Dagfari - 15.04.2005, Page 9

Dagfari - 15.04.2005, Page 9
Er Albert Schweitzer fífl? Auk þess að fjalla um það sem hæst bar í menningu og listum hverju sinni, mátti oft finna í timaritinu Birtingi greinar sem fjölluðu unt stjórnmálatengt efni. í öðru tölublaði ársins 1958 skrifaði Einar Bragi ritstjórnargrein þar sem hann gagnrýndi hræsni þeirra hægrimanna sem reyndu að nota hernað Sovétmanna í Ungverjalandi til að koma höggi á friðarsinna og andstæðinga kjarnorkuvígbúnaðar í heiminum. Nokkru fyrr höfðu hægrimenn efnt til fundar vegna Ungverjaiandsmáisins, þar sent ófögrum orðum var faiið um andstæðinga hersetunnar á Islandi. „Það er ágætt að geta talað á Lækjartorgi, en hvers virði er það frelsi, ef það er notað til að æsa fóllc upp gegn mönnum vem vilja gera þjóðina að friðflytjanda, vilja fá hana til að hætta að trúa á helsprengjur og helsprengjustöðvar? Eða halda mennirnir að okkur sé vörn að hermönnum sem hafa enga helsprengju? Og halda þeir þá að okkur verði hlíft vegna þess að við höfum helsprengjur? Eða hvernig hugsa þeir sér vörnina? Eða vita þeir ekkert? Er Albert Schweitzer fífl, eða eru orð hans varnaðarorð viturs mannvinar? Fékk hann kannski friðarverðlaun Nóbels fyrir að stuðla að herstöðvum og vetiysspren gjuframleiðslu? Er heimspekingurinn Bertrand Russel að reyna að útbreiða kommúnisma? Er hægt að bendla Nóbelshöfundinn Albert Camus við kommúnisma? Er ekket t mark takandi á landa hans Jean-Paul Sartre? Eigum við að hafa orð Einsteins að engu? Eigum við að skella skollaeyrum við því, sem vitrustu menn þjóðanna segja? Hafa menn lesið bæklinginn “Friðlýst land”? Geta þeir haldið áfram að trúa á hervarnir eftir að hafa lesið hann? Það er ótrúlegt. Við getum hvorki trúað því, að þeir menn, sem predika gegn friðarstefnu, séu vitskertir né að þeir séu illir í eðli sínu. Þeir hljóta að fara sínu fram í jafngóðri trú og hinir hvatvísu stjórnmálamenn í útlöndum, sem létu drepa Nagym Ungverjann fræga. Við hljótum öll að hafa andstyggð á leynilegum réttarhöldum og svívirði— legum griðrofum eins og framin voru á Ungverjum. En minnumst þess að þeir atburðir gerðust fyrir íhlutun erlends hers, sem var í landinu samkvæmt samningii. Menn ættu því að hlygðast sín að leggja þannig út af hryllilegum afleiðingum hersetu í öðrum löndum, að þeir reyni að fá Islendinga til að sætta sig betur við hersetu á íslandi.“

x

Dagfari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.