng- inn fær metið til verðs. Gerið oss ekki, meira en orðið er, hlægilega í augum nágranna vorra og alls heimsins, fyrir skil- yrðislausa þjónstusemi við þau öfl, sem vilja virkja yður í þágu eigin hagsmuna, — og brosa að yð- ur því meir, því auðsveipari sem þér gerizt. En minnizt þess, að nöfn yðar skulu um aldir lesin með þökk og lotningu í sögu þessa lands, ef þér berið gcefu til, með lipurð og drengskap, að forða þjóð yðar frá þeim háska, sem henni nú er bú- inn, og hcettið ekki til hins, að svo illa fari, að dirfskuleysi tog þjón- ustuhneigð við tillitslaus stór- veldi leiði yfir hana dauða og eyðileggingu, þvi þá kann þó svo til að bera, að einhverjir þeir lifi af, er setji yður verðug eftirmœli. Ég kveð yður í trausti þess að yður auðnist að inna af höndum það Idutverk, er yðuv var falið. Yðar einlægur Guðmundur Böðvarsson. DRÍFA V I Ð A R : Menn þjóðarinnar Sjaldgæft er það að menn sem hugsað geta hafi siðferðilegan styrk til að hrinda hugsjón sinni í framkvæmd ellegar standa við sína hugsjón og láta það ráða sem réttara reynist. Þá menn sem ekki skortir þennan siðferðilega styrk ber hæst í sögu okkur, þeir eru menn þjóðarinnar. Ég get ekki hugsað mér meiri hamingju- menn en Jjá, Jjótt oft hafi um þá nætt og örlög þeirra verið sorg- leg og ill, en stöður og virðing- ar hefðu staðið Jjeim mörgum til boða eða fé fyrir að vera ekki hugsjón sinni trúir. Um aldir hefur þjóðin lesið um Uluga á Bjargi, bróður Grett- is: ort um hann, harmað örlög hans, lofað hreysti hans. Þor- björn öngull bauð honum líf. Hann svarar: — „engi skal yður óþarfari en ég, ef ég lifi, því seint mun fyrnast mér hversu þér haf- ið unnið á Gretti. Kýs ég miklu heldur að deyja.“ Ekki trúi ég að Illugi hafi ver- ið að hugsa um eftirmæli sitt á þeirri stund, þann „dóm um dauðan hvern“ er „aldri deyr“, eða honum hafi til hugar komið orðin: „orðstírr deyr aldreigi, orðin: „orðstírr deyr aldregi, Þessi gullvægu vísuorð úr Hávamálum hafa verið mörgum manni styrkur um aldaraðir. En felst ekki í þeim metorðagirnd: ég verð að láta gott af mér leiða áður en ég dey til að geta fengið gott eftirmæli. Hitt er sjaldgæft að menn lneyti eftir sannfæringu sinni hvernig sem málin horfa og Iivað sem verður. Mér er sem fleirum: ég dái Illuga. Ég vildi að menn eins og hann væru sem flestir með þjóð- inni, að okkar þjóðfélag væri þess umkomið að ala upp menn eins og Illuga. Þeir bræður stóðu saman og vörðu sig og féllu. Nú er þöríf fyrir okkur að standa saman og gefast aldrei upp. Við skulum ekki gleyma þeim sem ekki hvikuðu frá sjálfstæðishug- sjóninni og hvíldu aldrei fyrr en árangri var náð. Við skulum ekki gleyma starfi þeirra, striti og uppskeru. Við skulum ekki gleyma að starf Jreirra var ekki unnið vegna eftirmælisins, heldur af því að þeir fóru eftir því sem þeir vissu sannast og réttast. Við höfum ekki betra fordæmi en þá góðu menn sem börðust fyrir land okkar og þjóð. Tökurn upp merki þeirra og vinnum að því að land okkar verði laust við her- setuna. Við skulum aldrei linna fyrr en hver og einn einasti her- maður er farinn burt af íslandi. Við skulum ekki gleyma því að við eigum skyldur að rækja gagn- vart fortíðinni og á okkur hvílir ábyrgðin gagnvart framtíðinni.

x

Herinn burt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Herinn burt
https://timarit.is/publication/963

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.